Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 6
6 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR
KJARAMÁL Forystumenn launþega-
hreyfinga hafa misjafna afstöðu
til hugmynda um gerð nýs stöðug-
leikasáttmála. Sumir eru hlynntir
en aðrir hafa miklar efasemdir um
að sú leið gagnist umbjóðendum
þeirra.
Kristinn Örn Jóhannesson, for-
maður VR, er í hópi jákvæðra.
„Við þekkjum af reynslu fyrri ára
að kaupmáttaraukning hefur feng-
ist í gegnum þjóðarsáttarsamninga.
Ég er því þeirrar skoðunar að þetta
sé skynsamasta leiðin að bættum
kjörum,“ segir hann.
Meginkrafa VR er að kaupmátt-
arrýrnunin undanfarið verði stöðv-
uð og að kaupmáttur verði byggð-
ur upp á ný. „Það þarf vegvísi til
framtíðar með markmiðum um
skatta, atvinnuuppbyggingu og
fleira. Stöðugur gjaldmiðill er líka
grunnforsenda þess að hægt sé að
gera kjarasamninga sem standast
til lengri tíma.“ Augljóst sé þó að
nýr gjaldmiðill verði ekki tekinn
upp í einu vetfangi en skilyrði fyrir
upptöku evru séu út af fyrir sig góð
markmið að fylgja.
BHM ályktaði í vor um skilyrði
fyrir þátttöku í heildarsátt um
kjaramál. Í ályktuninni er meðal
annars krafist leiðréttingar á kaup-
máttarskerðingu frá miðju ári 2008
og að markvisst verði unnið að því
að meta háskólamenntun til launa.
„Ef ályktun okkar verður grund-
völlur viðræðna þá erum við til,“
segir Guðlaug Kristjánsdóttir,
formaður BHM, aðspurð um
afstöðuna til hugmynda um nýjan
stöðugleikasáttmála.
Fram hefur komið að Samtök
atvinnulífsins vilja samning til
þriggja ára með „hóflegum“ launa-
hækkunum. Guðlaug segist ekki
skrifa undir sáttmála um að fylgja
núverandi láglaunastefnu. Kjör
félagsmanna aðildarfélaga BHM
hafi rýrnað mikið, ráðstöfunartekj-
ur sem kaupmáttur. Frá hruni hafi
allt verið tekið af fólki sem ekki
hafi verið naglfast í samningum;
starfshlutafall lækkað, yfirvinna
skert og vaktakerfum breytt.
Laun háskólafólks hafi lækkað
um 30 prósent, jafnvel meira, og
dæmi séu um að þau séu komin
undir bætur.
Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambandsins, lýsti í Ríkis-
útvarpinu í gær efasemdum um að
nýr stöðugleikasáttmáli væri góð
hugmynd. Sá gamli hafi reynst það
illa.
Möguleg sameigingleg vegferð
launþega og vinnuveitenda í kom-
andi kjaraviðræðum verður rædd
á fundi í dag. bjorn@frettabladid.is
Skiptar skoðanir um
gildi nýs sáttmála
Formaður VR segir nýjan stöðugleikasáttmála skynsömustu leiðina að bættum
kjörum. Formaður KÍ efast þar sem reynslan sé slæm. BHM setur margvísleg
skilyrði fyrir samstarfi um heildarsátt á vinnumarkaði. Málin verða rædd í dag.
UNDIRRITUN Forystumenn launþega, atvinnurekenda, ríkis og sveitarfélaga gengu frá
sáttmála um endurreisn efnahagslífsins sumarið 2009. Samtök atvinnulífsins sögðu
sig frá honum níu mánuðum síðar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Farðu inn á www.oddi.is
og búðu til persónulega gjöf.
Spil og jóladagatöl með þínum myndum.
Hannaðu þín
eigin spil eða
jóladagatal
á oddi.is
Berum virðingu fyrir
stjórnarskránni
Við verðum að vanda
til verka á stjórnlaga-
þinginu og ná sátt um
stjórnarskrána.
Setjum Ingu Lind í
eitt af efstu sætunum.
8749www.ingalind.is
DÓMSMÁL Kona sem rann á döðlu
í verslun Hagkaupa við Eiðistorg
fyrir fimm árum á rétt á skaða-
bótum frá verslanakeðjunni. Hér-
aðsdómur Reykjavíkur kvað upp
svofelldan dóm í gær.
Konan steig á döðlu sem hafði
dottið á gólfið af ávaxtaborði
verslunarinnar. Hún féll við
og slasaðist á hné svo hún var
óvinnufær í tíu daga. Hún kveðst
enn búa að afleiðingum slyssins.
Hún fór í mál á grundvelli þess að
Hagkaup hefðu vanrækt þrif.
Hagkaup hafa mótmælt kröfu
konunnar um viðurkenningu bóta-
ábyrgðar og bera því við að um
óhappatilvik hafi verið að ræða.
„Liggi í augum uppi, að rekstr-
araðilum verzlana sé algerlega
ómögulegt að búa svo um hnút-
ana, að litlir ávextir, eins og döðl-
ur, falli aldrei á gólfið.“
Dómari er ósammála: „Mátti
stefnandi gera ráð fyrir, að leið-
in inn í verzlunina væri hættu-
laus og verður henni ekki virt það
til eigin sakar, að hafa ekki haft
augun á gólfinu, þegar hún gekk
um ávaxtadeildina.“
Bótaskyldan er því viðurkennd
og Hagkaupum gert að greiða 740
þúsund krónur í málskostnað.
