Fréttablaðið - 05.11.2010, Síða 70
46 5. nóvember 2010 FÖSTUDAGURFÖSTUDAGSLAGIÐ
„Þetta er mjög mikilvæg sýning
fyrir framtíðarvinsældir íslenska
fjárhundsins í Bandaríkjunum,“
segir Kristina Moore, fjölmiðla-
fulltrúi hundasýningar Kennel-
klúbbsins.
Íslenski fjárhundurinn verður
frumsýndur á hundsýningu Kenn-
el-klúbbsins sem hefst í Philadelp-
hiu í Bandaríkjunum í næstu viku.
Sýningin er ein sú stærsta í heimi
og er sýnd árlega á NBC-sjónvarps-
stöðinni á þakkargjörðardaginn,
sem nú ber upp á 20. nóvember.
Búist er við að yfir 20 milljónir
manna fylgist með útsendingunni.
„Þetta er ein virtasta hundasýn-
ing Bandaríkjanna,“ segir Moore.
„Keppnin er föst hefð í lífi fjöl-
margra Bandaríkjamanna á þakk-
argjörðardaginn. Þeir horfa á
Macy‘s-skrúðgönguna og hunda-
sýninguna eftir á.“ Um 4.000 hund-
ar verða til sýnis á sýningunni, en
ásamt íslenska fjárhundinum verða
fimm ný kyn frumsýnd.
Guðni Ágústsson, formaður
deildar íslenska fjárhundsins,
segir að þetta séu toppfréttir fyrir
kynið. „American Kennel Club er
stærsti klúbburinn, þó að þeir séu
fleiri stórir í Bandaríkjunum,“
segir hann. „Forsagan er sú að það
er búið að taka langan tíma að fá
hundinn viðurkenndan þarna úti.
Það hafa verið svona tveir til þrír
stofnar að rífast, en þeir sem eru
að standa í þessu núna höfðu sam-
band við okkur og óskuðu eftir leið-
beiningum – að við segðum hvern-
ig heimalandið vildi að hundurinn
liti út.“
Kynið var viðurkennt 1. júlí síð-
astliðinn. Guðni segir að þar hafi
stórt skref verið stigið og bætir við
að þau í deild íslenska fjárhunds-
ins hafi verið afar ósátt við hvernig
málum var háttað áður en ný stjórn
tók við í ISAA, Icelandic Sheep-
dog Association of America. „Öll
hundakyn í heiminum hafa ákveð-
in ræktunarmarkmið sem segja til
um hvernig hundurinn eigi helst að
líta út,“ segir Guðni. „Við viljum
að hundurinn sé viðurkenndur um
allan heim, en við viljum að hann
sé viðurkenndur eins og við segjum
að hann eigi að vera.“
atlifannar@frettabladid.is
KRISTINA MOORE: 20 MILLJÓNIR MANNA HORFA Á SÝNINGUNA Á NBC
Íslenski fjárhundurinn á
risasýningu í Bandaríkjunum
„Þetta gekk bara vel, held ég, allavega var þetta mjög
skemmtilegt,“ segir Toshiki Toma, prestur innflytj-
enda á Íslandi. Tökur standa nú yfir á sjónvarpsþátta-
röð upp úr bók Egils „Gillz“ Einarssonar, Mannasiðir
Gillz, sem Hannes Þór Halldórsson leikstýrir. Og á
miðvikudagskvöld var blásið til allsherjar karókí-
veislu.
Eins og lög gera ráð fyrir varð auðvitað að hafa
japanskan þátttakanda til að fanga rétta andrúms-
loftið enda á karókí rætur sínar að rekja til Japans.
Toshiki brást snöggur við beiðni um að syngja og tók
lagið fyrir myndavélarnar. „Mig langaði fyrst til að
syngja Frank Sinatra enda hefur hann verið í miklu
uppáhaldi hjá mér. En það var einhver annar búinn
að velja hann,“ útskýrir Toshiki, sem varð þá að velja
Carpenters-lagið Yesterday Once More og flutti það
auðvitað með glæsibrag.
