Morgunn


Morgunn - 01.06.1983, Side 91

Morgunn - 01.06.1983, Side 91
DR. JAKOB JÓNSSON: GÖMUL VERKEFNI — NÝJAR LEIÐIR Ritstjóri Morguns hefur mælst til þess, að ég svaraði með fáum orðum þeirri spurningu, hvaða munur sé á sálar- rannsókum gamla tímans og dulsálarfræði nútímans. Bók mín „Framhaldslíf og nútímaþekking“ kom út árið 1934. Þar fjallar einn kaflinn um skýringar á dulrænum fyrirbrigðum: „Virðist þar þó aðeins geta verið um þrjár skýringar að ræða. Annaðhvort á það, sem gerist, upptök sín í undirvitund miðilsins sjálfs, í fjarhrifum frá lifandi mönnum eða í áhrifum frá framliðnum mönnum. (Bls. 126). Viðleitni sálarrannsóknamanna beindist að því að fá úr því skorið, hver skýringin væri sennilegust hverju sinni. Væru fjarhi’if eða áhrif frá undirvitund útilokað, en t.d. þekking miðilsins í samræmi við það, sem enginn gat vitað, nema framliðinn maður, var þá ekki eðlilegast að ganga út frá þeim möguleika, að dánir menn væru að verki? Nú varð að taka tvennt til greina. 1 fyrsta lagi voru ekki allir áhugamenn færir um að beita vísindalegum aðferð- um. 1 öðru lagi hlýtur hver maður að mynda sér skoðun á f jölmörgu, sem fyrir kemur, án þess að geta grundvallað skoðanir sínar vísindalega. Af þessu leiðir, að upp hefur sprottið hreyfing, sem iðkar miðilsstarfsemi, sem engan veginn má blanda saman við vísindalegar rannsóknir. Ég hef t.d. verið viðstaddur fjölmarga fundi þar, sem mér leið illa sökum þess, að miðillinn var stöðugt að þreifa fyrir sér til að komast til móts við fólk, sem skorti allan skiln- ing á þeirri varkárni og gagnrýni, sem nauðsynleg er and- spænis rannsóknarefninu. Auðvitað getur enginn bannað neinum að draga ályktanir af ýmsu, sem þykir „dular- fullt“, svo framarlega sem beitt er fullri gagnrýni. Ýmis-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.