Morgunn - 01.12.1972, Side 74
152
MORGUNN
konar upplýsinga, og var kannazt ákveðið við 143, vafi var um
hvort kannazt var við 5 (svör heyrðust ekki), en í einu tilfelli
var upplýsingum neitað sem réttum. Eins og sjá má, eru þess-
ar upplýsingar mjög markverðar. Er það von forráðamanna fé-
lagsins, að áframhald megi verða á hinni mjög svo ánægjulegu
samvinnu við Hafstein Björnsson um skyggnilýsingafundi,
sem fullyrða má að hafi orðið málefninu mikill styrkur.
ivt-ívi f . 1 sumar hefur frk. Björg Ólafsdóttir, miðill,
gert mjog svo viðreist um landið og hefur su
starfsemi vakið mikla athygli og orðið til mikils gagns. Hefur
Björg farið í tvær ferðir til Isafjarðar og dvalið þar í tvær vik-
ur í hvort skipti. Þá hefur hún sömuleiðis farið tvisvar til Ak-
ureyrar og dvalið þar einnig í tvær vikur í hvort sinn. Þá fór
hún einnig til Austurlands og heimsótti ýmsa staði þar á veg-
um Sálarrannsóknafélags Fljótsdalshéraðs á Egilsstöðum. Var
hún á Austurlandi samtals í þrjár vikur og dvaldi nokkra daga
í Borgarfirði eystra, á Eskifirði og Seyðisfirði, en að síðustu að
Egilsstöðum. — Var dvöl hennar þar eystra fyrst ákveðin tvær
vikur, en varð að framlengjast í þrjár, samkvæmt eindregnum
óskum staðarmanna, sökum vaxandi aðsóknar. Hefðu forráða-
menn SBFf gjarnan viljað fá hana til lengri dvalar, en því mið-
ur varð þvi ekki við komið að sinni, sökum verkefna annars
staðar. — 1 þessum ferðalögum hefur enn einu sinni komið
fram ósérhlifni Bjargar og góður vilji til að vinna málefninu
svo sem kostur er, og kunna forráðamenn SBFl henni beztu
þakkir fyrir hið mikla og góða starf hennar og ánægjulega sam-
vinnu í hvívetna. — Er vonandi, að hún verði fáanleg til að
leggja á sig frekari ferðalög út um landsbyggðina á sumri kom-
anda, því margir munu þeir vera, sem hug hafa á að ná fundi
hennar.
Björg Ólafsdóttir hefur nú hafið starf hér í Reykjavík í svip-
uðu formi eins og var s.l. vetur, en fundum hennar hefur þó ver-
ið fjölgað úr átta í tíu á viku, sem að sjálfsögðu er fagnaðarefni,
þar sem mikil aðsókn er að fundunum. — Þegar fyrirkomulag í
vetur hafði verið ákveðið, var öllum félagsmönnum tilkynnt það
með umburðarbréfi, en fundirnir ekki auglýstir opinberlega að