Morgunn - 01.12.1942, Side 31
MORGUNN
157
klæddur úr jakkanum og í hann aftur, án þess nokkur
mannleg hönd sé þar að verki. Þetta gerist raunar í
myrkri, en áður en þetta gerist, skipar stjórnandinn
fyrir, að kveikja skuli ljósið og rannsaka miðilinn. Það
er gert og gengið úr skugga um, að öll böndin, sem hann
er bundinn með, séu óhreyfð. Þá er skipað að slökkva,
en innan fárra sekúndna er skipað að kveikja aftur og
þá situr miðillinn kyrr í stólnum sínum í skyrtunni, en
jakkinn liggur á gólfinu.
Að þetta gerist ekki með eðlilegu, ,,náttúrlegu“ móti
sem kallað er, þótt allt gerist þetta eftir einhverjum
náttúrulögmálum og sé því fyllilega ,,náttúrlegt“, verð-
ur ljóst, þegar þess er gætt, að hendur miðilsins eru
bundnar og handleggirnir margsinnis fast vafðir með
böndum við stólbríkurnar. Hver mundi treysta sér til
að leika þennan leik á fimm sekúndum, marg-reyrður í
stól? Margt annað kemur dularfullt til athugunar í
þessu sambandi. 1) Það, að böndin á handleggjunum
eru alveg óhreyfð, liggja eins á skyrtuermunum og þau
lágu á jakkaermunum áður. 2) er tíminn, sem þetta ger-
ist á, furðulega stuttur. 3) heyrist ekki nokkur minnsta
hreyfing eða þrusk meðan jakkinn er að hverfa áf miðl-
inum. 4) sýna myndirnar, sem hvað eftir annað hafa
verið teknar af miðlinum í þessu ástandi, að hárið á
honum haggast ekki vitund við þetta, svo að ekki er
jakkinn dreginn upp yfir höfuðið á honum. 5) er jakk-
inn oft rækilega saumaður saman að framan í fundar-
byrjun og ekki haggast saumurinn sá. 6) er miðillinn
oft klæddur úr jakkanum meðan báðum höndum hans
er haldið, svo að ekki er því til að dreifa, að ermarnar
séu dregnar fram af höndunum. 7) er það enn eftirtekt-
arvert, að hafi miðillinn haft eitthvað í jakkavösunum,
liggur það venjulega við fætur hans á gólfinu, bæði
þegar hann er kominn úr jakkanum og eins, þegar hann
er kominn í hann aftur. Þetta bendir til þess, að jakk-
inn einn sé afholdgaður, ,,dematerialiseraður“, en ekki