Morgunn


Morgunn - 01.12.1972, Page 27

Morgunn - 01.12.1972, Page 27
MIÐILSFUNDIR 105 að ég er ekki fyrst og fremst andahyggjumaður (,,spiritisti“). Ég er fyrst og fremst guðspekinemi. En ég hef kynnt mér anda- hyggjustefnuna allmikið, og ég get ekki lokað augunum fyrir hinu mikla og merkilega hlutverki hennar. Og ég hef, sérstak- lega í seinni tið, setið allmarga miðilsfundi og reynt að fylgjast með öllu, sem þar hefur gerzt, á eins hlutlausan hátt og mér hefur verið unnt. Mér er ljóst, að þar sem andahyggjustefnan er, getur verið um hjálpræði margra sálna að ræða. En það eru þó sérstaklega tvær ástæður, sem valda því, að ég tel, að hvorki guðspekingar né aðrir alvarlega hugsandi menn hafi ráð á að ganga fram hjá andahyggjustefnunni eða fyrirlíta hana. önn- ur ástæðan er sú, að andahyggjustefnan getur, ef rétt er á haldið, smíðað sterkustu og beittustu vopnin i baráttunni gegn efnishyggjukenndum skoðunum á lífinu og smásálarlegri heimshyggju. Og nú, þegar jafnvel opinberlega er boðað guð- leysi, trúleysi, siðleysi, — i einu orði sagt — andleysi -—, þá höfum vér alls ekki ráð á að hafna því að fara í smiðju til anda- hyggjustefnunnar og fá þar einhver beitlustu vopnin gegn efnishyggjunni og lúnni svonefndu „fleka-lífsskoðun“. En til þess að skýra hvað ég á við með orðinu „fleka-lífsskoðun“, leyfi ég mér að lesa upp stuttan kafla úr ágætu erindi eftir Ragnar E. Kvaran, erindi er kom út í fyrra hefti Morguns síðastliðið ár. Kaflinn, sem ég tek upp, er á þessa leið: „ . . . Vér höfum hing- að til litið ó heiminn eins og skip, sem stjórnað væri af skip- herra, er vissi hvert stefndi og að það markmið væri samboðið farþegunum á skipinu. En hverfi trúin á ódauðleikann, þá mætti frekar líkja skipinu við fleka, sem hrektist stefnulaust fyrir ýfðum öldum tilverunnar. Flekinn er stundar dvalarstað- ur vera, sem bíða dauðans. En jafnvel þessi skoðun mundi ekld drepa siðferðileikann í mönnunum. Verst.u mennirnir á flekan- um mundu hrifsa allt til sín, sem þeir gætu notað sér til gagns °g þæginda. En beztu mennirnir mundu finna til með raunum og vandkvæðum félaga sinna. Þeir myndu koma á fót reglum °g skipulagi, sem heildinni kæmi að haldi, og myndu sýna margvíslega og fagra sjálfsafneitun til þess að verða öðrum að liði. Og jafnvel á stefnulausum flekanum gætu menn lært að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.