Fréttablaðið - 08.10.2010, Síða 54
22 8. október 2010 FÖSTUDAGUR
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Vá!
Þessi var
rosalegur!
Kóngur-
inn!
Sjáðu
þetta
Palli!
Þessi náungi
skaut nagla
í gegnum
hauskúpuna
á sér með
naglabyssu!
Já. Það tók
læknana sex
tíma að ná
honum út.
Læknana?
Ná honum
út...?
Ertu að segja
að hann hafi
ekki gert þetta
viljandi?
En samt ertu
búinn að flakka á
milli stöðvanna í
allt kvöld.
Get ég eitthvað
gert að því að ég
trúi á kraftaverk?
LÁRÉTT
2. dubba upp, 6. 999, 8. tillaga, 9.
útdeildi, 11. guð, 12. gafl, 14. gróða-
brall, 16. hvað, 17. sauðaþari, 18. for,
20. leita að, 21. faðmlag.
LÓÐRÉTT
1. reigingslegur gangur, 3. bogi, 4.
verkfæri, 5. skel, 7. græn baun, 10.
skip, 13. framkoma, 15. gróft orð, 16.
merki, 19. óreiða.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. nýja, 6. im, 8. ráð, 9. gaf,
11. ra, 12. stafn, 14. brask, 16. ha, 17.
söl, 18. aur, 20. gá, 21. knús.
LÓÐRÉTT: 1. rigs, 3. ýr, 4. járnsög, 5.
aða, 7. matbaun, 10. far, 13. fas, 15.
klám, 16. hak, 19. rú.
Það fyrsta sem
ég ætla að gera
þegar ég losna
út er að kaupa
mér chopper-
mótorhjól.
Hvað er í
sjónvarpinu?
Ekki nokkur
skapaður
hlutur.
Mér hefur alltaf þótt vænt um október. Þá ná haustlitirnir hámarki í allri
sinni dýrð, uppnámið sem skapast í septem-
ber þegar nýjar skorður eru settar á dag-
legt líf eftir upplausn sumarleyfa er að
baki og veturinn blasir við, fullur af bókum
og tónlist, kertaljósi og notalegum kulda.
SVOLEIÐIS október hefur hins vegar verið
fjarri góðu gamni, að minnsta kosti hingað
til. Nýliðin fyrsta vika október er svo langt
frá venjulegum hversdegi að það liggur
við að hana verði að ramma inn og gera að
listaverki svo hún gleymist ekki. Það er,
með orðum íslenska handknattleiksliðsins,
allt að verða vitlaust.
ÞAÐ sem af er október hefur eftir-
farandi gerst: Reitt fólk henti eggi
í prest. Skyrdrykkjum, tómötum
og golfkúlum rigndi yfir réttláta,
rangláta og preláta, lögreglumenn,
Alþingis húsið og Dómkirkjuna,
sem daginn eftir voru afgirt með
rammgerðri girðingu. Kúbverska
fánanum, anarkistafána, rauðum
byltingarfána með mynd af Che
Guevara, nýnasistafána, gamal-
nasistafána og fána með
merki eilífðarinnar og enda-
leysisins (áttu á hliðinni, sem
ég komst aldrei að því hver
á eða hvað stendur fyrir), var
veifað saman á Austurvelli, á meðan bekkj-
um var kippt kurteislega undan þeim sem
uppi á þeim stóðu til að sjá betur, til að
brenna þá á báli á miðjum velli. Það eru
ekki jól í október, heldur gamlárskvöld,
eins og fyrrnefnd brenna og flugeldasýn-
ingar sönnuðu þetta kvöld.
RÍKISSAKSÓKNARI lét í fjölmiðlum í ljós
þá skoðun sína að verra væri að vera sá
sem er sakaður um nauðgun en að verða
fyrir henni og alþingismaður sagði að
listamenn ættu bara að gera svo vel og fá
sér almennilega vinnu. Alþingismaðurinn
hefur reyndar beðist afsökunar, enda háður
áliti almennings um starf sitt og vinnufrið
og þarf að standa skil á því sem hann segir.
Ríkissaksóknari þarf greinilega ekki að
gera það enda virðist honum vera skítsama
þó að flestir séu sammála um að téð orð
hans geri hann vanhæfan í starfi.
SÓLIN skín dag eftir dag og börn fara í
stuttermabolum á leikskólann enda fjórtán
stiga hiti og stundum meira. Snarruglað
birki sendir frá sér vorilm, vorlaukar kíkja
ringlaðir upp úr moldinni og harðgerðir
fíflar sjá sér leik á borði fyrir framhaldslíf.
Húfur og treflar hanga afskipt inni í skáp.
ÞETTA er enginn venjulegur október.
Október 2008 var það ekki heldur og ham-
ingjan má vita hvað gerist í október 2012.
Leitin að ljúfa október
John hefði fílað Ísland
- Yoko Ono tekin tali á afmælis-
degi Lennons.
Stjórnlagaþing nálgast
- Hvernig verður ný stjórnarskrá til?
Sumartískan 2011
- Blúndur, mynstur og litadýrð ein-
kennir sumartískuna næsta sumar.
Nýtt Tjarnarbíó
- Fjölmargir viðburðir framundan.