Fréttablaðið - 18.09.2010, Side 2
2 18. september 2010 LAUGARDAGUR
Sverrir, væri þá ekki upplagt
að gera afmælisdaginn þinn
að degi ónáttúrunnar?
„Jú, alveg endilega. Svo mætti gera
afmælisdag einhvers ákafs virkjun-
arsinna að degi náttúruleysisins.“
Gera á afmælisdag Ómars Ragnarssonar,
16. september, að degi náttúrunn-
ar. Sverrir Stormsker er þekktur fyrir
blautlegan kveðskap. Sverrir er fæddur 6.
september og því meyja eins og Ómar.
BRETLAND, AP Benedikt páfi viður-
kenndi í vikunni, þegar hann kom
í opinbera heimsókn til Bretlands,
að kaþólska kirkjan hafi hvorki
brugðist nógu fljótt né nógu
ákveðið við þegar prestar hafa
verið sakaðir um kynferðisbrot
gegn börnum.
Hann sagði það nú vera fyrsta
forgangsmál kirkjunnar að hjálpa
fórnarlömbum slíkra brotamanna
að ná sér.
Andstaða og gagnrýni á páfa og
kaþólsku kirkjuna hafa verið svo
áberandi í Bretlandi að sjálf heim-
sóknin hefur fallið í skuggann.
Fimm manns voru handteknir í
Bretlandi snemma í gærmorgun,
sakaðir um að hafa hótað páfa. - gb
Heimsókn páfa til Bretlands:
Fellur í skugga
kynferðisbrota
DROTTNING OG PÁFI Elísabet Breta-
drottning ásamt Benedikt sextánda.
NORDICPHOTOS/AFP
1
54
NÁTTÚRA Ekkert varð vart við flæk-
ingsfiðrildi hér á landi í sumar
vegna einmunablíðu. Með fyrstu
haustlægðinni í byrjun mánaðarins
barst hins vegar til landsins fjöldi
fiðrilda með hlýjum loftstraumum.
Sérstök vöktun fiðrilda hefur verið
hér á landi síðan 1995.
Á Náttúrufræðistofnun hefur
verið fylgst með komum fiðrilda
undanfarið. Við eftirgrennslan er
ljóst að tíu tegundir útlendra fiðr-
ilda bárust hingað hið minnsta.
Sum þeirra hafa hafnað í fiðr-
ildagildrum sem reknar eru vegna
verkefnis sem tengist vöktun fiðr-
ilda og hófst á tveim stöðum á land-
inu, Tumastöðum í Fljótshlíð og
Kvískerjum í Öræfum, fyrir fimmt-
án árum.
Erling Ólafsson, sérfræðingur á
Náttúrufræðistofnun, segir að sýna-
taka fari fram með þar til gerðum
ljósgildrum en veiðarnar byggja
á þeirri áráttu flestra fiðrilda að
sækja að ljósum þegar skyggja
tekur. Gildrurnar eru stórtæk verk-
færi enda veiddust á tíu árum 69.494
eintök fiðrilda á Tumastöðum og
tilheyrðu þau fimmtíu tegundum.
Samsvarandi tölur frá Kvískerjum
eru 81.227 eintök og 64 tegundir.
Á Íslandi hafa til þessa fundist
143 nafngreindar tegundir fiðrilda.
Þar af eru 89 taldar lifa hér á eigin
forsendum í íslenskri náttúru.
svavar@frettabladid.is
Fiðrildarigning með
fyrstu haustlægðinni
Mikill fjöldi fiðrilda barst til landsins þegar sumarblíðan tók enda með fyrstu
haustlægðinni á dögunum. Á Íslandi hafa til þessa fundist 143 tegundir fiðrilda.
32
1. Aðmírálsfiðrildi
Er mikill fluggarpur með ríkt flökkueðli.
Aðmírálsfiðrildi er tíður og væntanlega
árlegur gestur á Íslandi og var fyrst skráð
hér árið 1901.
