Fréttablaðið - 10.02.2011, Side 42
30 10. febrúar 2011 FIMMTUDAGUR30
menning@frettabladid.is
SAFNANÓTT Í HÖFUÐBORGINNI Safnanótt verður haldin á höfuðborgarsvæðinu á föstudagskvöld frá
klukkan 19 til 24. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík. Yfir 30 söfn á höfuðborgarsvæðinu verða með opið
hús og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá sem gestir á öllum aldri fá notið fram til miðnættis. Dagskrá Safnanætur
heldur einnig áfram laugardaginn 12. febrúar. Nánari upplýsingar má finna á safnanott.is.
Heimildarmyndin Stríðs-
börn verður sýnd í
Bíó Paradís í kvöld, að
viðstöddum höfundinum
Bryan Single. Myndin fjall-
ar um örlög barna í Úganda
sem hneppt hafa verið í
ánauð sem stríðshermenn
og leið þeirra til bata.
Stríðsbörn, eða Children of War,
eftir kvikmyndagerðarmanninn
Bryan Single, fjallar um börn sem
hafa verið frelsuð úr ánauð hins
svonefnda Andspyrnuhers drott-
ins í Úganda. Herinn er talinn
hafa neytt um 35 þúsund börn til
fylgis við sig. Sum barnanna hafa
verið neydd til að myrða foreldra
sína eða drepa önnur börn og
verið misnotuð kynferðislega.
Í myndinni er fylgst með því
hvernig starfsmenn á Rachele-
endurhæfingarmiðstöðinni í
Norður-Úganda hjálpa börnunum
að horfast í augu við fortíð sína.
Single komst á snoðir um heimil-
ið árið 2006 og sá fljótt að þar var
efniviður í heimildarmynd.
„Ég vildi ekki gera enn eina
myndina um stríðshörmungar í
Afríku,“ segir hann. „Það sem
vakti fyrst og fremst áhuga minn
var bataferli þessara krakka.
Endurhæfingin gengur mikið út
á skapandi tjáningu, til dæmis
dans, teikningu, söng, rökræður
og hlutverkaleiki. Að segja sann-
leikann er líka lykilatriði og að fá
börnin til að segja sögu sína, læra
af því og setja í samhengi.“
Single segir að langflestir fyrr-
verandi barnahermenn sem eru of
ungir til að standa á eigin fótum
eigi í einhver hús að venda. Það
sé þeim þó ekki alltaf auðvelt að
snúa aftur á heimaslóðir, þar sem
þeir hafi jafnvel verið neyddir til
að drýgja misindisverk.
„Ráðgjafarnir reyna að búa
þau undir það sem bíður þeirra
heima; það er lykilatriði að draga
ekki upp einhverja upphafna
mynd af því. Þeir gera sér grein
fyrir hvaða þrautir bíða þeirra,
meðal annars félagslegi smánar-
bletturinn sem fylgir fyrrverandi
barnahermönnum. Sum börnin
eru hrædd við að fara heim því
þau eru hrædd við móttökurnar
og sum eru sakbitin yfir því sem
þau hafa gert.“
Single segir of snemmt að segja
til um hvernig börnunum eigi eftir
að reiða af til lengri tíma. Kann-
anir sýni að mörgum fyrrverandi
barnahermönnum takist að koma
ár sinni vel fyrir borð og aðlagist
samfélaginu vel.
„Sárin sem 22 ára ófriður veldur
í samfélaginu rista djúpt. Það eru
aðeins fimm ára síðan íbúar í
Norður-Úganda hættu að búa við
stöðugan ótta. Fyrstu viðbrögð-
in eru að sameinast, fyrirgefa og
reyna að komast sem lengst frá
stríðinu. Það er hins vegar spurn-
ing hversu varanlegt það ástand
er. Ég held að afdrif fyrrver-
andi barnahermanna velti fyrst
og fremst á stuðnings kerfinu.
Fái þeir ást, umhyggju og síðast
en ekki síst menntun eru ágætar
líkur á að þessi börn eigi eftir að
verða dásamlegar og heilbrigðar
manneskjur þegar þau vaxa úr
grasi. Við sjáum hvað setur.“
Stríðsbörn er sýnd í Bíófunda-
röð sem Upplýsingaskrifstofa
Sameinuðu þjóðanna ásamt UNIC-
EF og Félagi Sameinuðu þjóðanna
standa fyrir. Að lokinni sýningu
segja Bryan Single og Flóki Guð-
mundsson, fjáröflunarfulltrúi
Barnahjálpar SÞ á Íslandi, frá
reynslu sinni frá stríðshrjáðum
svæðum í norðurhluta Úganda.
Sýningin hefst klukkan 20.
bergsteinn@frettabladid.is
Stríðsbörn í Bíó Paradís
STRÍÐSBÖRN Þrjú börn eru í forgrunni heimildarmyndarinnar, þar á meðal stúlka sem var gefin æðstapresti Andspyrnuhers
drottins ellefu ára gömul og sætti misnotkun í fimm ár.
Tríóið Delizie Italiane fagnar
útgáfutónleikum síns þriðja geisla-
disks með tónleikum í Salnum í
kvöld klukkan 20.
Tríóið skipa gítarleikararnir
Leone Tinganelli og Jón Elvar
Hafsteinsson og kontrabassa-
leikarinn Jón Rafns.
Á tónleikunum munu hljóma
íslensk lög með ítölskum texta þar
sem ástin og lífið er helsta yrkis-
efnið. Meðal laga á efnisskránni
eru Bláu augun þín, Nína, Bragga-
blús og fleiri.
Sérstakir gestir á tónleikunum
verða söngvararnir Ragnar Bjarna-
son og Gissur Páll Gissurarson
ásamt Sigurði Flosasyni á saxófón,
Kjartani Valdemarssyni á harmón-
íku, Einari Vali Scheving á slagverk
og söng konunni Kristínu Ingu Jóns-
dóttur.
Dægurflugur á ítölsku
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Candida sveppasýking
Guðrún G. Bergmann
Svar við bréfi Helgu
Bergsveinn Birgisson
Blóðhófnir
Gerður Kristný
Halastjarnan - kilja
Tove Jansson
Máttur viljans
Guðni Gunnarsson
Prjónaklúbburinn - kilja
Kate Jacobs
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
02.02.11 - 08.02.11
Utangarðsbörn - kilja
Kristina Ohlsson
Fátækt fólk - kilja
Tryggvi Emilsson
Skólaljóð
Ýmsir - Halldór Pétursson
Detox - 14 leiðir til að
hreinsa... Helen Foster