Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 25.11.2010, Blaðsíða 38
 25. NÓVEMBER 2010 FIMMTUDAGUR4 ● em kvenna 2010 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingkona og handboltadómari, lærði dómgæslu eftir dómara- skandal í leik ÍR. „Eins og vinkona mín segir söguna þá vorum við ÍR- stelpurnar í Tumerik að keppa og það varð skandall í dómaragæsl- unni. Við ræddum mikið hvern- ig við gætum lagað þetta því ekki þýddi að fjasa í dómaranum. Ég fór í framhaldinu á dómaranámskeið. Ákvað bara að gera þetta sjálf, eins og maður gerir oft, veður bara í verkin,“ segir Þorgerður Katrín og dómarastarfið átti vel við hana. „Ég hef óskaplega gaman af íþrótt- inni sem slíkri og fannst ótrúlega skemmtilegt að fara þessa leið.“ Þorgerður dæmdi aðallega leiki í kvennahandboltanum en þó tvo leiki í efstu deild karla. Hún segir þolinmæði það helsta sem prýða þurfi góðan dómara. „Þolinmæði og að hafa skilning á því að þeir sem verið er að dæma hjá eru lif- andi verur með tilfinningar. Það sem við erum að dæma getur auð- vitað farið í taugarnar á þeim og á því verður maður að hafa skiln- ing upp að vissu marki. Ég hafði þá reglu að ef menn voru mikið að þusa 15 sekúndum eftir brot þá fór ég að spjalda en ég var ekki mjög spjaldaglöð varðandi kjafthátt nema það væri eitthvað svívirði- legt. En það var alls ekki mikið um það,“ segir hún. Gæti það verið vegna þess að kona var í dómarahlutverkinu? „Einu sinni sagði einn dómar- inn við mig að það væri áberandi minna um svívirðingar þegar ég væri að dæma, leikmenn vildu kannski sýna að þeir væru vel upp aldir. Einu sinni dæmdi ég bikarúrslitaleik hjá körlum á Húsa- vík. þá sagði þar ein kona: „Jem- inn, það er kona dómari!“ Ég átta mig ekki enn þá hvort þetta var hneykslunartónn eða hvort hún meinti að loksins væri eitthvað að breytast í þessum málum.“ Spjald eftir 15 sekúndur Oddný Sigsteinsdóttir er fyrrver- andi landsliðskona í handbolta og hún spilaði einnig með Fram á sínum tíma. Hún segir að fyrir- komulagið á landsliðinu hafi verið svipað þegar hún var að spila og nú og að það hafi verið skemmtilegt og heilmikil upphefð að vera í lands- liðinu. „Ég spilaði með landsliðinu í fimmtán ár en leikirnir voru færri en þeir sem stelpurnar spila núna,“ segir hún. Aðspurð segist hún að- eins fylgjast með landsliðinu í dag, þó hún mæti ekki endilega á leikina. „Boltinn er hraðari og þar af leið- andi skemmtilegri núna en þegar ég var að spila. Líklega eru stelpurnar með mun meira úthald í dag.“ Oddný er hins vegar hörð á því að stelpurnar verði að sækja meira í að fá að spila úti. Hún segir að íslenska kvennalandsliðið verði ekkert betra nema stelpurnar nenni að leggja það á sig að reyna að komast til útlanda að spila. „Hjá strákunum er enginn alvöru handboltaspilari nema hann fari eitthvað út.“ Oddný telur einnig mikilvægt að bíða ekki of lengi með að fara út. „Ég var sjálf 28 ára þegar ég hélt til Noregs að spila. Þegur ég lít til baka finnst mér að ég hefði átt að fara strax um tvítugt,“ segir hún og telur að kvennahandboltinn hér á landi sé á miklu lægra plani en hjá nágrannalöndunum og þar spili smæð landsins inn í. Aðspurð um hvort hún telji að stelpurnar falli of mikið í skuggann af karlalandsliðinu segir hún að það sé að einhverju leyti verðskuld- að. „Meðan stelpurnar sýna ekki getulega það sama og strákarnir á heimsmælikvarða, er það réttlátur skuggi sem fellur á kvennalandslið- ið.“ Engu að síður hlakkar hún til að fylgjast með stelpunum í komandi leikjum. Verða að sækja út Oddný Sigsteinsdóttir, sjúkraþjálfari og fyrrverandi landsliðskona í handbolta, telur mikilvægt að handboltakonur spili með erlendum liðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hrafnhildur Skúladóttir er önnum kafin kona. Þrátt fyrir að vera orðin þrjátíu og þriggja ára spil- ar hún enn með meistaraflokki Vals í handbolta auk þess að leika með kvennalandsliðinu. Þá vinnur hún sem umsjónarkennari fjórða bekkjar í Hofstaðaskóla ásamt því að þjálfa litlar stelpur í handbolta. Þess utan sinnir hún fjölskyldu og börnum. „Þetta er púsluspil sem gengur upp og er vel þess virði,“ segir Hrafnhildur sem kemur úr mik- illi handboltafjölskyldu. „Við erum sex systkinin, fimm stelp- ur og einn strákur og höfum öll æft handbolta auk þess sem fjórar af okkur systrunum höfum verið í landsliðinu.