Fréttablaðið - 05.11.2010, Síða 50

Fréttablaðið - 05.11.2010, Síða 50
26 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR Er þjóðstjórn eina leiðin út úr þeim ógöngum sem við Íslend- ingar erum nú fastir í? Hvað segir sagan? Og hvað er þjóðstjórn? Ríkis- stjórn með því nafni hefur einu sinni setið á Íslandi. Vorið 1939 var Framsóknarflokkurinn einn í rík- isstjórn, undir forsæti Hermanns Jónassonar (föður Steingríms Hermannssonar og afa Guðmund- ar Steingrímssonar, þingmanns Framsóknarflokksins). Viðsjár voru í Evrópu og efnahagskreppa á Íslandi. Sátt varð um að Fram- sóknarflokkur, Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur settust saman í ríkisstjórn. Hermann Jónasson var áfram forsætisráðherra og þeir sem að stjórninni stóðu kölluðu hana þjóðstjórn þótt einn flokkur til viðbótar, Sósíalistaflokkurinn, ætti fulltrúa á Alþingi. Þeir voru hins vegar aðeins þrír og voru Moskvuhollir kommúnistar. Ráða- mönnum hinna flokkanna fannst þeir ekki tækir í stjórn og sögðu sjálfsagt að kalla hina nýja ríkis- stjórn „þjóðstjórn“ þótt þingheimur styddi hana ekki allur. Þjóðstjórnin svonefnda sat til ársins 1942 en féll út af ágreiningi um varnir við „dýrtíðinni“ – orði þess tíma yfir verðbólgu. Hún var þá farin að geisa og hefur verið bölvaldur á Íslandi æ síðan, með litlum hléum. Ekki var aftur rætt í alvöru um þjóðstjórn eða stjórn allra flokka á þingi fyrr en í kreppunni undir lok sjöunda áratugar síðustu aldar, í kjölfar síldarbrests og verðfalls á sjávarafurðum. Sjálfstæðismenn og alþýðuflokksmenn sátu þá í stjórn undir forsæti Bjarna Benediktsson- ar (afabróður og alnafna núverandi formanns Sjálfstæðisflokksins). Rætt var um að stjórnarandstöðu- flokkarnir, Framsóknarflokkur og Alþýðubandalag (arftaki Sósíalista- flokksins), kæmu einnig að stjórn landsmálanna en ekkert varð úr. Trúnaðartraust vantaði og líklega var kreppan ekki nógu illvíg, þrátt fyrir allt. Áratugur leið en þá kom þjóð- stjórn allra flokka á ný til tals. Eftir þingkosningar sumarið 1978 og vet- urinn 1979 gekk illa að mynda ríkis- stjórn. Verðbólga geisaði sem aldrei fyrr og hugmyndum um þjóðstjórn var varpað fram, ekki síst á síðum Morgunblaðsins og með velþókn- un Geirs Hallgrímsson- ar, formanns Sjálfstæð- isflokksins. Framámenn hinna flokkanna höfðu litla trú á umleitunum Geirs og aftur fór svo að þjóðstjórn var ekki mynduð. Líkt og fyrri daginn þótti neyðin ekki nógu mikil og aðrir kost- ir voru í boði. Nú liðu nær 30 ár uns hugmyndin um þjóð- stjórn vaknaði á ný. Óðara eftir hrun bank- anna í október 2008 heyrðist því fleygt að allir á þingi yrðu að taka höndum saman. Þetta sagði Davíð Odds- son seðlabankastjóri og þetta sagði Steingrím- ur J. Sigfússon, formaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs. Fleiri tóku í sama streng. Enn varð raunin sú að þessi leið var ekki valin. Mestu réð að ríkisstjórn þess tíma, með Geir H. Haarde forsæt- isráðherra í broddi fylkingar, taldi sig geta ráðið við vandann. Það reyndist rangt. Stjórn- in hrökklaðist frá völdum eftir einstæð mótmæli við Alþingi og Stjórnarráð. Hún var klofin, rúin trausti og allt of veik til að halda sínu striki. Eftir kosningar í fyrra tók núverandi stjórn við völdum og enn heyrast þær raddir að þjóð- stjórn verði að mynda. Efnahags- vandinn sé það mikill og ríkis- stjórnina skorti trúverðugleika og traust. Sagan sýnir að þjóðstjórn hefur aðeins einu sinni setið að völdum og þarf þá að hafa þann fyrirvara að hún naut ekki stuðn- ings alls þingsins. Forsendur þess að þjóðstjórn var mynduð árið 1939 voru tvær; ógnvekjandi efnahags- vandi og stríð sem vofði yfir. Sú seinni skipti jafnvel sköpum því um þá vá var unnt að sameinast. Sund- urlyndisfjandinn hlaut að víkja. Í