Hannes Þór Halldórsson, leikstjóri þáttanna, var
ákaflega ánægður með klerkinn og hans framlag.
„Við vorum að fara þarna í hvernig maður á að haga
sér í karókí og hvernig ekki,“ segir Hannes. Tökur
á leikna hluta þáttaraðarinnar hafa staðið yfir í tólf
daga og fjölda þjóðþekktra einstaklinga bregður þar
fyrir, meðal annars Agli Ólafssyni, Eddu Björgvins-
dóttur, Gísla Erni, Birgi Leifi og svo bregður Ásgeiri
Kolbeins fyrir í litlu „feluhlutverki“. Aðalhlutverkin
eru hins vegar í höndunum á Halldóri Gylfasyni,
Jóhannesi Hauki, Steinda, Víkingi Kristjánssyni og
Eddu Björg Eyjólfsdóttur. Hannes segir að nú verði
hins vegar farið í upptökur á hetjunni sjálfri. - fgg
Toshiki syngur fyrir Gillz
CARPENTERS-SNILLD Toshiki Toma sagði það ekki hafa verið
létt að flytja Yesterday Once More, hann hefði helst viljað
syngja Frank Sinatra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GÓÐAR FRÉTTIR Guðni Ágústsson, formaður deildar íslenska fjárhundsins, ásamt tík-
unum Ylfu og Sunnu. Sérstök ættarnöfn þeirra eru Íseyjar-Ylfa og Keilis-Sunna. Guðni
fagnar fréttunum af landvinningum íslenska fjárhundsins í Bandaríkjunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Keppnin er föst
hefð í lífi fjölmargra
Bandaríkjamanna á þakkar-
gjörðardaginn. Þeir horfa á
Macy‘s-skrúðgönguna og
hundasýninguna eftir á.
KRISTINA MOORE
FJÖLMIÐLAFULLTRÚI KENNEL-KLÚBBSINS
„Þetta er mjög kaldhæðið og í raun bara ömur-
legt. En svona er bara þessi bransi og það verða
bara Skype-jól í ár,“ segir Stefán Karl Stefáns-
son leikari.
Stefán er byrjaður að leika aftur græna tröllið
í söngleiknum Hvernig Trölli stal jólunum, sem
fer á flakk um mið- og suðurríki Bandaríkjanna
og lýkur í Toronto í Kanada um jólin. Hann þarf
að eyða jólunum einn í Toronto.
Stefán var staddur í Omaha þegar Fréttablað-
ið náði tali af honum og segir það hafa verið
ógjörning að fljúga allri fjölskyldunni yfir
landamærin til Kanada. „Það hefði kostað rúm-
lega hálfa milljón og slíkt hefði þýtt engar jóla-
gjafir í ár.“ Stefán segir það óneitanlega grát-
broslegt að ein af lykilsetningum sýningarinnar
sé einmitt að enginn skuli vera einn um jólin.
„Ef ég væri „method“-leikari þá hefði þetta
kannski verið í lagi. En ég er það náttúrlega
ekki og þess vegna er þetta fúlt.“
Níutíu sýningar hafa verið skipulagð-
ar en nánast uppselt er á þær allar, sem
þýðir að Stefán mun að öllum líkindum
leika fyrir rúmlega 200 þúsund manns
þar sem ekkert leikhús undir 2.300
áhorfendum getur hýst sýninguna.
„Við erum 32 leikarar og 64 alls. Við
fljúgum á milli staða en leikmyndin og
leikmunir eru ferjaðir á milli í ellefu
áttatíu feta trukkum,“ útskýrir Stef-
án, sem verður því nánast á stans-
lausu ferðalagi næstu tvo mánuði en
síðasta sýningin verður 2. janúar.
