Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 54
34 25. nóvember 2010 FIMMTUDAGUR34 menning@frettabladid.is Ljósmyndabókin Andlit eftir Jónatan Grétarsson kemur út hjá Sölku á morgun. Bókin inniheldur portrett af ýmsum lista- mönnum en Guðmundur Andri Thorsson skrifar texta. Jónatan er liðlega þrítugur og hefur starfað sem ljósmyndari undanfarinn áratug. Hann hefur unnið markvisst að bókinni And- lit síðan 2007 en efniviðnum hefur hann verið að safna undanfarin fimm ár. „Þetta er langtímaverkefni til næstu 40 ára,“ útskýrir hann, „þar sem sömu íslensku listamennirnir koma til mín aftur og aftur á nokk- urra ára fresti, bæði til skrásetn- ingar og einnig svo hægt sé að sjá breytinguna sem verður á þeim og hjá mér. Markmiðið er að búa til úr þessu eins konar menningararf.“ Jónatan sér fyrir sér röð bóka og sýninga með þessu gegnum- gangandi stefi. Fyrsta sýningin var haldin í Hafnarborg í fyrra undir yfirskriftinni Íslenskir listamenn, og Andlit er fyrsta bókin í röðinni. Hann hefur myndað vel yfir hundrað listamenn. „Þetta eru listamenn á öllum aldri, Kristján Davíðsson er aldursforsetinn, hann er níræður, en þeir yngstu eru á þrítugsaldri. Það var ekkert mál að fá fólk til liðs við mig. Margir sóttust eftir því og fannst það bæði merkilegt og verðugt.“ Jónatan notar samspil ljóss og skugga til að mála sterkar myndir af svipmiklu fólki. „Myndirnar eru mjög realistískar; lýsingin er hörð og dregur fram alla drætti í and- liti manneskjunnar; við sjáum hana nákvæmlega eins og hún er. Ég held að það sé ein af ástæðunum fyrir því að við heillumst af portrettum, hvernig þær draga fram landslagið í andlitinu.“ Guðmundur Andri Thorsson skrifaði texta við myndirnar eftir því sem andinn blés honum í brjóst. „Ég valdi úr þeim textum eftir því hvað mér fannst eiga við. Þetta er ekki línuleg frásögn, heldur er textinn hugsaður til að brjóta form- ið upp á vel völdum stöðum.“ Útgáfuhóf bókarinnar verður haldið í sýningarsal Iðu á laugar- dag frá klukkan 16 til 18. Allir eru velkomnir. bergsteinn@frettabladid.is LANDSLAGIÐ Í ANDLITINU 22 listamenn og hönnuðir sem stunda nám við listkennsludeild Listaháskóla Íslands fjalla um sjálfbærni á sýningu í Hugmynda- húsi háskólanna um helgina. Sýn- ingin er lokahnykkur námskeiðs sem bar heitið Listir og sjálf- bærni. Að sögn kennara þess, Ást- hildar B. Jónsdóttur, fólst áfang- inn meðal annars í því að rýna í opinbera stefnu um menntun til sjálfbærrar þróunar, meðal ann- ars með hliðsjón af hugmyndum Sameinuðu þjóðanna um áratug til menntunar til sjálfbærrar þró- unar. „Við skoðuðum mikilvægi lista til að auka skilning á sjálf- bærri þróun og mikilvægi hennar. Það eru til fjölmargar skrifleg- ar heimildir um sjálfbæra þróun en framsetningin er oft töluvert flókin. Hér er um annars konar og myndræna framsetningu að ræða,“ segir Ásthildur. Sem dæmi um hvernig lista- menn geta unnið listaverk sem benda á mikilvægi sjálfbærrar þróunar nefnir Ásthildur verkefn- ið 350 Earth en hluti þess er mynd Bjargeyjar Ólafsdóttur af ísbirni sem hún hugðist mála á Langjökul og greint var frá í Fréttablaðinu í fyrradag. Verkin í Hugmyndahúsi háskól- anna verða til sýnis laugardaginn og sunnudaginn 27. og 28. nóvem- ber næstkomandi frá klukkan 14- 17. Listamenn fjalla um sjálfbærni JÓNATAN GRÉTARSSON Hugsar Íslenska listamenn sem langtímaverkefni til næstu áratuga, þar sem hann myndar sömu lista- mennina með nokkura ára millibili. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA THOR VILHJÁLMSSON Í hópi þeirra fjöldamörgu listamanna sem Jónatan hefur myndað. ÁSTHILDUR B. JÓNSDÓTTIR Nemendur hennar í Listaháskóla Íslands hafa fengist við listir og sjálfbærni í vetur. Afraksturinn verður til sýnis í Hugmyndahúsi háskólanna um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Dr. Bjarni Þórarinsson myndlistarmaður og Jón Proppé sýningarstjóri ræða yfirlitssýningu á verkum þess fyrrnefnda í Nýlistasafninu á sunnu- dag. Bjarni hefur um meira en tuttugu ára skeið rann- sakað tengsl myndlistar og tungumáls og þróað heila fræðigrein kring- um rannsóknir sínar, sem síðan hefur orðið honum uppspretta listaverka, bæði mynda og texta. Yfirlitssýningin á verk- um hans var opnuð 23. október og stendur til 5. desember. L eiðsög n i n hefst klukkan 15. Aðgangur er ókeypis og allir eru vel- komnir. Bjarni ræðir verk sín 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 Furðustrandir Arnaldur Indriðason Þokan - Þorgrímur Þráinsson Svar við bréfi Helgu Bergsveinn Birgisson Ég man þig Yrsa Sigurðardóttir Jólasyrpa 2010 Walt Disney Stelpur! - Þóra Tómasdóttir og Kristín Tómasdóttir METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 17.11.10 - 23.11.10 Gunnar Thoroddsen Guðni Th. Jóhannesson Hreinsun Sofi Oksanen Þú getur eldað Annabel Karmel Stóra Disney matreiðslubókin SÝNING RAX FRAMLENGD Vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið að framlengja til ára- móta ljósmyndasýningarnar Veiðimenn norðursins og Andlit aldanna eftir Ragnar Axelsson í Gerðarsafni. Undanfarna þrjá áratugi hefur RAX myndað lífshætti veiðimanna á norðurhveli jarðar. Hann hefur hlotið fjöldamargar viðurkenningar fyrir ljósmyndir sínar og er heiðurslistamaður Kópavogs 2010. DR. BJARNI ÞÓRARINSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.