Fréttablaðið - 18.09.2010, Page 83

Fréttablaðið - 18.09.2010, Page 83
LAUGARDAGUR 18. september 2010 51 Fjölbreytileg tíska í New York Það var mikið um dýrðir á nýyfirstaðinni tískuviku í New York og kenndi þar ýmissa grasa, lína Ralphs Lauren einkenndist af nútímalegum kúrekastíl á meðan Anna Sui sótti innblástur til hippatímabils- ins. Ungir hönnuðir sýndu einnig hönnun sína og þótti Phillip Lim meðal annars bera af með látlausri hönnun sinni. PHILLIP LIM Kínversk-ættaði hönnuðurinn Phillip Lim þykir efnilegur hönnuður og klæðskeri líkt og hönnun hans ber vitni um. NORDICPHOTOS/GETTY ANNA SUI Fallegur, fjaðraskreytt- ur kjóll frá Önnu Sui. REED KRAKOFF Smekkleg og þægileg buxnadragt frá nýliðanum Reed Krakoff. MILLY BY MICHELLE SMITH Blómleg kápa sem ætti að vekja athygli hvar sem er. Hallveig efh. í Reykholti Síðustu sumarsýningar: Laugardaginn 18.september kl. 17:00 Laugardaginn 25.september kl. 17:00 Miðapantanir í síma 690 1939 eða bókað í gegnum heimasíðu á www.hallveig.sida.is Vefsíðan Style.com valdi tíu eftir- minnilegustu tískusýningar ára- tugarins nú þegar fyrsta áratug 21. aldarinnar fer að ljúka. Efst trón- ir haustlína Hussein Chalayan fyrir árið 2000, en sú þótti tæknilegt undur á sínum tíma. Næst kom vorlína hönnuð- urins Marcs Jacobs árið 2002 sem heill- aði tískuspekúlant- ana upp úr skónum og því næst haust- lína Lanvins fyrir árið 2002, en sú þótti afskaplega smekkleg. Haustlína Balenc- iaga árið 2007 kemst einnig á listann og þótti mjög fjölmenningarleg og glæsileg. Flottustu fatalínurnar BALENCIAGA Haustlína Bal- enciaga árið 2007 þykir með flottustu línum áratugarins. Það hefur ekki farið fram hjá nein- um tískuspekúlöntum að tískuvik- urnar eru hafnar og tíska kom- andi árs farin að birtast í net- heimum. Einn umtalaðasti hönnuður síð- asta árs, Alex- ander Wang, sýndi sumar- línu sína í vik- unni og vakti það athygli að ætla mátti að fyrisætur hans væru löðursveittar, því þær glönsuðu allar. Hingað til hefur glansandi húð ekki þótt fínt en ef marka má tískufrumkvöðulinn Wang verður slíkt útlit aðalmálið árið 2011. Glansandi Wang EKKERT PÚÐUR?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.