Morgunn


Morgunn - 01.12.1972, Qupperneq 20

Morgunn - 01.12.1972, Qupperneq 20
98 MORGUNN miðilsfundi yfirleitt, að enda þótt mikið velti á því, að miðill- inn sé góður, er þó ef til vill alveg eins mikið undir því komið, að „sitjendurnir", sem svo eru nefndir, þ. e. þeir sem miðils- fund sitja, séu góðir og alvarlega hugsandi menn, sem vita, hvað þeir eru að gera. Sitjendurnir skapa fundinn að miklu leyti. Þetta er reyndar ekki neitt alveg sérstakt fyrir miðils- fundi. Hinar svonefndu „guðsþjónustur" eru t. d. mjög háðar því, hvemig þeir, sem taka þátt í þeim, eru skapi farnir og hve glöggan skilning þeir hafa á gildi þeirra, og á aukaatriðum og aðalatriðum í sambandi við slíkar samkomur. Það er alls ekki presturinn einn, sem allt veltur á. Því miður virðist marga bresta skilning á þessu, og því fer oft svo, að bæði guðsþjón- ustur og miðilsfundir mistakast fyrir handvömm, ef svo mætti segja, og er oft lagt rangt mat á þá menn, sem fyrir þessum samkomum standa. Áður en lengra er haldið, er rétt að gera sér grein fyrir því, að skipta má þeim mönnum, sem miðilsfundi sækja, yfirleitt í 4 flokka. Ég nefni þessa flokka af handahófi, en ekki í neinni ákveðinni röð. Fyrsti flokkurinn er þeir menn, sem eru um- fram allt að leita sannleikans. Þeir vilja venjulega reka anda- hyggjustefnuna á strangvísindalegum grundvelli, og beita öll- um hugsanlegum varúðarráðstöfunum, til þess að koma í veg fyrir vélar og brögð af hálfu miðilsins eða annara. Ég hef mikla samúð með þessum mönnum og ber mikla virðingu fyrir hinni miklu visindalegu samvizkusemi þeirra og nákvæmni, að svo miklu leyti, sem ekki er lögð allt of einhliða áherzla á þá hlið málsins. En það kemur fyrir, að þessa menn brestur með öllu skilning á ýmsum skilyrðum, sem nauðsynleg eru til þess, að miðilsfundur takist vel. T. d. skilst þeim oft ekki, að tortryggni og óvingjarnleg og óþörf gagnrýni á sjálfum miðils- fundunum spilli fyrir góðum árangri. Þeim er líka oft illa við sálmasöng, og vilja sem allra minnstan og helzt engan guð- ræknisblæ hafa á fundunum. Vita þó allir, sem nokkuð að ráði hafa fengizt við sálarrannsóknir, að ótrúlega mikið veltur á þvi, hverskonar andi það er, sem svífur yfir þeim vötnum, — hverskonar hugblær („stemning") það er, sem hvílir yfir mið-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Morgunn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.