Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 25. nóvember 2010 21
Breski fjárfestingarsjóðurinn 3i greindi
frá því í gær að hann hafi keypt hollenska
iðnfyrirtækið Stork Material Technologies
fyrir 150 milljónir evra, jafnvirði 23 millj-
arða króna. Fyrirtækið var hluti af hol-
lensku iðnsamsteypunni Stork. Söluandvirði
verður nýtt til niðurgreiðslu á skuldum, að
sögn breska viðskiptablaðsins Financial
Times.
Eyrir Invest, stærsti hluthafi Marels og
einn af stærri hluthöfum Össurar, keypti
Stork með Marel, Landsbankanum og
breska fjárfestingarsjóðnum Candover síðla
árs 2007 fyrir 400 milljónir evra. Marel
keypti Stork Food Systems síðla árs 2007
og hafa aðrar deildir utan kjarnastarfsemi
verið seldar síðan þá, svo sem sextíu pró-
senta hlutur í Stork Print, sem framleiðir
vélar til litunar á fatnaði.
Stork hefur nú verið skipt upp í tvær ein-
ingar, Fokker, sem framleiðir þyrlur, her-
þotur og flugvélaíhluti, og Stork Technical
Services, sem starfar í gas-, olíu- og orku-
iðnaði. Eyrir á í dag sautján prósenta hlut í
báðum félögum með Candover.
Iðnsamsteypan Stork var skráð á hluta-
bréfamarkað í Amsterdam þegar Eyrir og
fleiri fjárfestar réðust í yfirtöku á fyrir-
tækinu fyrir þremur árum. Það var tekið
af markaði í kjölfarið og er stefnan að skrá
félögin á markað á ný í sitt hvoru lagi innan
tveggja ára. - jab
SJOERD VOLLEBREGT Forstjóri Stork er ánægður með sölu á
eignum fyrirtækisins.
Eyrir Invest og meðfjárfestar selja eignir í Hollandi fyrir 23 milljarða króna:
Stefnt er að skráningu á ný
Iceland Express býður nú farþeg-
um sínum til leigu iPad á flestum
flugleiðum félagsins.
Fram kemur í tilkynningu
félagsins að það sé fyrst evr-
ópskra flugfélaga til að bjóða slíka
þjónustu um borð.
„Farþegar Iceland Express geta
með iPad-num lesið íslensk blöð
og valin erlend, svo og ýmis tíma-
rit. Þá er einnig mögulegt að horfa
á kvikmyndir, sjónvarpsþætti,
hlusta á útvarp og spila tölvu-
leiki,“ segir þar jafnframt.
Samkvæmt upplýsingum fyrir-
tækisins kostar 1.500 krónur að
leigja tölvuna. - óká
Nýjun í flugafþreyingu:
Fyrst í Evrópu
með iPad í flugi
Markaðurinn með atvinnuhús-
næði hefur varla verið svipur hjá
sjón frá bankahruni, að því er
fram kemur í umfjöllun greining-
ar Íslandsbanka í gær.
„Það sem af er þessu ári hefur
87 kaupsamningum um atvinnu-
húsnæði verið þinglýst að meðal-
tali í mánuði hverjum en mikl-
ar sveiflur hafa verið í þessum
tölum á milli mánaða,“ segir í
Morgunkorni bankans og ekki
sögð merki um viðsnúning.
„Þannig var færri samningum
þinglýst í október í ár heldur en í
sama mánuði í fyrra.“ Fækkunin
er sögð nema níu prósentum milli
ára. - óká
Atvinnuhúsnæðissala dræm:
Engin merki
um viðsnúning
TÓMLEGT Sala á atvinnuhúsnæði er enn
dræm, en hún hrundi með bönkunum
haustið 2008. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Frestur til að skila inn bindandi
kauptilboði í fasteignafélagið
Regin A3 ehf. rennur út 20.
desember næstkomandi. Seljandi
er Reginn ehf., dótturfélag Lands-
bankans.
Fram kemur í tilkynningu að
Reginn A3 eigi sjö fasteignir sem
séu að meginhluta leigðar undir
smásölurekstur á höfuðborgar-
svæðinu. Félagið er sagt vera með
24 leigusamninga við 19 leigutaka.
„Heildarfjöldi útleigðra fermetra
er um 7.800.“
„Söluferlið er opið öllum áhuga-
sömum fjárfestum, sem standast
hæfismat og sýnt geta fram á fjár-
festingargetu umfram 350 millj-
ónir króna.“ - óká
Fasteignafélag sett í söluferli:
Þurfa að geta
fjárfest fyrir
350 milljónir