Fréttablaðið - 18.09.2010, Page 6

Fréttablaðið - 18.09.2010, Page 6
6 18. september 2010 LAUGARDAGUR ALÞINGI Atli Gíslason, formaður þingmannanefndar um viðbrögð Alþingis við skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis, mælti í gær fyrir þingsályktunartillögu meiri- hluta nefndarinnar um að höfða beri sakamál gegn fjórum fyrr- verandi ráðherrum. Atli rakti hvað þeim Geir H. Haarde, Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur, Árna M. Mathiesen og Björgvini G. Sigurðssyni er gefið að sök og færði rök fyrir sumum kæruefnum. Um önnur vísaði hann til greinargerðar með til- lögunni. Hann sagði málið í heild vera sér afar erfitt en undan því yrði ekki vikist. Þingleg skylda réði því að í það var ráðist. Í máli Atla kom fram að þing- mannanefndin leitaði í fyrstu til fjögurra sérfræðinga um hvort skilyrðum til málshöfðunar væri fullnægt. Þrír þeirra hafi verið þeirrar skoðunar. Þeim hafi í framhaldinu verið falið að semja drög að þingsályktunartillögu og fimmti sérfræðingurinn fenginn til að leggja á þau mat. Sá hafi gert fyrirvara við skýrleika til- tekinna atriða og lagt til úrbæt- ur. Að þeim gerðum hafi hann talið ályktunina standast. Atli tók fram að sérfræðingarnir hefðu lagt áherslu á að þeirra verk væri ráðgjöf en þingmanna að taka ákvörðun. Atli upplýsti líka að ákærurnar á hendur ráðherrunum fyrrver- andi geti breyst frá því sem þing- ið kann að ákveða. Verði tillaga um málsókn sam- þykkt mun Alþingi kjósa sak- sóknara og fimm manna þing- mannanefnd til að starfa við hlið hans. Saksóknarinn mun, lögum samkvæmt, afla sönnunargagna. „Komi fram við þessa rannsókn málsins áður en málið er þingfest fyrir landsdómi, að einhverjum kæruatriðum er ofaukið eða hrein- lega einhverjum ákærða er ofauk- ið, er þessari fimm manna þing- mannanefnd í lófa lagið að leggja fram nýja þingsályktunartillögu,“ sagði Atli. bjorn@frettabladid.is Árvekni gegn streitu og verkjum Björgvin Ingimarsson sálfræðingur Sími: 571 2681 Árangursrík aðferð gegn síþreytu, verkjum, streitu, psoriasis og kvíða. Næstu námskeið hefjast 20. sept. og 12. okt. Nánari upplýsingar: www.salfraedingur.is Láttu hjartað ráða Fæst í verslunum Hagkaups, Bónus og 10-11 · www.lífrænt.is DÓMSMÁL Kona hefur verið dæmd í þrjátíu daga skilorðsbund- ið fangelsi fyrir ærumeiðandi aðdróttanir gegn betri vitund, þar á meðal að ljúga getnaði upp á mann. Ríkssaksókari sótti málið. Konan var fundin sek um að hafa sent nafnlaust bréf í pósti fyrr á árinu til hjóna, stílað á eiginkon- una. Í því stóð að bréfritari væri samstarfskona eiginmanns henn- ar, ætti í kynferðissambandi við hann og væri þunguð af hans völdum. Í meginmáli bréfsins sagði: „Ég og C vinnum á sama stað, ég er bara á öðru sviði en hann, en þannig er mál með vexti að ég er ófrísk og veit að hann er pabbinn. Það kemur enginn annar til greina.“ Böndin bárust fljótlega að kon- unni sem nú hefur verið dæmd. Hún játaði brot sitt fyrir dómi en gat ekki gefið neinar skýringar á bréfi þessu eða ástæðum þess að hún skrifaði það og sendi. Eiginkonan krafðist einnar milljónar í bætur frá sendanda bréfsins, meðal annars vegna þess að hún hefði hrökklast úr flugum- ferðarstjóranámi vegna málsins. Konan var dæmd til að greiða 200 þúsund krónur í miskabætur. - jss Kona fundin sek um ærumeiðandi aðdróttanir gegn betri vitund: Dæmd fyrir að ljúga til um getnað HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Dómurinn dæmdi konuna til að greiða 200 þúsund krónur í miskabætur. Ráðherraákærur geta breyst við rannsókn Alþingi getur breytt kæruefnum eftir að rannsókn á meintri vanrækslu fyrrver- andi ráðherra er hafin. Fjórir af fimm sérfræðingum Atlanefndarinnar telja skil- yrðum um málshöfðanir fullnægt. Áform um gagnaleynd hleyptu upp þingfundi. Við upphaf þingfundar í gærmorgun mótmæltu þingmenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar því að þingheimur fengi ekki aðgang að gögnum sem þingmannanefndin, undir formennsku Atla Gíslasonar, bjó yfir. Voru það álit og minnisblöð sérfræðinga sem komu fyrir nefndina. Vildu þeir fresta umræðum um sjálfa þingsályktunartillöguna þar til öll gögn lægju fyrir. Nefndarmenn báru við að sérfræðingunum hefði verið heitinn trúnaður og væri það í samræmi við verklagsreglur hennar sem öllum voru ljósar. Um þetta var karpað í þrjú korter en að því búnu mælti Atli fyrir þingsályktunar- tillögunni. Að því búnu var þingfundi frestað og sest á rökstóla í fundarher- bergjum. Varð úr að trúnaði á gögnunum var aflétt gagnvart þingmönnum en fjölmiðlar og almenningur fá ekki að sjá þau. Aðgangur veittur að gögnum eftir uppnám MÆLT FYRIR ÁLYKTUN UM MÁLSÓKNIR Atli Gíslason rökstuddi tillögu meirihluta þingmannanefndar á þingi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Tuttugu milljónir í golfvöll Bæjarráð Sandgerðis hefur ákveðið að Golfklúbbur Sandgerðisbæjar fái samtals 19,5 milljóna króna styrk vegna gerðar átján holu golfvallar. Þegar hafa verið greiddar fimmtán milljónir. SANDGERÐI Mátti slátra í sendibíl Hæstiréttur hefur staðfest sýknu- dóm yfir þremur mönnum sem voru ákærðir fyrir ólögmæta sauðfjárslátr- un. Fólkinu var gefið að sök að hafa slátrað nítján lömbum í gámi og í sendibíl á Vesturlandi í september á síðasta ári. Það kvað kjötið ætlað til einkaneyslu og var sýknað. DÓMSMÁL Kannabis og klám Lögreglan stöðvaði nýverið kannabis- ræktun í fjölbýlishúsi í austurborginni. Við húsleit fundust um sextíu kanna- bisplöntur á lokastigi ræktunar. Um mjög fullkomna ræktun var að ræða. Á sama stað var einnig lagt hald á fartölvu með óviðeigandi myndefni. Karlmaður á fertugsaldri hefur verið yfirheyrður vegna rannsóknar málsins. Fjögur hundruð plöntur Þá stöðvaði lögregla kannabisrækt- un í húsi í Árbæ nýverið. Við húsleit fundust tæplega fjögur hundruð kannabisplöntur. Þrír karlmenn á þrítugsaldri voru handteknir. LÖGREGLUFRÉTTIR BELGÍA, AP Nicolas Sarkozy Frakk- landsforseti átti í hörkurifrildi við aðra leiðtoga Evrópusam- bandsríkjanna á leiðtogafundi þeirra í Brussel í gær. Sarkozy var afar ósáttur við gagnrýni Evrópusambandsins á aðgerðir franskra stjórnvalda gegn sígaunum, eða rómafólki eins og þeir nefna sig sjálfir. Sérstaklega gagnrýndi Sar- kozy að Vivane Reding, sem fer með dómsmál í framkvæmda- stjórn ESB, hafi líkt brottflutn- ingi rómafólks frá Frakklandi við útrýmingarherferð nasista á hendur gyðingum. - gb Spenna á leiðtogafundi: Hávaðarifrildi við Sarkozy TVEIR FORSETAR Á LEIÐTOGAFUNDI Nicolas Sarkozy frá Frakklandi og Traian Barescu frá Rúmeníu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Eiga sveitarfélögin á höfuðborg- arsvæðinu að kaupa snjófram- leiðslutæki fyrir Bláfjöll? Já 41% Nei 59% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ertu ánægð(ur) með niðurstöðu Hæstaréttar varðandi gengis- tryggð lán? Segðu skoðun þína á Visir.is. STJÓRNMÁL Það er rangt að breyt- ingar á útlánareglum Íbúðalána- sjóðs árið 2004 hafi ráðið úrslitum um þenslu í hagkerfinu. Bankarnir bera þar höfuðábyrgð. Þetta segja þrír fyrrum ráð- herrar Framsóknarflokksins – hver í sínu lagi – í bréfum til þing- mannanefndarinnar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Í skýrslunni segir að breyting- arnar, sem gerðar voru í framhaldi af kosningaloforði framsóknar- manna 2003, hafi verið þenslu- hvetjandi og með stærri hagstjórn- armistökum. Jón Sigurðsson, Jónína Bjart- marz og Valgerður Sverrisdóttir mótmæla þessu. Valgerður segir að þegar lögum um sjóðinn hafi verið breytt hafi bankarnir þegar lánað um 180 milljarða króna í nýjum fasteignalánum. Bætir hún við að innkoma bankanna á mark- aðinn hafi fyrst og fremst haft þann tilgang að „reyna að gera út af við Íbúðalánasjóð“. Jónína bendir á að á átján mánaða tímabili hafi bankarnir veitt rúma 300 milljarða til íbúðalána. Þau hafi ekki verið einskorðuð við kaup eða byggingu íbúðahúsnæðis held- ur „fóru að stórum hluta í neyslu og aðrar fjárfestingar“. „Viðskiptabankarnir réðu alger- lega úrslitum um framvindu mála á íbúðalánamarkaði,“ segir Jón. - bþs Mótmæla fullyrðingum um hlut Íbúðalánasjóðs í þenslunni og benda á bankana: Framsóknarmenn verjast ásökunum VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR JÓNÍNA BJARTMARZJÓN SIGURÐSSON DÓMSMÁL Á þriðja hundrað manns hefur tilkynnt þátttöku sína í hóp- málsókn Samtaka lánþega gegn fjármálafyrirtækjum, að því er Guðmundur Andri Skúlason, for- maður samtakanna, sagði í frétt- um Stöðvar 2 í gær. Þar sagði Guðmundur að viðskiptaráðherra gæti ekki sett lög sem berði niður rétt lánþega. Enn fremur samþykkti stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna einróma á fundi sínum í gær að leita til eftirlitsstofnunar EFTA, vegna niðurstöðu Hæstaréttar. - sh Óánægð hagsmunasamtök: Hópmálsókn í undirbúningi KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.