Fréttablaðið - 18.09.2010, Side 26

Fréttablaðið - 18.09.2010, Side 26
26 18. september 2010 LAUGARDAGUR FRAMHALD Á SÍÐU 28 Þ að er rétt hjá Andra Snæ Magnasyni að það getur oft verið gagnlegt til að varpa ljósi á hlutina að tala um þá á útlensku. Prófið til dæmis að segja erlend- um viðmælanda ykkar frá því að gnægð náttúruauðlinda sé slík á Íslandi (hlutfallslega) að landið sé eitt ríkasta land heims. Segið sama manni að við eigum við stórkostlega efnahagslega erfiðleika að stríða og það sé hópur fólks sem ekki vilji nýta þessar auðlindir til hagsbóta fyrir alla Íslendinga. Haldið áfram og segið frá því að fyrir nokkr- um árum hafi verið reist orku- og álver sem nú skapi um fimmtung útflutningstekna landsins og að það sé til fólk á Íslandi sem finnist það vera klikkun. Haldið enn áfram og segið frá því að alþjóðafyrirtæki á Íslandi séu sögð dónar, þau séu sögð tengd spillingu og hugsan- lega mafíunni líka. Eflaust myndi útlendingurinn hrista hausinn yfir þessu öllu saman og segja að þetta væri ekki eðlileg hugmyndafræði. En ég myndi segja á móti: á öllum málum eru minnst tvær hliðar og að tala bara um eina sé ómerkileg- ur áróður! Hér er hin hliðin á pen- ingi Andra Snæs. Hagvaxtarhyggja Það er rétt hjá Andra Snæ; það er til mælikvarði á alla hluti. Sá mæli- kvarði sem hagfræðingar nota á ríkidæmi þjóða er landsfram- leiðsla á mann og vöxtur hennar. Hagvöxtur er því mælikvarði á hve ríkidæmið eykst mikið milli ára. Landsframleiðsla er samsett úr nokkrum liðum: fjárfestingu, einkaneyslu, samneyslu og mun- inum á útflutningi og innflutn- ingi (sem í daglegu tali er kallaður vöruskiptajöfnuður). Þessi fram- setning er kölluð því stofnanalega heiti: ráðstöfunaruppgjör vergrar landsframleiðslu. Augljóst er að ef ein- hver áðurgreindra liða vex, þá mælist hag- vöxtur. Ef til að mynda peningum er ráðstaf- að til að kaupa bens- ín á sjúkrabílinn sem nær í sjúklinginn þá er verið að bæta við sam- neysluna ef ríkið rekur bílinn – en einkaneysl- una ef einkaaðili rekur hann. Það hefur bæst við landsframleiðsl- una, það hefur orðið hagvöxtur. Ef hins- vegar ég fer út í garð og næ mér í ber til að sulta (án kostnaðar) þá hefur ekki átt sér stað nein ráðstöfun peninga og þar af leiðandi hefur ekki orðið neinn hag- vöxtur. Annað dæmi er um ráðskonuna sem giftist bóndanum. Fyrir giftingu var hún á laun- um en á eftir er vinnan framlag til heimilis- ins. Ráðskonan datt út af þjóðhagsreikning- unum við giftinguna án þess að hafa breytt vinnulagi sínu á nokkurn hátt. Þetta finnst mörgum dularfullt og til marks um gagnleysi mælikvarðans lands- framleiðsla. En af hverju er hagvöxtur eftir- sóknarverður? Það er af þeirri ein- földu ástæðu að við viljum efnahags- legar framfarir til handa íbúunum. Ef við til að mynda viljum bæta kjör öryrkja þá eykst samneyslan og það mælist hagvöxtur. En það verður að afla peninganna sem ráðstafa á í örorkubæturnar og til þess þurfum við að framleiða. Ef fram- leiðsla vex ekki þá getum við ekki bætt kjör öryrkjans nema taka frá einhverju öðru. Þess vegna þurf- um við að framleiða meira í dag en í gær. Þannig bætum við lífs- kjörin. Ekki með því að skipta tekjunum upp á nýtt með endurdreif- ingu um skattkerfið eins og sumir virðast halda. Víkur þá sögunni að útflutningi og innflutn- ingi. Ástæðan fyrir því að við viljum flytja út vörur og þjónustu er að við viljum afla peninga til að flytja inn vörur og þjónustu. Íslending- ar geta ekki framleitt allt það sem nútíma- lifnaðarhættir