Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 64
 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR Rokkabillíkvöld verður á Faktorý annað kvöld. Aðal- númerið er hljómsveitin The 59‘s sem stefnir á tón- leikaferðalag til Japans á næsta ári. „Rokkabillíið er sko alls ekki búið,“ segir Gísli Veltan, en hljómsveit hans, The 59‘s, spil- ar á Rokkabillíkvöldi á Faktorý á föstudaginn. The 59‘s er skipuð söngvaranum Gísla, bróður hans Aroni Erni, gít- arleikaranum Pétri Hallgrímssyni og bassaleikaranum Smutty Smiff, en sá síðastnefndi er töluvert nafn innan rokkabillísins. „Smutty er Breti en hefur búið í Bandaríkjunum nánast allt sitt líf. Hann er búinn að vera í rokka- billíbransanum í rúm þrjátíu ár og var í fyrstu rokkabillíhljómsveit- inni sem gerði það gott eftir Elvis en hún hét Levi and the Rockats,“ segir Gísli. Hann segir Smutty hafa komið hingað til lands, fundið sér íslenska konu og síðar ákveð- ið að finna liðsmenn í rokkabillí- hljómsveit. Hann hafi fundið þá Gísla og Aron og fyrst þá hafi hlut- irnir farið að gerast. Síðar hafi svo Pétur Hallgrímsson gengið til liðs við bandið, en hann hefur meðal annars spilað með Lay Low og Ellen Kristjánsdóttur. Þrátt fyrir að rokkabillítíma- bilið sé löngu liðið segir Gísli tón- listina lifa vel. „Rokkabillíið er kannski lítið á Íslandi en í Skand- inavíu er það mjög stórt. Við spil- um í Noregi strax eftir jól og erum svo að spá í að fara að túra í Japan á næsta ári. Þetta er svo stórt alls staðar annars staðar.“ Gísli segir tískufyrirmyndirnar vera gömlu rokkkóngana Eddie Cochran og Elvis Presley. „Við erum auðvitað í leðurjökkum með „greasað“ hárið,“ segir Gísli og viðurkennir að það komi fyrir að fólk stari á þá á götunni. The 59‘s spila á Faktorý á föstudagskvöldið, en hljómsveit- irnar Bárujárn og Blues Willis koma líka fram, ásamt DJ Gísla Glym skratta. Húsið verður opnað klukkan tíu en tónleikarnir hefj- ast klukkan ellefu og kostar ekk- ert inn. Þemaklæðnaður er hins vegar æskilegur og eru verðlaun veitt fyrir flottasta dressið. kristjana@frettabladid.is Íslenskt rokkabillí til Japans LEÐUR OG „GREASAГ HÁR Það eru kannski nokkur ár á milli þeirra Péturs, Arons, Gísla og Smutty en þeir eru allir jafn töff. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 52 23 6 11 /1 0 HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS North Face fatnaður jólatilboð VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. SENDU SMS ESL AGV Á NÚMERIÐ 1900. ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA! Fullt af aukavinningum: Tölvuleikir · DVD myndir og fleira! SÖGULEG EPÍSK STÓRMYND MEÐ RACHEL WEISZ Í AÐALHLUTVERKI UM BARÁTTU OG UPPGJÖR Í EGYPTALANDI UNDIR STJÓRN RÓMVERJA! FRUMSÝND 26. NÓVEMBER VILTU MIÐA! 9. HVER VINNUR! Við spilum í Noregi strax eftir jól og erum svo að spá í að fara að „túra“ í Japan á næsta ári. Þetta er svo stórt alls staðar annars staðar. GÍSLI VELTAN SÖNGVARI THE 59’S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.