Morgunn - 01.06.1983, Page 24
22
MORGUNN
holti fyrir verkum, en ef ég ætti þessa stúlku, þá mundi
ég láta hana sverja af sér.
Hvað segir sálusorgarinn? Sverja af sér?
Brynjólfur biskup æðir um gólfið. Hann er eins og ljón
í búri, hann er með kreppta hnefana eins og hann ætli þá
og þegar að fara að slá einhvern, sem er ekki sýnilegur.
Andlitið er afmyndað af bræði og skelfingu, og úr augun-
um lýsir heift og reiði.“ G. 139.
16. Daði kallaður til viðtals
Kamban: ,,Ég fer beint inn til mín og þarf að tala við þig.
Já, herra, svarar Daði Halldórsson og dýfir fingrunum
í snatri niður í mundlaugina." K. 348.
GuÖrún: ,,Þú kemur í biskupsstofu strax á eftir.
Já, herra, segir Daði. Hann gengur að handlauginni og
skolar hendur sínar í mesta flýti.“ G. 142.
Kamban: ,,Án þess að segja eitt orð hefir biskup bent
Daða að setjast á móti sér við borðið, en frá því er hann
hefir náð augum hans heldur hann þeim föstum við sín.“
K. 349.
GuÖrún: „Hann lagði hendurnar fram á borðið, festi
augun á Daða Halldórssyni, náði augum hans og sleppti
þeim ekki allan tímann, sem hann talaði við hann.“ G. 143.
Kamban: „Guð er yfir okkur, Daði Halldórsson, og borð-
ið er á milli okkar, segir biskup hægt án þess að hreyfa sig.
K. 349.
Guðrún: „Borðið er á milli okkar, en þú veist sjálfsagt,
hvað er uppi yfir okkur, og ef þú segir ekki sannleikann,
mun guðs dómur ganga yfir þig.“ G. 143.
Kamban: „Ég sigli í sumar, segir Daði, og ætla mér
að vera langvistum við háskóla framandi landa.
Svo þú siglir í sumar, segir biskup hægt, það er alveg
nýtilkomið. Hefurðu talað við föður þinn um það?
1