krefj- ast. Við getum til að mynda ekki framleitt bíla, flugvélar og sjón- varpstæki með hag- kvæmum hætti. Þess vegna flytj- um við inn. Til þess að geta flutt inn bíla, sjónvarpstæki og flugvél- ar flytjum við út fisk, þjónustu við ferðamenn, ál, hugvit, járnblendi og tölvuleiki. Hlutfallslegir yfirburðir Fyrir rúmum 200 árum benti hinn merki hagfræðingur David Ricardo á hin augljósu sannindi – að því er virðist fyrir nútímamanninn – um hlutfallslega yfirburði þjóða. Við Íslendingar gætum auðvitað sleppt því að flytja inn bíla og framleitt þá sjálfir. En það væri í meira lagi óhagkvæmt. Þess vegna framleið- um við það sem við erum góð í að framleiða: fisk og orku, seljum á heimsmarkaði og notum afrakst- urinn til að skipta við þjóðir sem hafa hlutfallslega yfirburði í að framleiða eitthvað sem við sækj- umst eftir. Þessi einfalda staðreynd er grunnurinn að því hvers vegna við stundum alþjóðaviðskipti. Því frjálsari sem þessi viðskipti eru því betur fá að njóta sín hlutfalls- legir yfirburðir þjóða og því meiri er efnahagsleg velferð íbúanna. Ísland er óvenju ríkt að náttúru- auðlindum. Þannig eru ein gjöful- ustu fiskimið heims innan lögsögu okkar, mikil orka er í fallvötnum og í iðrum jarðar og náttúrufegurð og fjölbreytni er með slíkum ein- dæmum að útlendingar eru tilbún- ir til að leggja á sig löng ferðalög til að njóta íslenskrar náttúru. Við höfum lengi verði fiskútflytjend- ur, orku höfum við flutt út allt frá því á sjöunda áratugnum og stöðugt fleiri ferðamenn leggja leið sína til landsins. Það er vegna hlutfalls- legra yfirburða sem við framleið- um hlutfallslega mikið af orku og veiðum hlutfallslega mikinn fisk. Við framleiðum 0,1 prósent þeirrar raforku sem framleidd er í heimin- um og við veiðum 1,7 prósent þess fisks sem er veiddur í heiminum. Afraksturinn (virðisaukann) af þessum útflutningi höfum við síðan notað til einkaneyslu, samneyslu og fjárfestingar, sem almennt hefur verið Íslendingum til hagsbóta á undanförnum áratugum. Nú er það svo að ódýrasta leið- in til að flytja út orku og fá fyrir það gjaldeyristekjur (sem við getum síðan notað til að flytja inn það sem okkur vanhagar um) er að nota hana til að bræða saman súrál og kolefni svo úr verði ál. Við flytj- um inn súrál og kolefni en ál út. Munurinn á innflutningi hráefna Alkemistinn Við bætum lífskjörin með því að framleiða meira í dag en í gær segir Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður í grein þar sem hann svarar grein rithöfundar- ins Andra Snæ Magnasonar sem birtist í Fréttablaðinu um síðustu helgi. RÆTT UM LAND HINNA KLIKKUÐU KARLMANNA Tryggvi Þór Herbertsson og Andri Snær Magnason sátu í pallborði á Háskólatorgi í gær þar sem rætt var um orkumál og atvinnustefnu. Kveikja umræðunnar var grein Andra Snæs sem birtist í helgarblaði Fréttablaðsins síðustu helgi og Tryggvi Þór svarar hér á síðunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Lónsstæðið er 4,9 ferkílómetrar um 8 km sunnan við friðlandið í Þjórsárverum. Um 0,2 ferkílómetrar gróins lands fara undir vatn við gerð miðlunarlónsins sem er annars að mestu í árfarveginum. Miðlunin eykur framleiðslugetu virkjana sem þegar eru í Þjórsá um 635 mega- vattstundir sem jafngildir um einni Búðarhálsvirkjun. Ef fram- leiðsla vex ekki þá get- um við ekki bætt kjör ör- yrkjans nema taka frá ein- hverju öðru. Þess vegna þurfum við að framleiða meira í dag en í gær. ■ NÝJASTA ÚTGÁFA NORÐLINGAÖLDUVEITU

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.