Fréttablaðið - 10.02.2011, Page 36

Fréttablaðið - 10.02.2011, Page 36
 10. febrúar 2011 FIMMTUDAGUR24 timamot@frettabladid.is Arnór Einar Einarsson, 14 ára gam- all nemandi grunnskóla Raufarhafnar hlaut í byrjun mánaðarins 1. verðlaun í hugmyndasamkeppni sem Lands- byggðarvinir í Reykjavík og nágrenni standa að en keppnin er hluti af verk- efninu Heimabyggðin mín, nýsköpun, heilbrigði og forvarnir. Þrjár hugmyndir sem þóttu gefa fyrir heit um betri, skemmtilegri og lífvænlegri heimabyggð voru verð- launaðar en tilgangur verkefnisins er meðal annars að mynda brú milli ungs fólks í höfuðborginni og á lands- byggðinni. Arnór Einar leggur til í verðlauna hugmynd sinni að líkan af bryggjunni og höfninni á Raufarhöfn sé útbúið, eins og umhorfs var þar á síldar árunum. 2. verðlaun féllu í skaut nemendum í Auðarskóla fyrir margs konar hugmyndir, meðal annars heilsu- miðstöð, og 3. verðlaun hlaut Þorbjörg Anna Sigurðardóttir í Borgarskóla í Grafarvogi, fyrir hugmyndir um skíða- hús í hlíðum Úlfarsfells. „Við fjölskyldan ferðumst mikið og þegar ég var sjö ára fórum við saman til Danmerkur þar sem við skoðuðum meðal annars Lególand þar sem alls kyns byggingar, þorp og borgir eru útbúin úr legókubbum. Ég sá þá strax fyrir mér að skemmtilegt gæti verið að útbúa líkan af Raufarhöfn. Svo þegar ég fór að vinna verkefnið núna fyrir Landsbyggðarvini datt mér þetta strax aftur í hug,“ segir Arnór Einar. Yfir tvö hundruð ritgerðir voru skrifaðar fyrir keppnina þar sem fram komu tillögur um betri heima- byggð nemenda. Í dómnefnd sátu Þór- ólfur Þórlindsson prófessor, Þorgrímur Þráinsson rithöfundur, og Svala Jóns- dóttir hjúkrunarfræðingur. „Við vorum búin að vera að læra um síldarárin, þar sem Raufarhöfn var eitt af stærstu síldarplássunum, og mér fannst vanta einhverja kynningu á þessum tíma. Hér hefur til dæmis ekki verið neitt safn eða slíkt og það væri gaman að færa þennan tíma til okkar,“ segir Arnór Einar en hugmynd hans þótti vel útfærð og skýr, sem skapað gæti störf og aukið ferðamannastraum til Raufarhafnar. Arnór Einar bætir við að honum finnist þessi tími spenn- andi, líflegur og fjörugur, enda ball um hverja helgi. „Ég tók viðtal við mann sem vann hér í síldinni og spilaði á harmóníku og mér finnst eins og fólk hafi verið hamingjusamt á þessum tíma og sátt. Jú, ég væri alveg til í að hafa prófað að lifa þennan tíma.“ Arnóri Einari líkar vel að búa á Raufar höfn, hann er borinn og barn- fæddur þar en auk skólans sinnir hann hestamennsku og fótbolta og hefur komið sér á verðlaunapall á hesta- mótum. juliam@frettabladid.is ARNÓR EINAR EINARSSON: HLAUT 1. VERÐLAUN Í HUGMYNDASAMKEPPNI Raufarhöfn á síldarárunum Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Snorri Árnason lést á Hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði þann 1. febrúar. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju þann 11. febrúar kl. 14.00. Guðrún Snorradóttir Þuríður Snorradóttir Steinar Gunnbjörnsson Erla Hrönn Snorradóttir Jóhann Steinsson Árni Ómar Snorrason Sigurlaug Ingvarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra Ingveldur Albertsdóttir Bachmann Bólstaðarhlíð 58 Reykjavík, lést 7. febrúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 16. febrúar kl. 13. Rúnar Bachmann Guðrún B. Hauksdóttir Petrina Bachmann Sigríður Bachmann og fjölskylda Þórunn Stefanía Samúelsdóttir frá Bíldudal, til heimilis að Arahólum 4, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 3. febrúar. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 11. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóð Eirar. Árni Konráðsson Anna Aradóttir Alda Konráðsdóttir Ólafur Ólafsson Stefán Konráðsson Margrét Unnur Kjartansdóttir og aðrir aðstandendur. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, Margrét Kolbrún Friðfinnsdóttir Hlíðarbyggð 5, Garðabæ, lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn 4. febrúar. Sigurður Ingibergsson Ingibergur Sigurðsson Marcela Munoz Friðfinnur Ragnar Sigurðsson Margrét Guðvarðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Jón Guðmundur Guðmundsson trésmiður frá Sunnuhvoli, Stokkseyri, nú Merkurheimum í Flóahreppi, verður jarðsunginn frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 12. febrúar kl. 10.30. Hólmfríður Tómasdóttir Tómas Jónsson Inger Lise Myklebust Guðríður Jónsdóttir Bergþór Kárason Bergþóra Jónsdóttir Böðvar B. Magnússon Erna Jónsdóttir Andri Ólafsson barnabörn og barnabarnabarn. VANN VERKEFNIÐ Í SAMFÉLAGSFRÆÐI Arnór Einar Einarsson ásamt umsjónarkennara sínum, Bryndísi Evu Ásmundsdóttur, við verðlauna- afhendinguna í Háskólanum í Reykjavík. ARTHUR MILLER, leikritaskáld og rithöfundur (1915-2005), lést þennan dag. „Leikhúsið er svo spennandi vegna þess að það er svo ósjálfrátt. Og líkist lífinu að því leyti.“ Merkisatburðir 1931 Nýja-Delí verður höfuðborg Indlands. 1943 Orlofslög eru samþykkt á Alþingi. Þau tryggja einn frídag fyrir hvern unninn mánuð. 1944 Þrjár þýskar flugvélar varpa sprengjum að olíuskipinu El Grillo sem liggur á Seyðisfirði og sökkva því. 1962 Togarinn Elliði frá Siglufirði sekkur undan Öndverðarnesi. Júpíter bjargar 26 manns af áhöfninni en tveir farast. 1992 Mike Tyson er ákærður fyrir nauðgun. 1996 IMB-ofurtölvan Deep Blue sigrar Garrí Kasparov í skák. 2006 Vetrarólympíuleikarnir 2006 hefjast í Tórínó á Ítalíu. Á þessum degi árið 1984 gerði Jóhann Hjartar- son skákmeistari jafntefli við bandaríska stór meistarann Lev Alburt á skákmóti Búnaðar- bankans en Jóhann vann mótið. Þannig tryggði Jóhann sér alþjóðlegan meistaratitil og tryggði sér fyrsta áfanga að stórmeistaratitli. Jóhann var fyrsti Íslendingurinn sem náði slíkum árangri frá því að Guðmundur Sigurjónsson vann Reykjavíkur skákmótið 1970. Alburt bauð jafnteflið, sem kom flatt upp á Jóhann. „Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið þegar Lev Alburt bauð mér jafntefli. Ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um — greip um hönd Alburts og þáði jafnteflið,“ sagði Jóhann í samtali við Morgunblaðið sama kvöld. Hann sagði stríðs- guðina hafa verið sér hliðholla í mótinu, hann hefði verið í góðu líkamlegu og andlegu formi og náð að einbeita sér vel. „Ég tefldi, hugsaði um skák og dreymdi skák á meðan á mótinu stóð. Ekkert annað komst að — einbeitingin var alger,“ sagði hann jafnframt. Jóhann bætti því við að góðir skákmenn þyrftu fyrst og fremst að búa yfir innsæi og stöðumati og hafa tilfinningu fyrir besta leiknum. ÞETTA GERÐIST: 10. FEBRÚAR 1984 Náði stórmeistaraáfanga AFMÆLI LAURA DERN leikkona er 43 ára. JÓHANN BACHMANN ÓLAFSSON trommari er 35 ára.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.