- fgg
FÚLT Stefán Karl þarf að vera
einn um jólin en þegar hátíð
ljóss og friðar stendur sem hæst
verður hann í Toronto að leika
í söngleiknum Hvernig Trölli stal
jólunum.
„Það er lagið Til í allt með Frið-
riki Dór, Steinda Jr. og Ásgeiri,
fáránlega ferskt lag af nýja
disknum hans Frikka sem öskrar
á mig að nú sé helgin komin.“
Skúli Jón Friðgeirsson, knattspyrnumaður
í KR.
Kaldhæðin örlög Stefáns Karls
Litla bókin um Dísu ljósálf er loksins fáanleg aftur
Endurnýjaðu kynnin við þessa hugljúfu sögu
Fös 5.11. Kl. 20:00 6. sýn
Lau 6.11. Kl. 20:00 7. sýn
Fim 11.11. Kl. 20:00 8. sýn
Fös 12.11. Kl. 20:00
Fös 19.11. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 20:00
Sun 21.11. Kl. 15:00 br. sýn.t.
Lau 27.11. Kl. 20:00
Sun 28.11. Kl. 20:00
Lau 4.12. Kl. 20:00
Sun 5.12. Kl. 20:00
Lau 6.11. Kl. 13:00
Lau 6.11. Kl. 15:00
Sun 7.11. Kl. 13:00
Sun 7.11. Kl. 15:00
Lau 13.11. Kl. 13:00
Lau 13.11. Kl. 15:00
Sun 14.11. Kl. 13:00
Sun 14.11. Kl. 15:00
Lau 20.11. Kl. 13:00
Lau 20.11. Kl. 15:00
Sun 21.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 15:00
Sun 28.11. Kl. 13:00
Sun 28.11. Kl. 15:00 100 sýn.
Fim 4.11. Kl. 20:00
Fös 5.11. Kl. 20:00
Lau 6.11. Kl. 20:00
Fim 11.11. Kl. 20:00
Fös 12.11. Kl. 20:00
Lau 13.11. Kl. 20:00
Fös 19.11. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 20:00
Fös 26.11. Kl. 20:00
Lau 27.11. Kl. 20:00
Fös 3.12. Kl. 20:00
Lau 4.12. Kl. 20:00
Sun 7.11. Kl. 19:00
Mið 10.11. Kl. 19:00
Sun 14.11. Kl. 19:00
Mið 24.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 25.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fös 10.12. Kl. 19:00 Aukas.
Lau 11.12. Kl. 19:00 Aukas.
Sun 12.12. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 4.11. Kl. 20:00
Lau 13.11. Kl. 20:00
Fim 18.11. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 26.11. Kl. 20:00
Fim 2.12. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 3.12. Kl. 20:00
Ö
U
U
U
Finnski hesturinn (Stóra sviðið)
Fíasól (Kúlan)
Hænuungarnir (Kassinn)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö Ö
Ö
Ö
U
Lau 27.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 14:30
Sun 28.11. Kl. 11:00
Sun 28.11. Kl. 13:00
Sun 28.11. Kl. 14:30
Lau 4.12. Kl. 11:00
Lau 4.12. Kl. 13:00
Lau 4.12. Kl. 14:30
Sun 5.12. Kl. 11:00
Sun 5.12. Kl. 13:00
Sun 5.12. Kl. 14:30
Lau 11.12. Kl. 11:00
Lau 11.12. Kl. 13:00
Lau 11.12. Kl. 14:30
Sun 12.12. Kl. 11:00
Sun 12.12. Kl. 13:00
Sun 12.12. Kl. 14:30
Lau 18.12. Kl. 11:00
Lau 18.12. Kl. 13:00
Lau 18.12. Kl. 14:30
Sun 19.12. Kl. 11:00
Sun 19.12. Kl. 13:00
Sun 19.12. Kl. 14:30
Leitin að jólunum
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
U
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö
U
U
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki