Fréttablaðið - 05.11.2010, Blaðsíða 12
12 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Svifryk er fínasta gerð rykagna sem eiga greiða leið í öndunarfærin.
Nagladekk valda svifryki og slíta akbrautum hundraðfalt meira en
önnur dekk. Árlega þarf Reykjavíkurborg að endurnýja um 10.000 tonn af
malbiki vegna slits af völdum nagladekkja.
Í Reykjavík er svifryk 50% uppspænt malbik, 10% sót, 15%
eyddir bremsuborðar og 25% jarðvegur og salt. Fjöldi leikskóla á
höfuðborgarsvæðinu hleypir stundum börnum ekki út að leika vegna
svifryksmengunar.
Toyo harðskeljadekkin innihalda
brot úr valhnetuskel, sem er með
hörðustu efnum sem finnast í
náttúrunni. Skeljabrotin grípa
eins og klær í hálkuna, draga
verulega úr svifryksmengun og Silica
gúmmíblöndunarefnið heldur þeim
stöðugt mjúkum í miklu frosti. Toyo
harðskeljadekkin eru því raunhæf og
örugg lausn í stað nagladekkja.
Andaðu léttar!
með harðskeljadekkjum frá TOYO
Meira grip án nagla
Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - Reykjavík - 590 2000 - www.benni.is
Nesdekk - Fiskislóð 30 - Reykjavík - 561 4110 / Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - 420 3333
Reykjanesb
æ
Rey
kjavík
Mörgum þóttu tillögur meiri-
hluta mannréttindaráðs um sam-
starf kirkju og skóla bæði óljósar
og róttækar. Biskup Íslands gagn-
rýndi fyrstu tillögurnar harðlega í
predikun sinni í Hallgrímskirkju í
október og sagði þær skefjalausa
fordóma og sýna andúð á kristni
og þjóðkirkjunni. Hann sagði að
gengi tillagan eftir myndi hún
stuðla að fáfræði, fordómum og
andlegri örbirgð.
Margrét Sverrisdóttir, formaður
mannréttindaráðs, undraðist við-
brögð biskups og svaraði því að
meiningin með tillögunum hefði
ekki verið að ráðast á kirkjuna
heldur væri í meginatriðum verið
að setja hömlur á trúboð í leik- og
grunnskólum. Þar ætti það ekki
heima.
Í upprunalegum tillögum ráðs-
ins kemur meðal annars fram að
heimsóknir barna í kirkjur á skóla-
tíma skuli banna, sömuleiðis heim-
sóknir presta og annarra fulltrúa
trúar- og lífsskoðanahópa í skól-
ana. Sálmasöngur og listsköpun í
trúarlegum tilgangi skuli sett af.
Háværar raddir brutust fram
í samfélaginu í kjölfarið og þótti
fólki mörgum spurningum ósvar-
að, þá helst varðandi undirbún-
ing vegna kristinna hátíðahalda
eins og í kringum aðventu, jól og
páska. Mannréttindaráð fundaði
í vikunni og lagði fram drög að
endurbættum tillögum að breyt-
ingum á samstarfinu. Margrét
segir að engar efnislegar breyt-
ingar hafi átt sér stað, en skerpt
hafi verið á orðalagi og þau atriði
sem hafi þótt óljós hafi verið sett
skýrar fram. Ekki verður þó betur
séð, þegar texti upphaflegu tillög-
unnar og þeirrar endurskoðuðu
er borinn saman, en að meirihluti
mannréttindaráðs hafi mildað til-
lögurnar talsvert.
Samkvæmt nýrri námskrá fyrir
fræðslu þjóðkirkjunnar, sem lögð
verður fram fyrir kirkjuþing í
þessum mánuði, er fjallað um
leikskóla og sagt að markmið upp-
eldisstarfs í leikskólum landsins
skuli meðal annars taka mót sitt
af kristinni arfleið.