“ En hvaðan kemur þessi gríðarlegi handboltaáhugi fjölskyldunnar? „Ég ólst upp í Breiðholti og þar var mikill upp- gangur í íþróttinni. Það voru margir sem æfðu og voru jafnvel a, b, c og d-lið í hverjum flokki.“ Hrafnhildur segir foreldra sína hafa hvatt þau systkinin áfram alla tíð. „Það er ótrúlegt hvað þau hafa nennt að mæta á leiki hjá okkur upp alla flokka og ég man meira að segja eftir mömmu fár- veikri uppi í stúku á mikilvægum leik.“ En ætli dætur Hrafnhildar hafi erft handboltaáhugann? „Þessi eldri sem er tíu ára er farin að æfa með Val og sú yngri sem er þriggja ára er farin að kasta bolta hér heima. Hún kastar bæði með hægri og vinstri og eru miklar vonir bundnar við að hún verði örvhent enda opnar það fleiri möguleika.“ - ve Púsluspil sem gengur upp Hrafnhildur segir það vel ganga upp að vera handboltakona og mamma. Hér er hún ásamt nemendum sínum í Hofstaðaskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þórdís Rúnarsdóttir er hand- boltamamma af Guðs náð og á met í fjölda landsliðskvenna. „Íþróttir skipta höfuðmáli í upp- eldi barna því útrásin er góð, fé- lagsskapurinn skemmtilegur og dýrmæt vinatengsl sem myndast. Handbolti hefur því reynst fjár- sjóður að komast í,“ segir Þórdís Rúnarsdóttir, sjúkraliði og hand- boltamamma fimm dætra og eins sonar sem öll hafa náð miklum ár- angri í handbolta, en fjórar dætra hennar hafa spilað með lands- liðinu, þar af tvær núna, sem er Hrafnhildur, sú elsta, og Rebekka, sú yngsta. Einnig voru tvíburarnir Dagný og Drífa í landsliðinu áður en standa nú í barneignum, og þau Hanna Lóa og Daði leika með meistaraflokkum sinna liða, þar af varð Daði bikarmeistari með ÍR. „Það er engin ein skýring á þess- um mikla handboltaáhuga. Syst- kinin eru öll miklir og góðir vinir. Hrafnhildur ruddi brautina fyrir systkini sín; hún byrjaði barn- ung í fimleikum og allur hópurinn fylgdi á eftir. Átta ára prófaði hún svo handbolta og þótti svo gaman að hin vildu prófa líka og allar götur síðan hefur áhuginn verið brennandi,“ segir Þórdís sem sjálf stundaði frjálsar íþróttir á yngri árum, en maður hennar, Skúli Guð- mundsson, var mikið í fótbolta. En hvernig skýrir Þórdís fram- úrskarandi árangur barna sinna í handboltaíþróttinni? „Ja, það er spurning. Börnin hlutu afar venjulegt og frjálst upp- eldi, og alls ekki strangt. Ég hef alltaf unnið úti og ávallt á nætur- vöktum meðan ég var að ala þau upp. Með því gat ég alltaf verið til staðar fyrir þau. Það kostaði vita- skuld mikla keyrslu milli staða og drjúgan tíma í áhorf á leiki, og þá hentaði ekki að vinna á dag- inn eða kvöldin. Ég vann því bara á næturnar og svaf þegar hent- aði, því ég get alltaf sofnað og sef enn í stuttum skorpum,“ segir Þórdís og kvittar undir að börn- um sé mikils virði að foreldrar þeirra séu til staðar og fylgist með íþróttaiðkunum þeirra. „Það skiptir öllu, sem og hrós fyrir góða ástundun og árangur. Frá fyrstu tíð hef ég mætt á allar keppnir og geri enn. Það hefur auð- vitað verið stíf dagskrá, en ég var alltaf heppin að flokkarnir voru ekki með sömu helgar undirlagðar. Lífið hefur því snúist um handbolta og maður búinn að alast mikið upp í íþróttahúsum,“ segir Þórdís og hlær dátt, en til þessa hefur hún gert mæðra best í fjölda landsliðs- kvenna í handbolta. „Ég stefndi nú ekki að því að eignast svo stóran barnahóp en hef haft ómælda gleði af þeim. Mér hefur aldrei þótt erfitt að vera með svo mörg börn, því þau hafa svo mikinn félagsskap hvert af öðru. Nú þegar á ég sjö barna- börn og það elsta er byrjað í hand- bolta, og auðvitað er amma byrjuð að horfa á hana líka.“ - þlg Handbolti fjársjóður barna Handboltasystkinin knáu í einni kös, samhent og mestu mátar: Hanna Lóa 24 ára og Daði 28 ára í efri röð, og Dagný 30 ára, Rebekka Rut 22 ára, Hrafnhildur 33 ára og Drífa 30 ára í neðri röð. Þórdís segir íþróttaiðkun barna kosta tíma og peninga, en sú fjárfesting sé miklum mun verðmætari en verðbréf. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir, þingkona og handboltadómari, leyfir 15 sekúndna raus áður en spjaldið fer upp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.