Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.09.2010, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 16.09.2010, Qupperneq 8
8 16. september 2010 FIMMTUDAGUR Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Hágæða þvottavél WM 16S462DN Tekur mest 8 kg, vindur upp í 1600 sn./mín. Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn mótor. Aukahljóðeinangrun. Mjög stutt kerfi (15 mín.). Orkuflokkur A. Tækifærisverð: 179.900 kr. stgr. (Fullt verð: 219.900 kr.) Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is Tilboð kr. 790.000 ÆGISVAGN (fullt verð kr. 1.190.000) Eigum til þrjá 2010 árgerð Ægis tjaldvagna frá því sumar. ÆGIR 790.000,- kr. TILBOÐ A u g lý si n g as ím i Allt sem þú þarft… SAMGÖNGUR Eldgosið í Eyjafjalla- jökli snemmsumars ýtir á að hrundið verði í framkvæmd áætl- unum um samhæfðari reglusetn- ingu og flugumferðarstjórn í Evr- ópu, að sögn Daniels Calleja, sem fer með málefni flugumferðar hjá framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins. Calleja, ásamt fjölda sérfræðinga á sviði flugmála víðs vegar að úr heiminum, er gestur á yfirstandandi ráðstefnu Keilis um hvaða lærdóm megi draga af eld- gosinu í Eyja- fjallajökli og áhrif öskufalls á flugrekstur. Um 250 manns sitja ráðstefn- una, sem hald- in er í samvinnu við forsetaemb- ættið, ráðuneyti og stofnanir innanlands sem tengjast flugiðn- aði, háskóla og félagasamtök, auk fjölda evrópskra og alþjóðlegra stofnana. Ráðstefnan hófst í gær og henni lýkur í dag, en í grófri samantekt gærdagsins mætti segja að marg- ir sérfræðinganna hafi verið sam- mála um að nokkuð vel hafi tekist til á erfiðum tímum þegar gosið hófst. Miklum gögnum hafi verið safnað og nú sé unnið að úrvinnslu þeirra með enn frekari umbætur fyrir augum. Í erindi sínu kvað Daniel Calleja ætlun sína að draga upp mynd af viðbrögðum Evrópusambandsins vegna öskuvárinnar frá Íslandi í sumar. Um leið lagði hann áherslu á að einnig þyrfti að bregðast við til þess að vera búinn undir önnur eldgos sem kunni að verða. Benti hann á að vegna gossins og flug- banns í Evrópu frá 15. til 21. apríl hafi þurft að aflýsa yfir 100 þús- und flugferðum sem hafi haft áhrif á um það bil tíu milljónir farþega. Tekjutap flugfélaga vegna þessa sé áætlað 1,7 milljarðar Bandaríkja- dala. Upphæðin nemur tæpum 200 milljörðum íslenskra króna. Hann segir samgönguráðherra Evrópusambandsríkja hafa í apríl staðið frammi fyrir þremur leiðum til að bregðast við. Ein var að breyta engu og vona það besta. Önnur að eftirláta flugfélögum ákvörðunina um hvort flogið yrði. Og sú þriðja að grípa til nýrrar nálgunar. Sá kostur varð ofan á og því voru sam- ræmdar lokanir flugsvæða og eftir- lits teknar upp. Hömlum á flugum- ferð var svo aflétt 20. apríl. Calleja segir að gripið hafi verið til margvíslegra úrbóta á sviði flugumferðarstjórnar í Evrópu í kjölfar gossins, en þar þurfi enn að bæta svo sem með stofnun sam- ráðshóps vegna áfalla í flugrekstri (EACCC), þróun nýrrar aðferða- fræði við áhættumat og með því að flýta áætlunum um Evrópu sem eitt flugumferðarsvæði (e. Single Eur- opean Sky). olikr@frettabladid.is Samhæfa þarf við- brögð við áföllum Áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli eru til umræðu á fjölþjóðlegri ráðstefnu Keilis á Keflavíkurflugvelli. Enn er unnið úr gögnum um áhrif gossins. Í apríl lentu 10 milljónir flugfarþega í vandræðum og 100 þúsund ferðir voru felldar niður. Í ANDREWS-RÁÐSTEFNUSALNUM AÐ ÁSBRÚ Ótal sérfræðingar frá fjölda stofnana og fyrirtækja sem koma að flugiðnaði, ræða lærdóm þann sem draga má af eldgosinu í Eyjafjallajökli snemmsumars á ráðstefnu Keilis á Keflavíkurflugvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DANIEL CALLEJA „Það hafa átt sér stað miklar framfarir frá því að við lentum í öskuskýinu,“ segir Eric Moody, fyrrverandi flugmaður, sem lenti í því að drapst á öllum hreyflum Boeing 747 farþegaþotu sem hann flaug í gegnum öskuský yfir Jövu, 24. júní 1982. „Þá var þetta óþekkt og enginn hafði lent í þessu. Við vissum ekki orsökina fyrr en tveimur dögum eftir lendingu.