þessu samhengi mætti einnig nefna að vorið 1940, þegar styrj- öld var skollin á, var þjóðstjórn mynduð í Bretlandi. Það gekk þó ekki þrauta- laust. Neville Cham- berlain forsætisráð- herra vildi sitja áfram. Hann var velmeinandi en hafði glatað allri til- trú. Í umræðum í neðri deild þingsins sveigðu eigin flokksmenn að honum og vitnuðu í þekkta menn úr sög- unni. „Bestu ráðin eru þau djörfustu,“ sagði einn þeirra, aðmíráll sem var búinn að fá nóg af varkárni, hiki, fumi og fálmi, og hafði þar eftir kjörorð Nel- sons flotaforingja. Og annar rifjaði upp fræg orð uppreisnarmanns- ins Olivers Cromwells þegar hann leysti upp breska þingið árið 1653 og tók sér alræðisvald: „Þið hafið setið hér of lengi án þess að gera nokkurt gagn. Hverfið á braut, segi ég, og komið ekki aftur. Í Guðs nafni, farið frá!“ Chamberlain sá sæng sína upp reidda. Þjóðstjórn var mynduð, undir forystu Winstons Churchills. Auðvitað er óravegur milli Bret- lands árið 1940 og Íslands 70 árum síðar. Stríð geisar ekki og fátt virð- ist geta sameinað Íslendinga. Hitt gæti þó virst svipað að djarfra og einstæðra ákvarðana sé þörf. En hver á að gera hvað og hvenær? Það er vandinn. Óðara eftir hrun bank- anna í okt- óber 2008 heyrðist því fleygt að allir á þingi yrðu að taka hönd- um saman. Hvenær þjóðstjórn? Stjórnmál Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur við ReykjavíkurAkademíuna Í skólum fer fram fræðsla um mismunandi lífsskoðanir og trúarbrögð en þar er ekki stund- uð boðun trúar. Í engum tilfellum er skólastarfi og starfi trúar- og lífsskoðunarhópa blandað saman,“ segir í stefnumótun Menntasviðs Reykjavíkur frá árinu 2008. Þar segir jafnframt að börnum skuli ekki „mismunað vegna trúar eða lífsskoðunar þeirra eða foreldra þeirra. Forðast skal aðstæður þar sem börn eru tekin út úr hópnum eða skylduð til að taka þátt í atburð- um sem ekki samræmast trúar- eða lífsskoðunum þeirra.“ Þetta er greinilega flóknara en margir prestar geta skilið eða ósanngjarnt að þeirra mati. Þessi stefna miðast samt sem áður við landslög, ákvæði mannréttindasátt- mála og dómafordæmi fyrir Mann- réttindadómstóli Evrópu. Þessi sjálf- sögðu viðmið vildi Mannréttindaráð Reykjavíkur tryggja í framkvæmd en það vill Þjóðkirkjan greinilega koma í veg fyrir. Af hverju? „Boðun er hið eiginlega eðli kirkjunnar. Boðun er ekki valkost- ur kirkjunnar. Boðun er grundvöll- ur veru hennar,“ segir kirkjan sjálf. Um það segir Karl Sigurbjörnsson biskup: „Kirkjan er send með boð- skap. Það er hlutverk hennar og verkefni hennar öll eru með einum eða öðrum hætti liður í þeirri sendi- för.“ Samt reynir fræðslufulltrúi Biskupsstofu ítrekað að halda því fram að engin boðun felist í aðkomu presta að skólum. En það verður ekki bæði haldið og sleppt. Séra Örn Bárður Jónsson viðurkennir hins vegar hlutverk sitt sem trúboði en til að afsaka það vill hann klína trúboði á alla aðra líka. Í blaðagrein í Frétta- blaðinu 29. október minnir hann á að auðvitað eigi að fræða börn um kristna trú og önnur trúarbrögð í skólum. En um það standa engar deilur. Sjálfsagt er að kennsla mið- ist meira við kristna trú en Shinto- trú o.s.frv. En Örn Bárður sér ekk- ert að því að Gídeon-menn mæti í tíma hjá 10 ára börnum, gefi þeim Nýja-testamentið og leiði þau í bæn. Markmið Gídeon-manna er að „ávinna menn og konur fyrir Drottinn Jesú Krist. Dreifing Heilagrar ritningar og einstakra hluta hennar er aðferð til að ná því marki“. Þarna er því um að ræða blygðunarlaust trúboð, blöndun skólastarfs og trúarhóps. Séranum finnst þessi staða bara allt í lagi af því að meirihluti barna kemur frá kristnum heim- ilum, óhreinu börnin má bara fjarlægja rétt á meðan. Svo segir presturinn: „Börnin þín þurfa ekki að verða fyrir neinni mismunun í skóla þótt skólasystkini þeirra fari í kirkjuheimsókn á aðventunni.“ „Það er ekki mismunun í mínum augum.“ Hvað væri þá mismun- un í augum prestsins? Ef börn eru leidd til messu á vegum skólans er skólinn að fara út fyrir hlut- verk sitt og grípa inn í trúarlegt uppeldi foreldranna. Það er hins vegar ekkert að því að skólabörn fari með kennara í kirkju til að skoða húsið og munina eins og þau fara á Þjóðminjasafnið eða Nátt- úrugripasafnið. Æskilegt væri að börn gætu kynnst sem flestum trúarbrögðum og samkunduhús- um sér til fróðleiks. En þar á ekki að fara fram iðkun trúar (eins og í messu) eða innræting (eins og í messu). Messa er annað en heim- sókn. Þetta er ekki flókið. Örn Bárður sakar Mannrétt- indaráð um að vilja miðstýra skól- um í þessum málum en hann sér væntanlega ekkert athugavert við þá miðstýringu ríkisvaldsins í trú- málum að halda úti einu trúfélagi og kosta til þess fimm þúsund milljónum árlega. Og varla er neitt athugavert við að ríkið haldi skrá um trúfélagaaðild borgaranna, skrái börn þeirra meira að segja við fæðingu í trúfélag móður. Það hlýtur að teljast afar undarleg til- högun og þótt það brjóti í bága við jafnréttislög að mati Jafnréttis- stofu bólar ekkert á leiðréttingu. Hvernig stendur á því að helsti Þrándur í Götu mannréttinda og jafnréttis hér á landi er ríkisrekið trúfélag? Eitt er að verja forrétt- indi sín en annað að úthrópa jafn- réttissinna í sömu andrá sem sið- leysingja og ógn við menningu og sögu þjóðarinnar. Við könnumst við það herbragð gegn réttindum samkynhneigðra en ég er hissa á kirkjunnar mönnum að leggja enn einu sinni til atlögu gegn sjálfsögð- um mannréttindum einmitt þegar trúverðugleiki þeirra er eflaust í sögulegu lágmarki. Trúboð úr skólum Mannréttindi Reynir Harðarson formaður Vantrúar Hvernig stendur á því að helsti Þrándur í Götu mannréttinda og jafnréttis hér á landi er ríkisrekið trúfélag? AF NETINU Ég ætla að vera hér áfram Það er ábyggilega líka fallegt í Noregi hugsaði ég þegar ég fann að þjóðerniskenndin var að ná tökum á mér. Ég finn samt að ég er ekki á förum strax þó að heimiliskennsla í norsku hafi verið efld. Ég ætla að vera hér áfram og styðja ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem hleypur ekki eftir lýðskrumi þeirra sem settu hér allt á hausinn og ættu að skammast sín. Og ég bind enn vonir við það að mannréttindafólkið í VG sjái ljósið og láti af þessari heimóttarlegu afstöðu sinni gegn ESB. Við þurfum að vera fullgild í hópi Evrópuþjóða. Afkomendur okkar munu ekki líða það að búa ekki við sömu leikreglur og tíðkast með öðrum. blog.eyjan.is/baldurkr Baldur Kristjánsson verður haldið í Mál og menningu við Laugaveg föstudagskvöldið 5. nóvember kl. 20.00. Boðskort S Sæmundur Útgáfuhóf vegna Sigurðar sögu fóts Sigurðar saga fóts er nútímaleg riddarasaga, ort undir hröðum takti meistara Megasar. Texti skáldsins um Basil fursta leiðir sögupersónuna frá uppvexti í Breiðholti inn í einstakt og alþjóðlegt viðskiptaveldi. Við sögu koma óborganlegar persónur eins og fram- sóknarklerkurinn Brynjólfur, glæpakvendið Stella, Fiddarnir dularfullu, rússinn Kex Wragadjip og Litla Hraunsmaðurinn Jamil Neru, svo fáeinir séu nefndir. Sjálfur veit Sigurður fótur sér alla vegi færa og að sérhver þeirra liggur fram af bjargbrúninni. Í sögulok hittir landfl ótta viðskiptajöfur hetjur bernskunnar fyrir í afdal langt handan við hinn þekkta heim. Höfundur les úr verki sínu Sigurðar saga fóts er önnur skáldsaga Bjarna Harðarsonar en bók hans Svo skal dansa fékk afar góða dóma. Megas og Karítur Íslands troða upp undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar Gestir og gangandi gamna sér

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.