„Æskilegt er því að auka sam-
starf kirkjunnar og leikskólans,“
segir í námskránni. Í kafla um
grunnskóla segir einnig að hin
kristna arfleifð skuli hafa mótandi
áhrif á starf í skólum og nauðsyn-
legt sé að auka samstarf kirkju
og skóla. „ … enda nær skólinn til
flestra barna sem skírð eru,“ segir
í námskránni.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í
mannréttindaráði eru ósammála
tillögum meirihluta Besta flokks-
ins, Samfylkingar og Vinstri
grænna. Sjálfstæðisflokkur bók-
aði á fundi ráðsins á miðvikudag
að andstöðu við framkomna til-
lögu og að engin ástæða væri til
þess að senda hana til umsagn-
ar til annarra ráða. Samráð og
samstarf við foreldra hefði ekki
verið tryggt og fulltrúum flokks-
ins í ráðinu hefðu borist nokkur
hundruð kvartanir frá borgar-
búum þar sem umræddri tillögu
meirihlutans væri mótmælt.
Tillögurnar liggja nú til umsagn-
ar hjá velferðarráði, menntaráði
og íþrótta- og tómstundaráði.
sunna@frettabladid.is
Meirihlutinn mildar tillögur
Mannréttindaráð hefur mildað tillögur sínar um samskipti kirkju og skóla og hörfað frá algeru banni við
kirkjuferðum og heimsóknum presta í skóla í þágu áfallahjálpar. Kirkjan vill efla samstarfið enn frekar.
FRÉTTASKÝRING
Hvernig ætlar Mannréttindaráð
Reykjavíkurborgar að koma til móts
við gagnrýnisraddir?
Tillögur mannréttindaráðs – hvað er breytt?
Ekki heimilt skv. gömlu tillögunni Endurbætt tillaga
Heimsóknir presta
Heimsóknir í kirkjur
Áfallahjálp presta
Sálmasöngur og listsköpun
í trúarlegum tilgangi
Heimilar í fræðandi tilgangi og að frumkvæði
skólans.
Ekki heimilar í leikskólum. Á grunnskólastigi skulu
heimsóknir eiga sér stað undir handleiðslu kennara
og sem liður í fræðslu.
Heimil við sérstakar kringumstæður, að frumkvæði
skólans og samráð skal haft við foreldra. Helgistund-
ir vegna áfalla skulu fara fram utan skólatíma.
Sígildir söngvar, dansar, leikir og handíðir sem
teljast hluti af gamalgrónum hátíðum og frídögum
þjóðarinnar halda sínum sessi í árstíðabundnum
skemmtunum og starfi.
GRAFARVOGSKIRKJA Formaður mannréttindaráðs segir engar efnislegar breytingar
hafa verið gerðar á tillögum um samskipti kirkju og skóla en orðalag hafi verið
skerpt.
DÓMSMÁL Tæplega tvítugur
piltur hefur verið dæmdur fyrir
þátttöku í þjófnaði á þrjátíu
gróður húsalömpum úr gróð-
urhúsi í Gufuhlíð í Bláskóga-
byggð.
Pilturinn játaði sakargiftir
að fullu og hreinskilnislega í
þeim lið ákærunnar sem hann
varðar. Hann kvaðst hafa snúið
af vegi afbrota og fíkniefna-
neyslu og lagði fram um það
gögn fyrir dómi.
Pilturinn var sautján ára
þegar hann framdi brot sitt, en
síðan liðu tæp tvö ár áður en
dómur gekk í málinu. Héraðs-
dómur frestaði ákvörðun um
refsingu hans en dæmdi hann á
skilorð í tvö ár. - jss
Játaði þátttöku í þjófnaði:
Stal 30 gróður-
húsalömpum
TEKUR GÖTUMYNDIR FYRIR GOOGLE
Bianca Keybach, ferðamálastjóri í
Oberstaufen í Þýskalandi, vakti heldur
betur athygli þar sem hún hjólaði um
bæinn með öflugar myndavélar í þágu
Streetview-kortaþjónustu Google-
vefsins. NORDICPHOTOS/AFP