“ Moody segir að í kjölfarið hafi sprottið upp mikil starfsemi við að greina ösku, fylgjast með dreifingu hennar og hafa eftirlit með eldgosum um heim allan. Þrátt fyrir þetta segir hann ekki hafa verið brugðist rétt við vegna goss- ins í Eyjafjallajökli. „Fyrstu viðbrögðin, að stöðva flug, voru rétt, en svo var farið út af sporinu,“ segir hann og kveður magn gosefnis í lofti yfir Bretlandi og stærstum hluta Evrópu hafa verið svo lítið að ekki hafi réttlætt jafnlangt flugbann og raunin varð. „Það sem menn gleymdu var að yfir stöðum eins og Jövu og Indónesíu er alltaf að finna einhverjar öskuleifar í lofti. Þar eru stöðug eldgos. Á Jövu er 92 eldfjöll og átta virk á hverjum einum tíma,“ segir hann og kveður öskuský þurfa að vera nokkuð þétt til þess að skemma út frá sér. Hann gagnrýnir jafnframt að eina vélin á Bretlandi sem gat (af vanefnum) mælt öskumagn í lofti hafi ekki verið notuð í apríl vegna þess að hún var í málun. Þegar drapst á öllum hreyflum þotu Moodys yfir Jövu árið 1982, með 247 farþega innanborðs og 16 manna áhöfn, segir hann að öskuskýið hafi ekki sést vegna þess að flogið var í myrkri. „Við höfðum ekki hugmynd um hvað var að gerast, það drapst bara á hreyflunum einum af öðrum,“ segir hann. Alls liðu 16 mínútur frá því að drepast fór á hreyflum vélarinnar þangað til tókst að koma þremur þeirra af fjórum í gang á ný. Þrátt fyrir allan þennan tíma segir Moody fólk hafa haldið ró sinni. „Ein áströlsk kona fékk hræðslu- kast en róaðist eftir að eiginmaður hennar löðrungaði hana. Meira var það ekki,“ segir hann og kveðst sjálfur hafa haft of mikið að gera við að halda vélinni á lofti og endurræsa hreyfla til að velta hættunni fyrir sér. Óttar Sveinsson, sem ritar Útkallsbók um atburðinn og var með Moody á ráðstefnunni, segir hins vegar að farþegar vélarinnar hafi verið verulega skelkaðir. „Þau voru viss um að þau myndu öll deyja,“ segir hann. Ein kona í áfalli uppskar löðrung ÍSRAEL, AP Herskáir Palestínumenn vörpuðu nokkrum sprengjum yfir landamærin til Ísraels. Ekk- ert tjón varð, enda heimatilbún- ar sprengjurnar ekki með stýri- búnað. Ísraelar svöruðu samstundis með loftárásum á göng sem notuð hafa verið til að smygla vörum frá Egyptalandi yfir til Gasa- strandar. Þar lét einn maður lífið og fjórir særðust, að sögn tals- manna Hamashreyfingarinnar, sem hefur farið með stjórnina á Gasa. Herskáir Gasabúar hafa undan- farið hótað því að stöðva viðræð- ur Ísraela og Palestínumanna, sem hófust í byrjun mánaðarins eftir að hafa legið niðri í tvö ár. Viðræður héldu engu síður áfram í Jerúsalem í gær, þrátt fyrir að engin lausn væri í sjón- máli á deilum um framkvæmdir á vegum ísraelskra landtökumanna í austanverðri Jerúsalemborg. Mahmoud Abbas, forseti Pal- estínustjórnar, hefur sagt að við- ræðunum verði sjálfhætt ef þær framkvæmdir hefjast á ný í lok mánaðarins, þegar tímabundið bann við þeim rennur út. - gb Herskáir Palestínumenn á Gasaströnd varpa sprengjum á Ísrael: Reynt að stöðva viðræðurnar BYGGINGARFRAMKVÆMDIR Í Beitar Illit, byggð ísraelskra landtökumanna á Vest- urbakkanum, halda framkvæmdir áfram þrátt fyrir frystingu í Jerúsalem. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.