Fréttablaðið - 08.10.2010, Qupperneq 18
18 8. október 2010 FÖSTUDAGUR
Forkostuleg og ósanngjörn umræða hefur farið fram í
fjölmiðlum um ráðningu skrif-
stofustjóra í landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðuneyti. Hún er
ósanngjörn vegna þess að sá
sem ráðinn var í stöðuna hefur
ekki verið látinn njóta sannmæl-
is. Jóhann Guðmundsson heitir
maðurinn. Hann hefur starfað í
aldarfjórðung í stjórnsýslunni,
þar af í ellefu ár sem skrifstofu-
stjóri í samgönguráðuneytinu. Í
fjögur ár var hann einn af full-
trúum stjórnarráðsins í Brussel.
Hann hefur m.a. haft þann starfa
að undirbúa lagafrumvörp í land-
búnaðar- og sjávarútvegsráðu-
neyti og verið aðstoðarmaður
tveggja ráðherra. Meðal annars
vegna þessarar reynslu sinnar,
auk þess sem hann hefur tilskilda
menntun, var Jóhann metinn hæf-
astur af starfsmönnum dómsmála-
ráðuneytisins, sem fóru yfir
málið. Reynsla Jóhanns og þekk-
ing réð þar mestu um en þess skal
getið að margir hæfir einstakling-
ar voru um hituna. Þrátt fyrir það
var niðurstaðan afgerandi. Rökin
voru sannfærandi fyrir þessari
niðurstöðu og var Jóhann ráðinn á
grundvelli hennar.
Tími húsmennsku er liðinn!
Nú kemur að hinni forkostu-
legu hlið þessa máls. Jóhann
hefur verið aðstoðarmaður
tveggja ráðherra. Á þeirri for-
sendu leggja nú ýmsir kapp á
að tortryggja ráðningu hans.
Um það vil ég segja tvennt.
Jóhann Guðmundsson er ekki,
alla vega svo ég viti til, skráður
í neinn stjórnmálaflokk. Í öðru
lagi hefði það ekki átt að útiloka
hann jafnvel þótt svo væri. Tími
„húsbænda og hjúa“ er liðinn
– eða á að vera það. Aðstoðar-
menn ráðherra eru ekki verk-
færi þeirra heldur sjálfstæðir
einstaklingar sem á að meta
sem slíka og láta þá ekki gjalda
starfa sinna þótt þau tengist
stjórnmálamönnum. Slíkt væri
í anda McCarthys, bandaríska
öldungadeildarþingmannsins,
sem á tíma Kalda stríðsins ham-
aðist gegn öllum sem grunur lék
á að hefðu vinstri sinnaðar skoð-
anir og varð frægur að endem-
um. Eða Berufsverbot í Þýska-
landi eftirstríðsáranna, sem lét
félagslega þenkjandi fólk gjalda
skoðana sinna. Nú er þessu ekki
einu sinni fyrir að fara. Heldur
er það gert tortryggilegt að
umsækjandi um stöðu starfaði
með einstaklingum með tiltekn-
ar skoðanir!
Sama niðurstaða
Ýmsir hafa orðið til að leggja orð
í belg í þessari umræðu. Þannig
segir prófessor við Háskóla
Íslands í fréttum RÚV að slæmt
sé að ráðherrar hafi „afskipti“
af ráðningum. Nokkrir fjöl-
miðlamenn dylgja um annarleg
sjónarmið. En hvaða „fagfólk“
vilja þeir að hafi ráðningarvald-
ið? Prófessorar? Ráðningar-
skrifstofur? Eða er það kannski
í lagi að stjórnmálamenn, sem
þurfa öðrum fremur að standa
skil gerða sinna, hafi ábyrgð-
ina á hendi? Að mínu mati er
það vinnsluferlið og niður staðan
sem endanlega skiptir máli. Eða
snýst ekki spurningin um að rétt
sé að verki staðið? Að niðurstað-
an sé sanngjörn? Að allir njóti
sannmælis? Umsækjandinn, og
kannski líka stöðuveitandinn
– jafnvel þótt hann sé stjórn-
málamaður? Hefði Jóhann Guð-
mundsson sloppið við ómaklegar
dylgjur ef starfsmenn dóms-
málaráðuneytisins hefðu ráðið
hann til starfa án milligöngu
minnar? Niðurstaðan hefði verið
hin sama.
Skiljanleg gagnrýni
En hvað veldur gagnrýninni?