2. Kóngasvarmi
Fluggarpur sem oft leggst í langflug frá
náttúrulegum heimkynnum. Er nánast
árlegur flækingur á Íslandi. Fyrsta tíma-
setta tilvikið er frá 1899. Kóngasvarmi er
auðþekktur á stærðinni en auðvelt er að
villast á honum og fugli á flugi.
3. Gammaygla
Er eitt algengasta flækingsfiðrildið hér á
landi. Á gráleitum framvængjum er skýrt
ljóst tákn sem er nánast eins og gríski
bókstafurinn gamma og dregur tegund-
in af því heiti á flestum tungumálum.
4. Gulygla
Er landlæg hér á landi og hefur henni
farið fjölgandi í kjölfar hlýnandi lofts-
lags. Gulygla er með stærstu fiðrildum
og þar með stærstu skordýrum hér á
landi.
5. Páfiðrildi
Er ein fárra tegunda sem þreyja vetur
á fullorðinsstigi. Fyrstu fiðrildin vakna
á ný þegar sól tekur að skína í mars.
Fyrsti skráði fundur er frá árinu 1938,
flest sjö árið 1996. Berst hingað með
varningi.
M
YN
D
IR
/E
R
LI
N
G
Ó
LA
FS
SO
N
LÖGREGLUMÁL Svo virðist sem
skipulögð skattsvik sem lögreglan
hefur nú til rannsóknar hafi stað-
ið allt árið í fyrra og það sem af er
þessu ári, hið minnsta. Sex sitja
nú í gæsluvarðhaldi vegna svik-
anna, sem nema um 270 milljón-
um króna. Einn þeirra sem situr í
varðhaldi er starfsmaður skattsins.
Fleiri höfðu ekki verið hand-
teknir vegna málsins í gærkvöldi
en ekki var útilokað að svo yrði.
Yfirheyrslum yfir þeim handteknu
var fram haldið í gær.
Féð var svikið út með því að
skila fölsuðum skjölum um kostn-
að við byggingarframkvæmdir
til skattsins og fá endurgreiðslu á
virðisaukaskatti. Starfsmönnum
skattsins hefur verið veitt áfalla-
hjálp vegna málsins. - sh
Meintir svikarar yfirheyrðir:
Svikin stóðu í
vel á annað ár
AFGANISTAN, AP Mikill viðbúnaður
lögreglu og hers er í Afganistan
vegna þingkosninga, sem haldnar
verða þar í dag. Óttast er að and-
stæðingar bæði stjórnvalda og
erlenda herliðsins reyni að trufla
framkvæmdina með ofbeldi og
hótunum.
Hamid Karzai forseti hvatti
landsmenn til að taka þátt í kosn-
ingunum þrátt fyrir hótanir tali-
bana og annarra uppreisnarhópa.
Átök í tengslum við væntanlegar
kosningarnar hafa á síðustu dögum
kostað nokkra tugi manna lífið.
Erlenda herliðið mun fylgjast
með framkvæmd kosninganna
til að koma í veg fyrir kosninga-
svindl, en ásakanir um slíkt í for-
setakosningunum á síðasta ári
urðu til þess að veikja mjög stöðu
forsetans.
Richard Holbrooke, sendifull-
trúi Bandaríkjastjórnar í Afgan-
istan og Pakistan, sagðist gera sér
fulla grein fyrir því að kosning-
arnar verði ekki fullkomnar.
Nú í vikunni bárust fréttir af
því að verulegt magn af fölsuðum
kjörseðlum hafi fundist í Pakist-
an, skammt frá landamærum ríkj-
anna. - gb
Alþjóðaherliðið í Afganistan notað til að fylgjast með þingkosningunum í dag:
Reyna allt til að hindra svindl
UNDIRBÚNINGUR KOSNINGA Kjörkassar fluttir niður í Pansjírdal norðaustan við
höfuðborgina Kabúl. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FJARSKIPTAMÁL Gagnaveita Reykja-
víkur hyggst una úrskurði Póst- og
fjarskiptastofnunar þess efnis að
greiða skuli vexti af láni Orkuveitu
Reykjavíkur (OR) til fyrirtækis-
ins tvisvar á ári. Lánið er tilkomið
vegna aðskilnaðar Gagnaveitunn-
ar og OR, sem Póst- og fjarskipta-
stofnun mælti fyrir um. Stofnun-
in gerði á miðvikudag alvarlegar
athugasemdir við lánið.
„Hér er ekki verið að fella
niður vexti heldur fresta greiðslu
þeirra,“ segir Birgir Rafn Þráins-
son, framkvæmdastjóri Gagnaveit-
unnar. Hann segir ekki rétt sem
fram kom í Fréttablaðinu í fyrra-
dag að lánið hafi átt að vera vaxta-
laust á lánstímanum. Hið rétta sé
að safna hafi átt upp vöxtum á
lánstímanum og greiða þá þegar
lánið yrði greitt upp.
Póst- og fjarskiptastofnun komst
hins vegar að þeirri niðurstöðu
að slík fyrirgreiðsla stæðist ekki
ákvæði fjarskiptalaga né sam-
rýmdist fyrri ákvörðunum stofn-
unarinnar um lánakjör.
Birgir segir að Gagnaveitan uni
þeirri niðurstöðu og hafi þegar
greitt þá vexti sem frestað hafi
verið að borga þar til niðurstaða
Póst- og fjarskiptastofnunar hafi
verið kynnt fyrirtækinu. - bj
Segja ekki rétt að lán frá OR til Gagnaveitu Reykjavíkur hafi verið vaxtalaust:
Gagnaveitan unir úrskurði
LJÓSLEIÐARAR Gagnaveita Reykjavíkur
hefur lagt ljósleiðara í hús á höfuðborg-
arsvæðinu undanfarin ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMGÖNGUMÁL Framkvæmdir við
Héðinsfjarðargöng eru komnar á
lokastig þar sem malbikun gang-
anna lauk í vikunni. Unnið er að
frágangi fyrir opnun sem verður
byrjun næsta mánaðar.
Göngin stytta leiðina milli
Siglufjarðar og Ólafsfjarðar úr
62 kílómetrum í um 15 kílómetra.
Göngin eru um 11 kílómetrar, 3,7
kílómetrar á milli Siglufjarðar
og Héðinsfjarðar og um 6,9 kíló-
metrar þaðan til Ólafsfjarðar.
Heildarkostnaður er yfir 11
milljarðar króna. - þj
Styttist í Héðinsfjarðargöng:
Malbikun gang-
anna lokið
ALÞINGI Þingmenn Hreyfingarinn-
ar leggja til að heimspeki verði
skyldufag í grunn- og framhalds-
skólum. Vilja þeir að fagið verði
kennt að meðaltali í einum áfanga
á hverju skólaári. Er tillagan við-
bragð við skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis um hrunið.
Þingmennirnir vilja jafnframt
að gerð verði stjórnsýsluúttekt
á þeim þremur ráðuneytum sem
helst komu að málum í aðdrag-
anda hrunsins. Úttektin taki sér-
staklega til samskipta við önnur
ráðuneyti og stofnanir. - bþs
Þingmenn Hreyfingarinnar:
Heimspeki
verði skyldufag
DÓMSMÁL Svandísi Svavarsdóttur
umhverfisráðherra var ekki heim-
ilt að synja aðalskipulagi Flóa-
hrepps staðfestingar fyrr á þessu
ári. Héraðs-
dómur Reykja-
víkur kvað upp
úrskurð þar að
lútandi í gær.
Svandís til-
kynnti í lok
janúar að hún
hygðist ekki
staðfesta þá
hluta skipulags-
ins sem sneru
að Urriðafossvirkjun, vegna þess
að skipulagsvinnan væri að hluta
kostuð af Landsvirkjun. Ákvörð-
unin hafði áhrif á þrjár virkjanir í
neðri hluta Þjórsár.
Dómurinn kemst að þeirri nið-
urstöðu að ekkert í skipulags- og
byggingarlögum leggi bann við
því að framkvæmdaraðili greiði
kostnað við skipulagsvinnu. - sh
LV mátti kosta skipulagsvinnu:
Svandís braut
lög með synjun
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
SPURNING DAGSINS