- sh
Hagkaup báru ábyrgð á að ávaxtadeildin væri hættulaus viðskiptavinum:
Rann á döðlu í Hagkaupum
EIÐISTORG Konan slasaðist á hné við
fallið og var frá vinnu í tíu daga.
FRÉTTABLAÐIÐ / PJETUR
Hávaði vegna tölvuleiks
Lögregla var kölluð að fjölbýlishúsi
í Reykjavík í fyrrinótt vegna mikils
hávaða. Kom í ljós ungur maður
hafði orðið svo æstur í ofbeldisfullum
tölvuleik að hann skrúfaði hljóðrásina
upp. Lögreglan skakkaði leikinn og ró
komst aftur á í húsinu.
Fundu fíkniefni við húsleit
Fíkniefni fundust við húsleit í Kópa-
vogi á mánudag en um var að ræða
50 grömm af marijúana og ámóta
magn af hassi. Hluti fíkniefnanna
fannst utandyra og auk þess var lagt
hald á 300 þúsund krónur í reiðufé.
Húsráðandi var handtekinn og játaði
hann aðild sína að málinu.
Ofbeldismenn handteknir
Lögreglan hefur handtekið tvo ofbeld-
ismenn sem ruddust inn á heimili í
Hlíðunum í fyrradag. Mennirnir voru
að innheimta skuld sem húsráðandi
kannaðist ekki við. Húsráðandi snerist
til varnar og fór svo að ofbeldismenn-
irnir flúðu. Þeir hafa áður komið við
sögu lögreglunnar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SJÁVARÚTVEGUR Frægur breskur
matreiðslumaður, Hugh Fearn-
ley-Whittingstall, hefur safn-
að yfir 30 þúsund undirskrift-
um þar sem skorað er á Maríu
Damanaki, fiskveiðistjóra Evr-
ópusambandsins, að banna
brottkast á fiski.
Kokkinum ofbýður sóunin
sem viðgengst undir regluverki
ESB, en hann segir brottkastið
alvarlegasta ágalla hinnar sam-
eiginlegu fiskveiðistefnu sam-
bandsins, Common Fisheries
Policy. Fjallað er um herferðina
í stórblaðinu The Independent.
Staðhæft er að allt að því
helmingi alls afla sé kastað
aftur frá borði við veiðar í Norð-
ursjó, enm Callum Roberts,
prófessor í sjávarlíffræði við
Jórvíkurháskóla, álítur að hlut-
fallið sé jafnvel enn hærra.
- shá
Kokkur gagnrýnir ESB:
Vill uppræta
brottkast á fiski
INDÓNESÍA, AP Pujiono Cahyo Widi-
anto, 46 ára múslimaklerkur í
Semarang á Indónesíu, var í gær
dæmdur í fjögurra ára fangelsi
fyrir kynferðisbrot gegn tólf ára
stúlku. Widianto bauð þúsundum
manna í brúðkaup sitt og stúlk-
unnar árið 2008. Hann sagðist þá
ekki ætla að sofa hjá eiginkonu
sinni fyrr en hún yrði kynþroska.
Almenningi í landinu ofbauð
framferði mannsins, einkum
þegar hann sagðist einnig ætla að
kvænast tveimur öðrum stúlkum,
sjö og níu ára gömlum. - gb
Múslimaklerkur á Indónesíu:
Dæmdur fyrir
kynferðisbrot
STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður
Alþingis átelur landbúnaðarráð-
herra fyrir að hafa ekki afgreitt
umsókn innflytjanda um leyfi
til að flytja inn egg frá Svíþjóð
tveimur og hálfu ári eftir að
umsóknin var lögð fram.
Í nýju áliti umboðsmanns
kemur fram að tilvonandi inn-
flytjandi hafi í febrúar 2008 sótt
um leyfi til að flytja inn sænsk
egg. Hann kvartaði til umboðs-
manns í ágúst síðastliðnum,
þegar umsóknin hafði velkst um
í kerfinu í tvö og hálft ár.
Þessi mikli dráttur samrým-
ist ekki ákvæðum um málshraða
í stjórnsýslulögum, að mati
umboðsmanns Alþingis.
Í svari ráðuneytisins við fyrir-
spurn umboðsmanns kemur fram
að málið hafi strandað á því að
umsögn um innflutninginn hafi
ekki borist frá Matvælastofnun.
Umboðsmaður Alþingis segir
ráðherra hafa skyldu til að hafa
áhrif á hvernig undirstofnan-
ir hans ræki sín verkefni. Hann
hefði átt að setja stofnuninni
tímafrest og mögulega áminna
forstjóra stofnunarinnar hefði
hún ekki skilað umsögn innan
þess tíma. - bj
Umboðsmaður átelur ráðherra vegna umsóknar um innflutning á eggjum:
Velktist um í kerfinu í á þriðja ár
FIÐURFÉ Dráttur á umsögn Matvælastofnunar veldur því að óvíst er hvort leyfi fæst
til að selja sænsk egg hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Getur þú fjármagnað jólahaldið
vandræðalaust?
JÁ 54,9%
NEI 45,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnur þú fyrir skertri þjónustu
hjá þínu sveitarfélagi?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN