Fréttablaðið - 08.10.2010, Qupperneq 20
8. október 2010 FÖSTUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
„Ég geri mér yfirleitt einhvern daga-
mun á afmælinu mínu og í kvöld ætla
ég á sinfóníutónleika með góðum
vinum og út að borða,“ segir Bryndís
Hlöðversdóttir, aðstoðarrektor Sam-
vinnuháskólans á Bifröst, þegar Frétta-
blaðið forvitnast um afmælisplönin en
Bryndís er fimmtug í dag.
Tvíburasynir Bryndísar eiga afmæli
á morgun og undanfarin 13 ár segir
Bryndís afmælisdaginn yfirleitt hafa
farið í undirbúning fyrir daginn þeirra.
Hún sé fjölskyldumanneskja og dreng-
irnir séu hennar stærsta afrek þegar
hún lítur um öxl. Sem hún gerir gjarn-
an á stórafmælum.
„Ég lít um öxl sátt við guð og menn.
Börnin manns skipta mestu máli og
svo það að vera samferða sjálfum sér
í lífinu og við góða heilsu. Ég hef einn-
ig borið gæfu til þess að starfa við það
sem ég hef áhuga á,“ segir Bryndís en
hún sat á þingi frá árinu 1995 til 2005.
Hún segir það skemmtilegan tíma og
ævintýri sem hún sá ekki fyrir. Hún
sakni þó ekki atgangsins í pólitíkinni.
„Nei ég var mjög sátt þegar ég tók
þá ákvörðun að hætta. Þetta eru ekki
öfundsverð verkefni sem alþingis-
menn standa frammi fyrir í dag. Ég
gerðist deildarstjóri lagadeildar við
Samvinnuháskólann á Bifröst þegar
ég hætti í stjórnmálum árið 2005 og
er nú aðstoðarrektor skólans. Það er
mjög skemmtilegt að starfa í háskóla-
umhverfinu og gaman að fylgjast með
ungu fólki fara út í lífið.“
Bryndís fæddist á Selfossi og bjó
fyrstu tíu æviárin í Vestur-Landeyjum
þar sem foreldrar hennar voru með
búskap. Hún ólst upp í stórri fjöl-
skyldu, á 8 systkini og segir líf og fjör
hafa einkennt æskuheimilið. Árið 1970
flutti fjölskyldan í Kópavoginn sem
hún kennir sig við.
„Ég hef ákveðnar taugar í sveit-
ina en sterkari í Kópavoginn. Ég bjó
þar til rúmlega tvítugs og tel mig
Kópavogsbúa ef einhver spyr,“ segir
Bryndís, sem í dag býr með drengjun-
um sínum í Borgar nesi. „Við bjuggum í
Vesturbænum og fyrsta árið á Bifröst
keyrði ég á milli. Þegar ég sá hús til
sölu á besta stað í Borgarnesi stökk ég á
tækifærið. Okkur líður mjög vel hér og
strákarnir eru gallharðir Borgfirðingar
og Skallagrímsmenn í fótboltanum.“
Sjálf spilar Bryndís ekki fótbolta,
segist sinna eðlilegu viðhaldi þegar
kemur að heilsunni og sé skorpu-
manneskja í þeim efnum. Hún stundi
útivist og gönguferðir og skreppi í
veiði yfir sumartímann. Fram undan
sé skorpa í andans málum en Bryndís
fékk sér nýlega kort í sinfóníuna og
í leikhús. Þrátt fyrir hálfrar aldar
afmælið er þó ekkert að hægjast um
í lífi Bryndísar en í haust sest hún á
skólabekk.
„Ég er að byrja í doktorsnámi sam-
hliða vinnu í Óslóarháskóla þar sem
ég einbeiti mér að rannsóknum á sam-
skiptum ríkisstjórna og þjóðþinga.“
heida@frettabladid.is
BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR AÐSTOÐARREKTOR: FAGNAR FIMMTUGU
Strákarnir stærsta afrekið
LÍTUR SÁTT UM ÖXL Bryndís Hlöðversdóttir, aðstoðarrektor Samvinnuháskólans á Bifröst og
fyrrverandi alþingismaður, er fimmtug í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Elskuleg móðir okkar, amma og lang-
amma,
Valný Georgsdóttir
áður til heimilis í Reykjavík og á
Sauðárkróki,
sem andaðist laugardaginn 2. október á
Heilbrigðisstofnun Blönduóss, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju mánudaginn 11. október kl. 15.00.
