Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.02.2011, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 10.02.2011, Qupperneq 46
34 10. febrúar 2011 FIMMTUDAGUR folk@frettabladid.is Tónlistarhópurinn Rvk Sound- system stendur fyrir mánaðar- legum reggíkvöldum í Nýlendu- vöruverslun Hemma & Valda annan laugardag hvers mánaðar. Hópurinn samanstendur af þaulvönum plötusnúðum og tón- listarmönnum, þeim DJ Kára, DJ Elvari, Gnúsa Yones og Charlie D. Tilgangur þessara kvölda er að efla áhuga Íslendinga á reggí- tónlist og auka fjölbreytnina í íslensku skemmtanalífi. „Við byrj- uðum með þetta í sumar og erum að hefja þetta aftur núna. Þetta er búið að ganga furðuvel, betur en maður hefði búist við,“ segir DJ Elvar. „Mætingin hefur verið fín og það eru greinilega fleiri sem hafa gaman af þessari tónlist en maður bjóst við.“ Næsta reggíkvöld verður hald- ið á laugardaginn. Sjóðheitir reggí- tónar verða spilaðir og hugsanlega fá óútgefin íslensk reggílög líka að hljóma. Aðgangseyrir er enginn. Sigurvegarinn í bandarísku hæfileikaþáttunum X Factor fær fimm milljónir dollara í sinn hlut, eða tæpar 600 milljónir króna, á fimm ára tímabili. Framleiðand- inn Fox heldur því fram að þetta sé hæsta verðlaunafé í gervallri sjónvarpssögunni. „Þetta er gríðarleg áhætta en einnig mjög ögrandi. Allir sem taka þátt verða réttilega undir miklum þrýstingi. Ég er sannfærður um að ég eigi eftir að finna stjörnu,“ sagði Simon Cowell, maðurinn á bak við þættina, sem hefja göngu sína næsta haust. „Ef sigurvegarinn selur ekki eina einustu plötu heldur hann samt peningunum. Þrýstingurinn er mikill vegna þess að ef röng manneskja vinnur er ég í miklum vanda.“ Cowell, sem yfirgaf American Idol á síð- asta ári, leiðir dóm- nefnd þáttanna. Ekki hefur verið tilkynnt hverjir verða honum til halds og trausts. Orðrómur er uppi um að söngkonan Cheryl Cole verði þar á meðal. Einnig hafa nöfn Nicole Scherz- inger úr Pussy- cat Dolls og fyrrverandi Idol-dómar- ans Paulu Abdul verið nefnd. „Við höfum talað við hana og hún veit að ég er mikill aðdáandi hennar,“ sagði Cowell um Abdul. Cowell byrjaði með X Factor í Bretlandi árið 2004 og þar hafa þættirnir notið mikilla vin- sælda. Á meðal sigurvegara þar er söngkonan Leona Lewis. Hér á landi sigraði Jógvan Hansen í X Factor-keppninni árið 2007, eftir baráttu við Hara- systur í úrslitunum. 600 milljónir fyrir sigurinn CHARLIE D Charlie D og félagar í Rvk Soundsystem spila reggí annan laugar- dag hvers mánaðar. SIMON COWELL Maðurinn á bak við X Factor er sann- færður um að hann geti fundið stjörnu í Bandaríkjunum. Leikhús listamanna var endur- vakið í Þjóðleikhúskjallaranum á þriðjudagskvöld. Ármann Reynisson fór á kostum sem kynnir. „Þetta heppnaðist mjög vel og fór fram úr okkar björtustu vonum. Það var fullt út úr dyrum og áhorfendur virtust njóta þessa nýja listforms. Þetta er komið til að vera,“ segir lista- maðurinn Símon Birgisson. Árið 2004 var stofnað til Leikhúss listamanna, kvöldskemmtana í Klink og bank. Þessi kvöld voru endurvakin nú á þriðjudagskvöld í Þjóðleikhús- kjallaranum. Hugmyndin að baki þessara kvöldskemmtana er í ætt við svokölluð „Soirées”, skemmtanir sem frægar voru í París í eina tíð. „Þetta er ekki hefðbundin leiksýning. Þetta eru afslöppuð kvöld þar sem listamenn koma saman og fremja gjörninga eða flytja atriði,“ segir Símon. Meðal þeirra sem fram komu voru Ragnar Kjartansson, Snorri Ásmunds- son, Ragnar Ísleifur Bragason, Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ingibjörg Magna- dóttir, áðurnefndur Símon Birgisson og Saga Sigurðardóttir. Kynnir var Ármann Reynisson en hann gegndi því hlutverki einmitt árið 2004. „Ármann fór algerlega á kostum. Ég held að það sé óhætt að segja að hann hafi átt sviðið enda er hann jú einn fremsti gjörningalistamaður þjóðar- innar,“ segir Símon. hdm@frettabladid.is Leikhús listamanna komið til að vera í menningarlífinu KOMIÐ TIL AÐ VERA Snorri Ásmundsson, Ragnar Ísleifur Bragason og Símon Birgisson komu fram á Leikhúsi listamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Kynnirinn Ármann Reynisson þótti fara á kostum. Sigríður Dóra Jóhannsdóttir og Helga Björg Gylfadóttir. Jón Kr. Ólafsson stórsöngvari og Hilmar Örn Agnarsson organisti. Eva Rún Snorradóttir og Eva Björk Kaaber. Spila sjóðheitt reggí 60.000 eldheitir aðdáendur Justins Bieber hafa tryggt sér miða á sérstakar forsýningar myndarinnar Never Say Never í Bandaríkjunum. Myndin fjallar um söngvarann og fleiri miðar eru ekki í boði að svo stöddu. Aðdáendurnir þurftu að borga rúmlega 3.000 krónur fyrir miðann.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.