Fréttablaðið - 05.11.2010, Blaðsíða 61
FÖSTUDAGUR 5. nóvember 2010 37
Almenningsútvarp Bandaríkj-
anna, National Public Radio,
sýndi fyrir skömmu beint á net-
inu frá tónleikum Jónsa úr Sigur
Rós í hinu sögufræga Wiltern
Theater í Los Angeles. Þetta var
í fyrsta skipti sem NPR sýndi
beint frá tónleikum. Búið er að
setja saman skemmtilegt fimm
mínútna myndskeið frá tónleik-
unum sem má finna á síðunni
Jonsi.com. Myndskeiðið spann-
ar öll lög tónleikanna á ógn-
arhraða og hljómar lag Jónsa,
Sinking Friendship, undir. Jónsi
lýkur tónleikaferð sinni um
heiminn á Íslandi í Laugardals-
höll 29. desember. Forsala miða
fer fram á Midi.is. Uppselt er í
stúku.
Myndskeið á
ógnarhraða
JÓNSI Myndskeið frá tónleikum Jónsa í
Los Angeles er komið á Jonsi.com.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Söngkonan Katy Perry íhugaði að
fara í brjóstaminnkun þegar hún
var unglingur. Ástæðan er sú að
stór barmur hennar fór illa með
bakið á henni. „Ég var mjög slæm
í bakinu og var líka aðeins þétt-
vaxnari. Þegar ég eltist missti ég
barnafituna og hugsaði með mér:
„Þetta er bara alls ekkert svo
slæmt“,“ sagði Perry.
Vildi minnka
brjóstin
KATY PERRY Söngkonan íhugaði að
fara í brjóstaminnkun þegar hún var
unglingur. NORDICPHOTOS/GETTY
Danny Malone frá Texas í Bandaríkjunum
heldur tvenna tónleika á Cafe Rosenberg, í
kvöld og annað kvöld. Einnig stígur á svið
Jóhann Kristinsson, sem kynntist Malone
á lagahöfundanámskeiði í Árósum á vegum
tónlistarhátíðarinnar Spot.
„Við vorum sjö frá Norðurlöndunum og svo
fimm Texasbúar. Við vorum öll dregin saman
í kastala sem er notaður sem listaháskóli. Við
vorum þar í þrjá daga og útkoman var 23 lög,“
segir Jóhann.
Malone hefur fengið mikið lof vestanhafs
fyrir tónleika sína og þykir mjög góður laga-
höfundur. Hrósið í hans garð kemur Jóhanni
ekki á óvart. „Ég sá sólótónleikana hans á
Spot og þeir voru alveg magnaðir.“
Jóhann og Malone hafa samið tvö lög saman
og vonast til að taka upp stutta plötu meðan
á dvöl þess síðarnefnda á Íslandi stendur en
Texasbúinn er á leiðinni í tónleikaferðalag um
Evrópu. „Það er mikill heiður að fá að vinna
með honum. Ég hafði ekki hugmynd um hver
þetta var áður en ég hitti hann en hann kom
mér mjög mikið á óvart. Ég var líka að heyra
að hann hefði spilað með einu af átrúnaðar-
goðunum mínum, Lou Barlow,“ segir Jóhann
en Barlow er fyrrverandi liðsmaður Dinosaur
Jr., Sebadoh og Folk Implosion. Jóhann hefur
sjálfur gefið út eina stóra plötu, Call Jimmy,
sem kom út fyrir tveimur árum.
Enkidu og Jóhann spila á fyrra kvöldinu á
Rosenberg og Jóhann og Lára Rúnarsdóttir
á því seinna. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og
kostar 1.000 krónur inn. - fb
Texasbúi verður með tvenna tónleika
SAMAN Á TÓNLEIKUM Jóhann Kristinsson, Lára Rúnars-
dóttir og Danny Malone spila á Rosenberg.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hljómsveitin Pollapönk heldur
útgáfutónleika í Salnum í Kópa-
vogi sunnudaginn 14. nóvember
og er miðasalan hafin á Midi.
is. Tilefnið er útgáfa plötunn-
ar Meira Pollapönk sem kom
út í sumar. Þar er meðal ann-
ars að finna hið vinsæla lag 113
vælubíllinn. Pollapönk er skip-
uð leikskólakennurunum Har-
aldi F. Gíslasyni og Heiðar Erni
Kristjánssyni sem hafa oft verið
kenndir við rokksveitina Botn-
leðju. Með þeim í hljómsveitinni
eru Arnar Þór Gíslason og Guðni
Finnsson úr Ensími.
Pollapönk
fagnar plötu
American Style • Bíldshöfði 14 • Dalshraun 13 • Nýbýlavegur 22 • Skipholt 70 • Tryggvagata 26 www.americanstyle.is
þetta gildir um alla hópa sem telja fjóra eða fleiri, eina skilyrðið er að allir panti sér
Við tökum sérstaklega vel á móti öllum hópum
í nóvember og sá yngsti velur sér máltíð alveg ókeypis!
BUDDYBORÐAR FRÍTT
SÁ YNGSTI
BORÐAR FRÍTT
Í NÓVEMBER