Morgunn


Morgunn - 01.06.1983, Blaðsíða 59

Morgunn - 01.06.1983, Blaðsíða 59
57 HEIMILDIR ,,AÐ IIANDAn“ afritun tónbandanna. Þannig upptekin og vottfest, yrði að minnsta kosti tilurð sögunnar síður vefengd, enda lægju þá öll gögn fyrir, opin þeim sem kynnu að vilja rannsaka einhver atriði nánar. Að því er ég fæ séð, var slíks öryggis ekki gætt. Stefán og Guðrún Sveinbjarnardóttir sáu ásamt miðlinum ein um langflesta fundina. Enga tortryggni þarf til, þótt sagt sé að Guðrúnarsaga hefði getað orðið trú- verðugri, ef nokkrir vísindalega þjálfaðir menn hefðu verið fengnir til liðs við þennan hóp. Það er mannlegt að treysta sjálfum sér best, en blint sjálfstraust leiðir oft til falls. 1 okkar tilviki lét afleiðingin ekki á sér standa. Strax við útkomu I. bindis mætti verkið yfirgnæfandi tortryggni gagnrýnenda. Ólafur Jónsson reit umsögn í Vísi (12. nóv. 1973) og benti m.a. á hinn nána skyldleika við fyrrnefnda skáldsögu Kambans og nefndi dæmi, sem vöktu furðu og tortryggni. Aðfinnslum hans svaraði Stefán þannig: „Við vissum um þessi 6—8 dæmi, sem Ólafur bendir á. Annað er ekki líkt með bókunum tveimur.“ (Alþbl. 15. nóv. 1973). Ólafi hafa eflaust verið kunn fleiri dæmi um skyldleika, þó að þau rúmuðust ekki í stuttum blaðaritdómi hans. Furðulegt er aftur á móti, ef Stefáni Eiríkssyni hefir að- eins verið kunnugt um 6—8 staði. í skrá minni hér að fram- an, sem er þó alls ekki tæmandi um of náin rittengsl, gefur að iesa yfir 60 greinar úr hvorri bókinni þar, sem texti Guðrúnarbókar er greinilega saminn undir sterkum áhrif- um af Skálholti Guðmundar Kambans. Það er því ekkert vafamál, að textar úr skáldsögu Kambans hafa runnið viða inn í Guðrúnarbók. Auk þess er söguþræði Kambans fylgt í stórum dráttum og ýmsum smáatriðum, sem einkenna skáldskap hans; sú samfylgd hefst með 8. kafla Guðrúnar- bókar, þegar síra Þórður tekur við sem sögumaður, og helst í lotum þangað sem frásögn Kambans lýkur. Á þessu leikur enginn vafi. Um það getur glöggur lesandi fullvissað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.