Hún er ekki einskorðuð við
skrif í prentmiðlum eða frétt-
ir í fjölmiðlum. Hún nær miklu
víðar og birtist til dæmis víða í
bloggheimum. Mín tilfinning er
sú að verið sé að gagnrýna mis-
munun og leyndarhyggju sem
viðgengist hefur til margra
ára og áratuga. Þótt það sé
þessi ráðning sem gagnrýn-
in beinist nú að, þá þykir þeim
sem gagnrýna hana hún vera
dæmigerð um það sem við-
gengist hefur um langan aldur,
leyndar hyggju og pólitíska
mismunun. Krafan nú er um
gerbreytt vinnubrögð hvað
þetta varðar, nokkuð sem ég
get tekið undir. Þá er viðfangs-
efnið þetta: Hvernig má tryggja
að allir fái notið sannmælis, og
þá ekki síst sá sem sækir um
stöðu og hlýtur hana? Hvernig
á að haga málum þannig að pól-
itísk ábyrgð sé fyrir hendi en
byggð á eðlilegu og sanngjörnu
mati? Viðfangsefnið er að eyða
tortryggni þar sem hún á ekki
heima. Fyrsta skrefið er að
þeir sem hafa ráðningarvaldið
á hendi séu reiðubúnir að ræða
málin opinskátt og bregðist við
gagnrýni. Þetta greinarkorn er
viðleitni í þá átt.
Brugðist við gagnrýni
Opinberar ráðningar
Ögmundur
Jónasson
mannréttindaráðherra
Viðfangsefnið er að eyða tortryggni þar sem hún á ekki heima.
Fyrsta skrefið er að þeir sem hafa ráðningarvaldið á hendi séu
reiðubúnir að ræða málin opinskátt.
Taktu þátt í ljósmyndasamkeppni Fr
éttablaðsins og þú átt möguleika á þ
ví að komast á forsíðu næsta helgar
blaðs
og vinna glæsileg verðlaun. Þema m
yndarinnar er „Fólk um haust“.
Sigurvegarinn fær gjafabréf fyrir tvo
til einhvers af áfangastöðum Icelan
d Express í Evrópu auk þess sem sigu
rmyndin
verður á forsíðu Fréttablaðsins lauga
rdaginn 9. október. Verðlaun fyrir an
nað og þriðja sæti eru gjafakort frá
Þjóðleikhúsinu fyrir tvo á almenna sý
ningu.
Myndir skal senda á ljosmyndakeppn
i@frettabladid.is, til hádegis föstud
aginn 8. október.
Hver ljósmyndari má senda eina myn
d inn, fyrsta myndin gildir.
Tilkynnt verður um val forsíðumynd
arinnar um miðjan dag á föstudag.
Prýðir þín mynd
forsíðuna um helgina?
www.visir.is/ljosmyndasamkeppni
AF NETINU
Nýta þarf sambönd
Fundur Bjarna Benediktssonar
með David Cameron er af hinu
góða. Við Íslendingar þurfum að
nýta okkur öll þau sambönd og
áhrif sem við getum haft erlendis í
okkar málum.
Vonandi hefur Bjarni komið því til
skila til Camerons hve ósanngjarnt
það er að hver íslenskur skattborg-
ari sé krafinn um 25 sinnum hærri
upphæð en breskur skattborgari
vegna máls sem siðferðilega er á
ábyrgð stjórnvalda beggja þjóða,
burtséð frá lagatæknilegum
atriðum.
omarragnarsson.blog.is
Ómar Ragnarsson
Óvenjulega tækifæris-
sinnaður
Sigmundur Ernir Rúnarsson er
óvenjulega tækifærissinnaður
þingmaður. Hlustar vel á lands-
byggðarvæl og neitar að samþykja
niðurskurð í kjördæmi sínu. Gott
dæmi um Ekki-ég úr Litlu gulu
hænunni. Er ósáttur við friðun
Þjórsárvera, því að þar gæti verið
gott að hafa virkjun. Ég held hann
eigi heima í sönnum stóriðju- og
landsbyggðarflokki, Sjálfstæðis-
flokknum. Hann sé bara fyrir sögu-
lega tilviljun í Samfylkingunni sem
er meira úr hverfi 101. Í Flokknum
fengi hann sálufélag ábyrgðarleys-
is við Jón Gunnarsson og Ásbjörn
Óttarsson. Hótar nú að hætta að
styðja stjórnina. Ætti sem fyrst að
láta verða af því.
jonas.is
Jónas Kristjánsson