Morgunn - 01.06.1983, Síða 100
98
MORGUNN
Það er svo mikið bullað með eða móti dulrænum fyrir-
bærum, að ekki veitir af að kynna sér álit fróðustu og
gætnustu manna og koma því áleiðis t.d. hér í Morgni.
1 ofannefndum tímaritum er líka sagt frá nýjum at-
hyglisverðum bókum um dulsálarfræði.
Fortíð — nútíð
Það hefur verið ljóst lengi, að rannsóknir í dulsálar-
fræði (vísindalegum sálarrannsóknum) er ekki unnt að
stunda án flókinna og haldgóðra varúðarráðstafana. Sjald-
an eru einhlítar skýringar á því, sem virðist gerast. Það
þarf vant fólk, réttar aðstæður og stundum fágæt og dýr
tæki til að gera athuganir. Þar við bætist þörf á sérþekk-
ingu sálfræðinga, eðlisfræðinga og annarra lærðra manna
til að skera úr um niðurstöður rannsóknanna.
Afleiðing þessa er sú, að almenningur getur ekki stund-
að sálarrannsóknir frekar en jarðfræði, án þess að læra
tilskilin fræði. Almenning, öðru nafni leikmenn, kalla ég
þá sem hafa lært annað en viðeigandi fræði og aldrei lagt
af mörkum neitt nýtt til þeirra fræða.
Við erum leikmenn í flestum greinum. Það er engin
skömm að því. Það getur samt veitt okkur ánægju og
verið okkur mikilsvirði að frœðast um fremstu vígstöðvar
fræðigreina, sem vekja forvitni okkar. Við látum hins
vegar öðrum eftir leitina á þeim slóðum, á mörkum hins
óþekkta, meðan við sinnum öðru. Sum erum við að störf-
um við aðrar vígstöðvar á mörkum hins óþekkta, en flestir
eru önnum kafnir við margs kyns aðra spennandi iðju og
skyldustörf.
Mest er um vert að halda við forvitni æskuáranna og
reyna eftir megni að víkka sjónhringinn með því að kynna
sér sannar fregnir af sannleiksleitinni, rannsóknum lærð-
ustu manna.
Allt ber að sama brunni. Fúsk leysir engar gátur.
Náttúran er flókin, tilveran er flókin — og miklu flóknari