Erla Höskuldsdóttir
Sigrún Höskuldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
María Ögmundsdóttir
Holtsgötu 4, Ytri Njarðvík,
lést mánudaginn 27. september á Landspítalanum við
Hringbraut. Útförin fer fram frá Ytri Njarðvíkurkirkju í
dag föstudaginn 8. október kl. 14.00.
Sæmundur Þ. Einarsson
Ingigerður Sæmundsdóttir Bjarni Jóhannsson
Ögmundur Sæmundsson Heiða Ingólfsdóttir
Baldur Sæmundsson Harpa Kristín
Einarsdóttir
Sigríður Sesselja Sæmundsdóttir Hleiðar Gíslason
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ragnheiður
Valdemarsdóttir
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður Byggðavegi 89, Akureyri
lést þriðjudaginn 5. október. Útförin fer fram frá
Akureyrarkirkju þriðjudaginn 12. október kl. 13.30.
Valdemar Ragnarsson Liisa Kajo
Ásgerður Ragnarsdóttir Gunnar Eydal
Óli Þór Ragnarsson Ingibjörg Marinósdóttir
Árni Ragnarsson Ásrún Guðmundsdóttir
Guðrún Ragnarsdóttur Valdimar Einisson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður, stjúpfaðir, bróðir,
mágur og frændi,
Páll Stefánsson
framleiðslumaður, Asparfelli 6,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu þann 5. október.
Nataly Stefánsson
Tatiana Helgason Haukur Helgason
Amalía Stefánsdóttir Leif Bryde
Guðný Stefánsdóttir
Hafsteinn Stefánsson Sigrún Óla
og frændsystkini
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Sigríður Þorsteinsdóttir
Blöndubakka 16, Reykjavík,
lést á kvenlækningadeild Landspítalans við Hringbraut
þriðjudaginn 28. september síðastliðinn. Útförin fór
fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu, frá Digraneskirkju
miðvikudaginn 6. október. Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki kvenlækningadeildar og krabbameinsdeildar
Landspítalans fyrir umönnun og hlýju.
Óskar Ingólfur Þórðarson
Þórður Garðar Óskarsson Rannveig Jónsdóttir
Jóna Ingibjörg Óskarsdóttir Benedikt Guðni Þórðarson
Þorleifur Óskarsson Helga Kristín Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær vinur, faðir, afi og bróðir,
Jóhannes Ingólfur Jónsson
rafverktaki,
lést föstudaginn 1. október á Hjúkrunarheimilinu Eir,
Hlíðarhúsum 7 í Reykjavík. Hann verður jarðsunginn
frá Árbæjarkirkju mánudaginn 11. október kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Parkinsonsamtökin.
Ólöf Sigríður Stefánsdóttir
Ásta Guðrún Jóhannesdóttir
Jón Kristinn Jóhannesson
Elísa Rós Natansdóttir
Systkini, vinir og vandamenn
MOSAIK
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tendamóðir, amma og langamma,
Sigurlaug Fjóla
Kristmannsdóttir
fyrrum húsfreyja, Hvammi í Vatnsdal,
Þorragötu 5, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi mið-
vikudaginn 29. september. Hún verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju mánudaginn 11. október kl. 13.00.
Hallgrímur Guðjónsson
Hafsteinn Gunnarsson Ásta Jónsdóttir
Ingibjörg Rósa Hallgrímsdóttir Gísli Ragnar Gíslason
Þuríður Hallgrímsdóttir Finnbogi Kjartansson
Margrét Hallgrímsdóttir Gunnar Þ. Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Merkisatburðir
1720 Skriða fellur úr Vatnsdalsfjalli í Húnavatnssýslu á tvo bæi
og farast 6 manns. Einnig stíflar skriðan Vatnsdalsá og
myndast stöðuvatn að ofanverðu og kallast það Flóðið.
1879 Hið íslenska fornleifafélag er stofnað í Reykjavík.
1910 Enskur togari rænir hreppstjóra og sýslumanni
Barð strendinga og fer með þá til Englands.
1967 Che Guevara er handtekinn í Bólivíu.
1969 Peter Ustinov, leikari og leikskáld, er viðstaddur frumsýn-
ingu á verki sínu, Betur má ef duga skal, í Þjóðleikhúsinu.
1994 Donovan, breskur dægurlagasöngvari, skemmtir í Þjóð-
leikhúskjallaranum.
2001 Arnold Schwarzenegger er kosinn ríkisstjóri Kaliforníu.
2005 Gífurlegur jarðskjálfti skekur Pakistan, Afganistan og Ind-
land norðanverð. Yfir 70 þúsund manns farast.