Fréttablaðið - 10.02.2011, Side 8
8 10. febrúar 2011 FIMMTUDAGUR
Fyrirhuguð hagræðing í
skólastarfi Reykjavíkur-
borgar hefur valdið nokkr-
um úlfaþyt þar sem óljósar
hugmyndir um sameiningu
eða samrekstur stofnana
hafa mætt töluverðri and-
stöðu meðal starfsfólks,
stjórnenda og foreldra.
Borgarráð skipaði starfshóp í lok
síðasta árs sem átti að „skoða og
greina þau tækifæri sem kunna að
vera til staðar til endurskipulagn-
ingar og/eða sameiningar leikskóla,
grunnskóla og frístundaheimila
í borginni“ og eru margir ugg-
andi um niðurstöður. Gagnrýnis-
raddirnar hafa aðallega beinst að
upplýsingagjöf í hugmyndavinnu-
ferlinu og áhyggjum af því hvort
fagleg sjónarmið séu látin víkja
fyrir kröfum um sparnað.
Forsvarsmenn meirihlutans í
borgarstjórn hafa lagt áherslu á
að enn hafi ekkert verið ákveðið.
Enn sé verið að safna hugmynd-
um og greina áður en lengra verð-
ur haldið.
Málið var til umræðu í mennta-
ráði í gær þar sem fram komnar
hugmyndir voru meðal annars
lagðar fyrir ráðið, en þær hafa ekki
verið gefnar út opinberlega.
Hvers er að kvíða?
Áhyggjuefnin í þessu máli eru
margvísleg. Þau eru allt frá áhyggj-
um af því hvort verið sé að sverfa
of nærri þjónustu við börn og fag-
legur ávinningur verði takmarkað-
ur, upp í tilfinningaleg rök þar sem
fólk hefur áhyggjur af afdrifum
„sinna skóla“ og sérstöðu þeirra.
Fjölmörg einstök foreldrafélög
leikskóla og grunnskóla borgarinn-
ar hafa ályktað gegn niðurskurði í
skólamálum og stjórnendur í skól-
unum telja að breytingarnar geti
jafnvel orðið skaðlegar fyrir starf
skólanna.
Upplýsingaflæði gagnrýnt
Fulltrúi Vinstri grænna í mennta-
ráði, Líf Magneudóttir, gagn-
rýndi verkferli málsins í viðtali
við Fréttablaðið í gær. Hún sagði
menntaráð ekki hafa fengið að
fylgjast nægilega vel með samein-
ingarhugmyndunum.
Oddný Sturludóttir, for maður
menntaráðs og starfshópsins
umrædda, sagði hins vegar að
umfjöllun menntaráðs um málið í
gær hafi verið „á eðlilegum tíma“
þar sem hópurinn hafi verið skip-
aður af borgarráði.
Líf segist hafa verið litlu nær
eftir fundinn í menntaráði í gær.
„Það má segja að þar hafi vaknað
fleiri spurningar en svör.“
Hún lagði fram bókun þar sem
vinnubrögð meirihlutans eru sögð
hroðvirknisleg og einkennast af
„virðingarleysi við fagstéttir, for-
eldra og börnin í borginni“.
Þar segir einnig að enn liggi ekki
fyrir svör um fjárhagslegan eða
faglegan ávinning af aðgerðunum.
Er svo skorað á meirihlutann að
endurskoða forgangs röðun sína.
„Það er augljóst að meirihlutinn
er bara að hugsa um krónur og
aura í stað þess að forgangsraða í
þágu barnanna,“ segir Líf.
Foreldrar ósáttir
Edda Björk Þórðardóttir er for-
maður Barnanna okkar, samtaka
foreldrafélaga leikskóla í Reykja-
vík, og hún segir samtök sín hafa
miklar áhyggjur af framvindunni,
ekki síst þar sem upplýsingagjöf
um hugmyndir til sameininga hafi
verið af skornum skammti. Sam-
tökin taki undir áhyggjur fagaðila
vegna fyrirhugaðra breytinga.
„Það sem við heyrum frá fag-
aðilum er að þessar sameiningar
muni ekki skila faglegum ávinn-
ingi. Við í stjórninni deilum þeim
áhyggjum og höfum líka áhyggjur
af framtíð leikskólanna.“
Fulltrúar SAMFOKs, samtök for-
eldra grunnskólabarna í Reykjavík,
lögðu fram bókun á fundi mennta-
ráðs í gær þar sem þau leggja
áherslu á að áður en ákvarðanir
verða teknar um sameiningar eða
samrekstur, verði fagleg og fjár-
hagsleg áhrif metin.
„Ekki er ásættanlegt að faglegu
starfi, líðan starfsmanna og barna
sé stefnt í voða að ástæðulausu.
Hagræðingin þarf að vera augljós
og án fórnarkostnaðar við faglegt
starf,“ segir í bókuninni.
Stjórnendur uggandi
Ingibjörg Kristleifsdóttir, formaður
Félags stjórnenda leikskóla, gagn-
rýnir, í samtali við Fréttablaðið, að
ferlið hafi verið í óvissu of lengi.
Sameiningar séu, þess utan, ekki
eina leiðin sem fær er til að auka
samvinnu.
„Það er fullt til af skemmti-
legum möguleikum á samvinnu í
skóla stiginu. Það er hægt að efla
samvinnu milli skólastiga á allan
mögulegan hátt án þess að fækka
stjórnendum. Stjórnendur standa
skólastafi ekki fyrir þrifum, heldur
eru þeir máttarstólpar.“
Ingibjörg segir stjórnendur ótt-
ast að fækkun í þeirra hópi muni
veikja innra starf skólanna. Þá geti
það orðið til þess að letja mennt-
aða leikskólakennara til að sækja
í vinnu á leikskólum.
