Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 52
32 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Charlotte
Böving
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
ÉG trúi því að heimurinn væri betri ef
konur hefðu einkarétt á landeignum.
Í þessum heimshluta veltum við jarð-
eignum ekki svo mikið fyrir okkur, að
minnsta kosti ekki hvors kyns eigendur
eru. En í mörgum þróunarlöndum, svo
sem í Afríku og víða í Suður-Ameríku,
hefur reynslan sýnt að fái konur að eiga,
jafnvel bara að rækta, lítinn landskika
bætir það lífskjör fjölskyldunnar. Á flest-
um stöðum hafa konur þó enga eða mjög
takmarkaða möguleika á því að eign-
ast land. Það þýðir að karlmenn geta
vísað þeim (og börnum) á dyr gangi
hjónaband ekki upp. (Og við vitum
vel hve erfitt getur verið að láta
hjónabönd ganga upp. Ekki ómögu-
legt, en erfitt!)
MÉR finnst að þessu ætti að vera
algerlega öfugt farið. Konur
ættu að eiga jörðina og menn
ættu að vinna sér inn ábú-
andarétt. Til dæmis með
vinnuafli við landrækt eða
með handiðn. Þeir gætu
líka skrifað bækur eða ljóð
til flutnings eða þeir gætu
fundið upp hluti eða… ja,
mennirnir ættu alveg að
geta fundið sér eitthvað til
dundurs og lagt þannig í
púkk til að verða okkur úti um föt, mat og
þær utanlandsferðir eða annað sem okkur
dreymir um. Þeir gætu líka notað tíma í
að læra að verða góðir elskhugar, þannig
að konurnar langaði að hafa þá sem næst
sér. Það eina sem þeir mættu ekki væri að
eiga land. Jörðina ættu konurnar og hún
gengi í arf frá móður til dóttur.
Í dag eiga karlmenn mestan hluta af land-
eignum heimsins. Og hvernig hefur það nú
gengið? Taktu þér mínútu til að íhuga það.
ÞEGAR landnámsmenn og -konur komu
til Íslands kringum 870 giltu reglur um
landnámið. Fólk gat eignast það land-
svæði sem það komst yfir frá sólarupp-
rás til sólseturs. Karlmaður mátti safna
mönnum sínum og þrælum, söðla hesta og
ríða út með kyndla. Það land sem fylkt lið
hans gat afmarkað með kyndlunum fyrir
sólsetur varð eign hans.
KVENMAÐUR hafði jafn mikinn tíma, en
lengra náði jafnréttið ekki. Konan varð
að fara fótgangandi og fékk til fylgdar kú,
sem hún varð að hafa í eftirdragi!
FÆRUM mæðrunum aftur móðurjörðina
og gefum karlpeningnum frí frá eignar-
réttinum, sem þeir ráða hvort sem er ekk-
ert við. Ég myndi byrja á því að breyta
álverum í gróðurhús.
Móðir Jörð aftur til mæðranna
TrúðafiskarKalli og Grímur
ramba inn á
undarlegt
sædýrasafn
Boxfiskar Kattfiskur
Ojoj maður! Það
er ljóta ástandið á
Liverpool! Ég held
að þeir falli í ár!
Ha,
heldurðu
það?
Svona er
þetta bara
stundum!
Hæ afi, þetta
er Palli.
Nei, engin
sérstök
ástæða.
Nei í alvöru. Þarf ég
einhverja ástæðu til að
hringja?
Má ég ekki bara
hringja út af engu?
Er það ekki
nógu góð
ástæða?
Heyrðu, fyrst ég er með þig
á línunni, langar þig ekki að
kaupa nokkur tímarit?
Við þurfum
bara að kom-
ast í gegnum
þetta! Þetta
bjargast!
Hugsa fallega!
LÁRÉTT
2. sléttur, 6. í röð, 8. slagbrandur, 9.
fugl, 11. hreyfing, 12. blakt, 14. gort,
16. í röð, 17. hyggja, 18. ennþá, 20.
utan, 21. velta.
LÓÐRÉTT
1. helminguð, 3. þys, 4. garðplöntu-
tegund, 5. miskunn, 7. þrútinn, 10.
innanfita í dýrum, 13. lítið býli, 15.
knippi, 16. húðpoki, 19. nudd.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lygn, 6. áb, 8. slá, 9. lóm,
11. ið, 12. flökt, 14. grobb, 16. hi, 17.
trú, 18. enn, 20. án, 21. snúa.
LÓÐRÉTT: 1. hálf, 3. ys, 4. glitbrá, 5.
náð, 7. bólginn, 10. mör, 13. kot, 15.
búnt, 16. hes, 19. nú.