Fréttablaðið - 28.08.2010, Page 4
4 28. ágúst 2010 LAUGARDAGUR
Mynd af röngum manni fylgdi með
spurningu dagsins í blaðinu 26.
ágúst. Þar var rætt við Karl Stefánsson
úr danshópnum Sporinu en myndin
var af félaga hans úr hópnum, Hilmari
Hjartarsyni.
LEIÐRÉTTING
VIÐSKIPTI Íslenska átöppunar-
fyrirtækið Icelandic Water
Holdings, sem framleiðir vatn á
flöskum við Þorlákshöfn, hefur
ráðið Bandaríkjamanninn James
Harris sem yfirmann sölumála á
vesturströnd Bandaríkjanna.
Harris er reynslubolti í
drykkjavörugeiranum. Hann var
áður hjá Pepsi og Fiji Water, sem
keppir við Icelandic Water Hold-
ing á vatnsmarkaðnum.
Þetta er enn einn reynslu-
boltinn í starfsliði átöppunar-
fyrirtækisins en forstjórinn,
John Sheppard, var áður forstjóri
Coca Cola í Evrópu. - jab
Reynslubolti í íslenska vatnið:
Stýrir sölumál-
um vestanhafs
VATNIÐ RENNUR Nokkrir reynsluboltar
á drykkjarvörumarkaðnum hafa síðasta
árið gengið til liðs við Icelandic Water
Holding, sem selur átappað vatn um
allan heim. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
18°
18°
18°
19°
15°
18°
18°
25°
19°
31°
30°
33°
13°
20°
15°
17°
Á MORGUN
3-8 m/s.
MÁNUDAGUR
5-10 m/s.
7
7
8
7
6
10
11
10
11
13
4
2
3
1
3
4
2
5
7
8
5
3
12
13
12
12
14
1413
13
15
15
HLÝNANDI VEÐUR
Það verður víðast
bjartviðri á landinu
í dag og vindur í
lágmarki. Á morg-
un verða hins vegar
breytingar en þá
snýst í suðvest-
læga átt með vætu
vestantil á landinu
en þá hlýnar einnig
til muna um norð-
an og austanvert
landið.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Umhverfis landið
AKRANESS Bæjarstjórn Akraness
felldi tillögu minnihluta sjálfstæðis-
manna um að hætta við að veita
styrki til greiðslu fasteignaskatts til
nokkurra. Ákveðið hafði verið í júní
að styrkja með þessum hætti Odd-
fellow, frímúrara, Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar, Framsóknarfélag
Akraness, eiganda Safnaðarheimil-
isins og Samfylkinguna á Akranesi.
Sögðust sjálfstæðismennirnir „harma
það að núverandi meirihluti skuli gera
það að forgangsmáli að draga til baka
margar af þeim aðhaldsaðgerðum
sem bæjarstjórn Akraness samþykkti
samhljóða að fara í fyrir og eftir hrun“.
Vildu hætta við
niðurfellingu
REYKHÓLAHREPPUR
Gestum og gangandi
verður í dag boðið í súpu
í tilefni Reykhóladaga í
Reykhólasveit. Að því er
fram kemur á vef sveitar-
félagsins verður súpan
til reiðu í hádeginu frá
klukkan hálftólf til eitt „og
jafnvel lengur eftir því sem lögunin endist.“ Þeir sem
bjóða í súpuna eru Lóa á Miðjanesi, Steinunn Rasm-
us og Solla á Hellisbraut 24, Begga á Hellisbraut 22,
Dísa Sverris á Hellisbraut 8b og Áslaug á Mávavatni.
Boðið í súpu á Reykhólum
SKAGASTRÖND Péturína Jakobsdóttir, sem
á sæti í sveitarstjórn Skagastrandar, sakar
aðra fulltrúa um að hafa rofið trúnað um mál
sem rædd voru á fundi sveitarstjórnar í júní.
„Ég lít svo á að umræður á fundum sveitar-
stjórnar þar sem fjallað er um persónuleg
mál einstakra aðila beri að horfa á sem algjör
trúnaðarmál þannig að sveitarstjórnarmenn
eða sveitarstjóri séu ekki að tilgreina við aðila
„úti í bæ“ hver sé að segja hvað þegar við-
kvæm eða óþægileg mál eru til umfjöllunar,“
bókaði Péturína á síðasta fundi og lýsti yfir að
hún sjálf hefði ekki og myndi ekki viðhafa slík
vinnubrögð.
Trúnaðarbrot um einkamál
NEYTENDUR Alþýðusamband Íslands
vill að utanríkisráðuneytið kanni
lögmæti ákvörðunar Jóns Bjarna-
sonar landbúnaðarráðherra um að
hækka „gríðarlega“ tolla á innflutt-
ar landbúnaðarafurðir. Ákvörðun
ráðherra „gangi beint gegn hags-
munum neytenda“.
ASÍ telur að tollahækkunin brjóti
í bága við alþjóðlegar skuldbind-
ingar, svo sem GATT-samkomu-
lagið. Í tilkynningu frá ASÍ kemur
einnig fram að sambandið leggur
til að svokallað mjólkurfrumvarp
sama ráðherra verði fellt.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
þingmaður Samfylkingar, segist
taka heilshugar undir með ASÍ
að rétt sé að láta kanna lögmæti
ákvörðunar ráðherra.
„Samfylkingin er flokkur sem
talar fyrir hagsmunum neytenda.
Það á að fara varlega í tollahækk-
anir og ég tek því undir með ASÍ,“
segir hún.
Ljóst sé að margir flokksmenn
hennar séu ósammála Jóni um
ýmis efni. „En hann hefur verið í
ríkisstjórninni frá upphafi og það
er ekkert nýtt að við séum ósam-
mála um margt. En þessi ákvörðun
virðist ganga í berhögg við hags-
muni neytenda.“
Því eigi að krefjast þess að land-
búnaðarráðherra rökstyðji ákvörð-
un sína vel og vandlega. - kóþ
ASÍ og þingmaður Samfylkingar segja landbúnaðarráðherra fara gegn neytendum:
Lögmæti hækkunar verði skoðað
SIGRÍÐUR I.
INGADÓTTIR
JÓN BJARNASON
DJÚPIVOGUR Fjórar konur á Djúpavogi
söfnuðu framlögum meðal bæjarbúa og
náðu að kaupa hjartaómunartæki sem
þær hafa fært heilsugæslunni á staðnum
að gjöf. Tækið er notað við mæðraeftirlit.
Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins og
þaðan er meðfylgjandi mynd. Hún sýnir
þegar þrjár kvennanna færðu leikskólanum
myndavél sem keypt var fyrir afganginn af
söfnunarfénu. „Enn var afgangur af söfnun-
arfénu og var ákveðið að leggja hann inn
á söfnunarreikninginn fyrir Rafn Heiðdal,“
segir í þakkarávarpi frá konunum.
VESTMANNAEYJAR Erpur Snær Hansen, sviðsstjóri
vistfræðisviðs Náttúrustofu Suðurlands, segir algjört hrun
í varpi lundans í ár. Þetta kemur fram á Eyjafréttir.net.
Erpur segir að lundinn hafi afrækt eggin þann ig að innan
við 20 prósent pysja hafi klakist úr eggjunum. Afkoma
þeirra fáu sem klöktust hefur einnig verið mjög léleg
þannig að lítið bætist við stofn-
inn í ár, minna en undanfarin
ár. Svipaða sögu er að segja
annars staðar á Suður- og
Austurlandi en staðan er
betri fyrir norðan, að því er
fram kemur á Eyjafréttum.
Óvenjulítið um lunda í Eyjum
SKAGAFJÖRÐUR Á vef Skagafjarðar er nú auglýst eftir fólki til að
„verja heiður Skagafjarðar“ í spurningaþættinum Útsvari í ríkisútvarp-
inu. Mun RÚV hafa leitað til sveitarfélagsins um aðstoð við að manna
lið Skagafjarðar. „Skagafjörður hefur nú í þrígang sent glæsilega
fulltrúa í þáttinn sem vakið hefur mikla athylgi og notið hefur mikilla
vinsælda,“ segir á skagafjordur.is þar sem tekið er fram að bæði sé
óskað eftir sjálfboðaliðum sem og ábendingum um þátttakendur.
Skagfirðingar safna í lið
STJÓRNSÝSLA Árni Páll Árnason,
félags- og tryggingamálaráðherra,
hefur skipað þau Ingibjörgu Þor-
steinsdóttur, Einar Pál Tamimi og
Arndísi Önnu K. Gunnarsdóttur í
kærunefnd greiðsluaðlögunarmála.
Ingibjörg verður formaður
nefndarinnar, sem hefur það hlut-
verk að kveða upp úrskurð í málum
sem vísað er til hennar vegna
ákvarðana umboðsmanns skuldara
í tengslum við greiðsluaðlögun ein-
staklinga. Nefndin er skipuð til
fjögurra ára. Úrskurðir hennar eru
endanlegir á stjórnsýslustigi. - gb
Kærunefnd skipuð:
Úrskurðar um
greiðsluaðlögun
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 27.08.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
208,0143
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
120,20 120,78
186,46 187,36
152,82 153,68
20,516 20,636
19,106 19,218
16,263 16,359
1,4197 1,4281
181,52 182,60
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR