Fréttablaðið - 18.09.2010, Side 10

Fréttablaðið - 18.09.2010, Side 10
 18. september 2010 LAUGARDAGUR10 Enginn ráðherranna fjög- urra sem meirihluti þing- mannanefndar telur hafa brotið lög í embætti á árinu 2008 kannast við slíkt. Þvert á móti vísa þeir öllum slíkum ásökunum út í hafs- auga. Sem kunnugt er komst meirihluti þingmannanefndar undir forystu Atla Gíslasonar að þeirri niðurstöðu að Árni M. Mathiesen, Björgvin G. Sigurðsson, Geir H. Haarde og Ingi- björg Sólrún Gísladóttir hafi gerst sek um refsiverða háttsemi í emb- ættisfærslu þeirra á árinu 2008. Í því ljósi beri að höfða gegn þeim sakamál fyrir landsdómi. Til grundvallar liggur fyrst og fremst skýrsla rannsóknarnefnd- ar Alþingis (RNA) en önnur gögn að auki. Í erindum til þingmannanefnd- arinnar röktu fjórmenningarnir sjónarmið sín til ávirðinga sem á þá voru bornar í skýrslu RNA eða annars þess sem um þá var sagt. Í stuttu máli má segja að þeir tæti í sig ásakanir um vanrækslu í starfi og færa ýmis rök máli sínu til stuðnings. Útskýringar á lagaumhverfi, starfsháttum og einstökum aðgerð- um í aðdraganda hrunsins eru meg- inefni málsvarna þeirra en þrír af fjórum vísa til síðari tíma atburða. Nefnilega þess að umfangsmiklar rannsóknir standa nú yfir á hátt- erni eigenda og stjórnenda bank- anna, bæði innan búa þeirra og hjá saksóknara. Geir, Árni og Ingibjörg vísa til þess en Björgvin ekki. Ábyrgð í ljósi afbrota Geir segir að vísbendingar séu uppi um að umfangsmikil brotastarfsemi hafi átt sér stað innan fjármálageir- ans og víðar í viðskiptalífinu. Yfir- völdum og forystumönnum í stjórn- málum hafi með öllu verið ókunnugt um þau mál. „Virðist nú blasa við að veiking bankanna innan frá hafi ekki verið minna vandamál en stærð þeirra í hlutfalli við efnahag þjóðarinnar. Það segir sig sjálft að ráðamenn hefðu ekki reynt að lið- sinna fjármálafyrirtækjunum með þeim hætti sem gert var hefðu þeir haft grun um að innan þeirra ætti sér stað athæfi sem ekki þyldi dags- ins ljós,“ segir Geir. Enn fremur blasi við að ábyrgð endurskoðenda sé mikil. Ingibjörg segir að fram hafi komið sterkar vísbendingar um að eigendur og stjórnendur bank- anna hafi gerst sekir um alvarleg brot sem virðast hafa farið fram hjá öllum sem áttu að hafa eftir- lit með starfseminni. „Þegar mál eru skoðuð í því ljósi verður heldur ankannalegt að telja að ég hafi haft einhverja þá vitneskju eða afl sem þurfti til að forða fjármálakerfinu frá falli.“ Árni segir ásakanir um meinta vanrækslu ráðherra vera veik- burða og ósanngjarnar í ljósi þeirra umfangsmiklu rannsókna sem nú fara fram. „Sé staðan sú, eins og margt virðist benda til, að glæpsam- legt athæfi í bönkunum og yfirhylm- ing þess hafi gert eftirlitsaðilum (FME og Seðlabanka) ómögulegt að átta sig á hinni raunverulegu stöðu og þar með leitt til þess að viðkom- andi ráðherrum (viðskr. og forsæt- isr.) var gefin röng mynd af stöð- unni, hver ber þá ábyrgðina? Getur ráðherra (að ég tali nú ekki um ráð- herra sem ekki ber ábyrgð á við- komandi málaflokki) borið ábyrgð og sætt ákæru refsiréttarlegs eðlis vegna meintrar vanrækslu sem á rót sína í hugsanlega glæpsam- legu athæfi þriðja aðila sem ekki komst upp fyrr en að atburðarásinni afstaðinni? Ég tel ekki og vona að þingmannanefndin sé mér sammála um það,“ segir Árni. Margt var gert Fyrsta kæruatriði meirihluta þing- mannanefndarinnar í tilvikum ráð- herranna allra er, saman dregið, að þeir hafi ekki brugðist með full- nægjandi hætti við stórfelldri hættu sem vofði yfir fjármálastofnunum og ríkissjóði til að afstýra fyrirsjá- anlegri hættu fyrir heill ríkisins. Geir Haarde svarar sambæri- legum ásökunum RNA á ellefu blaðsíðum, sendum þingmanna- nefndinni. Rekur hann margvís- legar aðgerðir sem stjórnvöld réðust í til að afstýra því að illa færi. Gjaldeyrisvarasjóður hafi verið efldur, unnið hafi verið að því að koma Icesave í dótturfé- lög, áhersla hafi verið lögð á að bankarnir minnkuðu efnahags- reikninga sína, reynt hafi verið að tryggja aðild að samstarfi Evr- ópuríkja um fjármálastöðugleika og upplýsingamiðlun út á við hafi verið bætt. Allt hafi það snúist um að reyna að afstýra því að illa færi án þess að orsaka áhlaup á bank- ana. Kveðst Geir telja að róttækar breytingar á lagaumhverfi bank- anna á árinu 2008 hefðu hiklaust getað valdi hruni þeirra með því að gefa almenningi og mörkuðum til kynna að þeir ættu í stórfelld- um erfiðleikum. Geir bendir líka á yfirlýsingar eftirlitsaðila. Í maí 2008 hafi Seðla- bankinn sagt að á heildina litið væri fjármálakerfið í meginatriðum traust og í ágúst hafi Fjármálaeft- irlitið sagt niðurstöður álagsprófs sýna að undirstöður bankanna væru traustar og eiginfjárstaða þeirra sterk. „Ég tók fullt mark á álags- prófum FME og niðurstöður prófs- ins í ágúst 2008 léttu af mér veru- legum áhyggjum. RNA gerir hins vegar margs konar athugasemd- ir við þessi próf og telur þau hafa verið gölluð. Um það höfðu ráðherr- ar enga vitneskju enda byggir sú niðurstaða á rannsóknum nefndar- innar í kjölfar hrunsins.“ Logið að forsætisráðherra Geir er sakaður um að hafa ekki látið vinna heildstæða greiningu á fjárhagslegri áhættu ríkisins vegna hættu á fjármálaáfalli. Segir hann að hvað sem öllum upp- lýsingum hefði liðið hefði slíkt mat engin áhrif haft til að koma í veg fyrir hrun bankanna. Þá er hann sakaður um að hafa vanrækt að hafa frumkvæði að virkum aðgerð- um til að draga úr stærð bank- anna. Segir Geir það hafa verið skýrt markmið stjórnvalda en þau ekki haft mörg tæki til að beita í því efni. Auðvelt sé að gera um það ágreining eftir á þegar ljóst sé að markmiðið náðist ekki í tíma. Í lokaorðum segir Geir: „Ég hef varið mörgum árum í störf á vett- vangi stjórnmála og kynnst þar mörgu fólki. En ég hef ekki átt því að venjast að mér sé vísvitandi sagt ósatt um mikilvæg mál hvað þá að málsmetandi ábyrgðarmenn stórra fyrirtækja geri sig seka um slíkt gagnvart forsætisráðherra. Slíku hafði ég ekki kynnst fyrr en í aðdraganda bankahrunsins og gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en eftir á.“ Vissu ekki Í athugunum á aðgerðum stjórn- valda í aðdraganda hrunsins hefur meðal annars verið reynt að finna út hver vissi hvað hvenær. Björg- vin og Ingibjörg víkja bæði að þeim málum. Björgvin segir hreint út að honum hafi verið haldið utan við atburðarás er varðaði efnahagsmál- in. „Það hlýtur að vera óumdeilt að enginn getur tekið afstöðu til upp- lýsinga sem hann hefur ekki undir höndum. Og enginn getur sýnt af sér vanrækslu með athafnaleysi með því að bregðast ekki við upplýsing- um sem fram koma á fundum sem hann veit ekki af,“ segir hann. Ingibjörg tíundar hins vegar ýmis gögn og upplýsingar sem varða efna- hagsmál sem haldið var frá henni en hún telur eðlilegt að hefðu ratað til ríkisstjórnarinnar eða hennar sem oddvita annars stjórnarflokksins. Það hafi ekki verið fyrr en á þessu ári að hún hafi vitað af tilvist þeirra. En Ingibjörg upplýsir líka að í fram- haldi funda með stjórn Seðlabank- ans hafi hún rætt það sem þar fór fram á þingflokksfundum Samfylk- ingarinnar, sérstökum fundum ráð- herra flokksins og í hagráði hans. Málsvörn fyrir landsdómi Fari svo að Alþingi samþykki að ákæra ráðherrana fyrrverandi verður landsdómur kallaður saman. Fyrir honum munu þeir flytja eigin- lega málsvörn og njóta liðsinnis lög- manna. Þar verður ákæruatriðun- um svarað lið fyrir lið, án efa með mun ítarlegri hætti en í bréfunum til þingmannanefndarinnar. Málsvörn ráðherranna FRÉTTASKÝRING: Fyrrverandi ráðherrar vísa á bug ásökunum um vanrækslu Björn Þór Sigbjörnsson bjorn@frettabladid.is GEIR H. HAARDE INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR ÁRNI M. MATHIESEN BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON Á annarra könnu Árni, Björgvin og Ingibjörg eiga það sammerkt að vísa margvíslegum ásökum á bug með þeim rökum að viðkomandi mál hafi ekki heyrt undir þau. Ingibjörg segist í bréfi sínu til þingmannanefndarinnar mjög ákveðið þeirrar skoðunar að sem utanríkisráðherra hafi hún hvorki með athöfnum né athafnaleysi átt þátt í hruni fjármálakerfisins né heldur hefði hún getað komið í veg fyrir fall þess. Hún hafi ekki haft forræði á málum sem tengdust fjármálakerfinu eða hagstjórninni. Björgvin segir að FME hafi, lögum sam- kvæmt, farið með eftirlit með fjármálamörkuðum og viðskiptaráðherranum beinlínis verið óheimilt að aðhafast nokkuð í þeim efnum. Að sama skapi segir hann það hafa verið í verkahring FME og Seðlabankans að greina fjár- hagslega áhættu ríkisins en hann er ásakaður um að hafa vanrækt að láta meta þá áhættu. Þá hafi forsætisráðherra haft óskorað forræði í málum sem vörðuðu hugsanlegan efnahagslegan óstöðugleika. Geir Haarde hafi kosið að hafa pólitískt samráð við Ingibjörgu Sólrúnu í þeim málum en ekki hann, sem hafi verið ókunnugt um margt sem fram fór. Grunnstefið í málsvörn Árna Mathiesen er að fæst af því sem snýr að bankahruninu hafi legið innan ábyrgðarsviðs fjármálaráðherra. Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is Tími viðskiptavina okkar er dýrmætur. Samkvæmt mælingum í ágúst svaraði þjónustuver MP banka 98% tölvupósta sem bárust fyrir kl. 16 samdægurs. Svarar bankinn þinn tölvupósti samdægurs? Brynja Þorkelsdóttir viðskiptastjóri Ármúla Sendu okkur línu á thjonusta@mp.is og skiptu yfir í betri bankaþjónustu. – eins og banki á að vera F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.