„Fækkun stjórnendastaða verð-
ur til þess að möguleikar á fram-
gangi í starfi minnka og það gerir
starf hjá Reykjavíkurborg ekki
fýsilegra. Svo er lægð í náminu á
menntavísindasviði og okkur finnst
þetta ekki vera til að hvetja ungt
fólk til náms.“
Fulltrúi félags skólastjórnenda í
Reykjavík á fundi menntaráðs lagði
fram bókun þar sem lýst var yfir
óánægju skólastjórnenda í borginni
um framgang málsins, upplýsinga-
gjöf og samráð við foreldra og
starfsfólk.
Þar segir meðal annars: „Veru-
lega hefur skort á að forsendur,
bæði faglegar og fjárhagslegar
liggi fyrir þannig að unnt sé fyrir
viðkomandi aðila að taka afstöðu
til hugmyndanna á faglegum for-
sendum.“
Að mati skólastjórnenda hefur
framsetning málsins skapað óvissu
og ólgu í kringum skólastarfið.
Að lokum lagði fulltrúi félags-
ins fram tillögu um að framkomn-
ar hugmyndir um sameiningar og
samrekstur í skólum borgarinnar
komi ekki til framkvæmda í ár.
Oddný Sturludóttir segir hins
vegar ekkert launungamál að tak-
markið með þessari vinnu hafi
verið að ná fram hagræðingu, en
líka að standa vörð um skóla og frí-
stundastarf til framtíðar.
„Það eru tækifæri í meira sam-
starfi skóla og sameiningum sem
og samþættingu skóla og frístunda-
starfs.“
Oddný bætir því við að gagnrýni
á hugmyndirnar hafi ekki komið
henni mjög á óvart.
„Okkur þykir vænt um skólana
okkar og frístundastarfið og þegar
við erum að ræða svona breyting-
ar á opinn hátt við marga borgar-
búa er ekkert eðlilegra en að nokk-
ur óvissa skapist.“
Í framhaldi af fundinum í gær
verður staða mála kynnt fyrir
borgar ráði í dag, en eftir það tekur
við nánari greiningarvinna.
„Þar munum við greina betur
þær hugmyndir sem við teljum
þess eðlis að við náum fjárhags-
legum ávinningi til þess að geta
varið skóla- og frístundastarfið
með kjafti og klóm.“
Áætlað er að starfshópurinn ljúki
störfum fyrir lok febrúar.Tilkynning um breyttan opnunartíma
hjá Póst- og fjarskiptastofnun
Frá 15. febrúar n.k. verða afgreiðsla og sími stofnunarinnar opin
alla virka daga frá kl. 10:00 til 14:00.
Sjá upplýsingar á vef stofnunarinnar www.pfs.is
Óttast um fagleg sjónarmið í skólum
Ólafur Kári Ragnarsson og Hanna María Geirdal eru í
nemendaráði Réttarholtsskóla og segjast hafa áhyggjur
af breytingum varðandi sinn skóla. Þau hafa til dæmis
heyrt því fleygt að Réttarholtssskóli, sem er unglingaskóli,
verði sameinaður Fossvogsskóla og Breiðagerðisskóla
þar sem eru yngri bekkir.
„Við erum búin að spá svolítið í þessi mál og erum
ekki sátt. Við erum í unglingaskóla og það hefur alltaf
verið stórt skref fyrir krakkana í hinum skólunum að
koma hingað og það gæti eyðilagst með því að samein-
ast. Við höfum jafnvel heyrt af fólki sem hlakkaði meira
til að koma upp í Réttó en síðar þegar það fór upp í
framhaldsskóla.“
Þau Ólafur Kári og Hanna María segjast helst kjósa
óbreytt ástand, enda sé góður andi í skólanum þeirra.
„Það er virkilega góð stemning hér. Allir eru góðir vinir
og lítið um einelti. Svo eru kennararnir eiginlega eins og
vinir manns. Það væri rosalega leiðinlegt ef það myndi
tapast.“
Þau segjast ætla að fylgjast vel með framhaldinu og
vona það besta.
Hvað segja krakkarnir?
KJÓSA ÓBREYTT ÁSTAND Þau Hanna María og Ólafur Kári
segjast vona að Réttarholtsskóli breytist ekki, enda sé góður
andi í skólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í SKÓLANUM, Í SKÓLANUM Afar skiptar skoðanir eru um hagræðingu í skólakerfi Reykjavíkurborgar. Hagsmunaaðilar eins og skólastjórnendur og foreldrar hafa gagnrýnt verk-
ferlið og viðrað áhyggjur um að fagleg sjónarmið séu látin víkja fyrir sparnaðarkröfu. Meirihlutinn hefur hins vegar sagt að engar ákvaðanir hafi verið teknar, vinnan sé enn á
hugmyndastigi og hagsmunir barnanna gangi fyrir öllu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þorgils
Jónsson
thorgils@frettabladid.is
■ Í Reykjavík eru 46 grunnskólar
og frístundaheimili við hvern
þeirra.
■ 95 leikskólar eru í borginni, en
í einu tilfelli eru leikskóli og
grunnskóli samreknir.
■ Í grunn- og leikskólum borgar-
innar eru nær 21.000 börn
og um 3.000 eru á frístunda-
heimilum.
Skólarnir í tölum:
FRÉTTASKÝRING: Deilt um hagræðingaraðgerðir í skólum Reykjavíkurborgar