Fréttablaðið - 10.02.2011, Qupperneq 50
10. febrúar 2011 FIMMTUDAGUR38
sport@frettabladid.is
STÓRLEIKUR kvöldsins í Iceland Express deild karla fer fram í Grindavík þar sem heima-
menn taka á móti toppliði Snæfells. Þetta eru tvö efstu lið deildarinnar og því verður einhver
hasar í Röstinni í kvöld. Alls verða þrír leikir í körfunni og í handboltanum fara fram fjórir leikir
hjá körlunum. Stórleikur kvöldsins þar er viðureign FH og Vals í Krikanum.
Vináttulandsleikir:
Íran-Rússland 1-0
Andorra-Moldavía 1-2
San Marínó-Liechtenstein 0-1
Armenía-Georgía 1-2
Hvíta-Rússland-Kasakstan 1-1
Grikkland-Kanada 1-0
Lettland-Bólívía 2-1
Aserbaídsjan-Ungverjaland 0-2
Makedónía-Kamerún 0-1
Lúxembúrg--Slóvakía 2-1
Malta-Sviss 0-0
Eistland-Búlgaría 2-2
Albanía-Slóvenía 1-2
Belgía-Finnland 1-1
Ísrael-Serbía 0-2
Tyrkland-Suður-Kórea 0-0
Króatía-Tékkland 4-2
1-0 Eduardo (8.), 2-0 Nikola Kalinicic (12.), 2-1
Tomas Sivok (20.), 2-2 Tomas Rosicky (45.), 3-2
Nikola Kalinicic (61.), 4-2 Ivo Ilicevic (74.).
Danmörk-England 1-2
1-0 Daniel Agger (8.), 1-1 Darren Bent (10.), 1-2
Ashley Young (67.)
Holland-Austurríki 3-1
1-0 Wesley Sneijder (28.), 2-0 Ibrahim Afellay
(48.), 3-0 Dirk Kuyt, víti (71.), 3-1 Marko Arnau-
tovic, víti (85.)
Pólland-Noregur 1-0
1-0 Robert Lewandowski (19.)
Þýskaland-Ítalía 1-1
1-0 Miroslav Klose (15.), 1-1 Giuseppe Rossi (81.)
Argentína-Portúgal 2-1
1-0 Angel Di Maria (14.), 1-1 Cristiano Ronaldo
(20.), 2-1 Lionel Messi, víti (89.).
Frakkland-Brasilía 1-0
1-0 Karim Benzema (53.)
Rautt spjald: Hernanes, Brasilía (40.).
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Einn efnilegasti knatt-
spyrnumaður landsins, Ingólf-
ur Sigurðsson, er samningslaus
eftir að hann sleit samningi við
hollenska félagið Heerenveen og
er kominn aftur heim til Íslands.
Þetta er í annað sinn sem Ingólf-
ur hættir hjá Heerenveen en hann
verður 18 ára um helgina.
Ingólfur er uppalinn hjá Val en
var í herbúðum KR áður en hann
fór aftur utan til Hollands en hlut-
irnir gengu ekki upp þar.
„Þessi niðurstaða hefur átt sér
smá aðdraganda. Það voru ákveðn-
ir hlutir sem gengu ekki eftir og
því var það sameiginleg ákvörðun
hjá mér og félaginu að slíta samn-
ingnum. Það var fyrir bestu,“ segir
Ingólfur, sem vildi ekki fara út í
nein smáatriði en tók þó fram að
þetta hefði allt verið gert í mesta
bróðerni.
Honum er nú frjálst að semja við
hvaða lið sem er, bæði hér heima
og erlendis. Hann segist ekki
hafa gert upp hug sinn með fram-
tíðina.
„Ég veit ekkert hvað gerist í
framhaldinu. Það er haugur af
liðum hér heima búinn að hringja
í mig eftir að þetta spurðist út.
Svo hef ég verið í sambandi við
lið erlendis þannig að það verður
úr einhverju að velja næstu dag-
ana. Það er hið besta mál,“ segir
Ingólfur en hann segir ekki koma
til greina að semja við hvaða lið
sem er úti.
„Ég fer ekki í 3. deildina í Nor-
egi. Það er samt möguleiki að fara
út rétt eins og að vera heima. Þetta
kemur í ljós en ég er opinn fyrir
öllu,“ segir Ingólfur, sem hefur
verið orðaður við Val.
„Ég veit ekkert um það mál. Þeir
vilja fá mig og ég get staðfest það.
Ég veit ekki meira,“ segir Ingólf-
ur, sem ætlar að fara yfir stöðuna
á næstu dögum. - hbg
Ingólfur Sigurðsson laus allra mála hjá Heerenveen:
Er opinn fyrir öllu
INGÓLFUR SIGURÐSSON Hefur úr mörgu að velja. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Það fór framhjá fáum
knattspyrnuáhugamönnum í
Þýskalandi þegar íslenska 21 árs
landsliðið fékk fjögur stig á móti
Þjóðverjum í undankeppni EM og
skildi þýska liðið eftir í riðlinum á
leið sinni inn í úrslitakeppni EM.
Þjálfari íslenska liðsins, Eyjólfur
Sverrisson, þekkir vel til í þýska
boltanum eftir að hafa spilað þar
með Stuttgart (1989-1994) og
Herthu Berlin (1995-2003) og nú
gæti hann verið á leiðinni aftur í
þýska boltann. Þýskir fjölmiðlar
greindu frá því í gær að Eyjólfur
væri orðinn aðstoðarþjálfari Wolfs-
burg en hann sjálfur sagðist í við-
tali við Fréttablaðið að hann væri
ekki búinn að skrifa undir neitt.
„Það er ekkert klárt í þessu. Ég
er hjá Wolfsburg og við erum bara
að ræða málin. Þetta mun hugsan-
lega klárast á morgun [í dag],“
segir Eyjólfur. „Þetta er spennandi
starf því þetta er flottur klúbbur.
Ég veit ekki hvar þetta mál er statt
því við eigum eftir að ræða betur
saman,“ segir Eyjólfur, sem þekk-
ir vel til Dieters Höness, fram-
kvæmdastjóra Wolfsburg. Höness
vann hjá Stuttgart þegar Eyjólfur
spilaði þar og svo aftur hjá Herthu
Berlin þegar Eyjólfur kom þangað
eftir Tyrklandsævintýrið.
„Ég þekki Dieter Höness vel.
Hann hafði samband við mig og
bað mig að koma og ræða við sig.
Hann bað mig um að hjálpa sér og
þar erum við bara staddir núna,“
segir Eyjólfur.
Pierre Littbarski tók við Wolfs-
burg-liðinu í vikunni eftir að Steve
McClaren var rekinn en Littbarski
var áður aðstoðarþjálfari McClar-
ens. „Ég þekki lítið til Littbarski,“
segir Eyjólfur en Littbarski var
að klára feril sinn sem leikmaður
þegar Eyjólfur kom út til Þýska-
lands. Littbarski spilaði á sínum
tíma 73 landsleiki fyrir Þjóðverja
og varð heimsmeistari árið 1990.
Hann þjálfaði áður lið FC Vaduz í
Liechtenstein.
Eyjólfur er samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins ekki að leita
eftir því að verða aðalþjálfari eða
að ráða sig í langan tíma. Hann
hefur aðeins hugsað sér að vera
í svona starfi fram á vorið. Fram
undan er úrslitakeppnin hjá 21 árs
landsliðinu og þar ætlar Eyjólfur
að halda áfram sínu góða starfi.
„Ég mun halda áfram með 21
árs landsliðið og þetta á ekki að
vera neitt mál gagnvart KSÍ. Ég
er búinn að ræða þetta við KSÍ og
þetta ætti bara að vera góður undir-
búningur fyrir verkefni sumarsins
ef af verður,“ segir Eyjólfur en
Wolfsburg er víst ekki eina þýska
félagið sem sýnir honum áhuga.
Eyjólfur staðfesti það í gær en
vildi ekki greina nánar frá því.
Fréttablaðið náði í Eyjólf í gær
inni á milli funda en þrátt fyrir að
hann segði ekkert vera klárt viður-
kenndi Eyjólfur að það kitlaði hann
að taka við starfi aðstoðarþjálfara
hjá svona stóru félagi.
„Það væri gaman að því að kom-
ast að hjá svona stórum klúbbi,“
sagði Eyjólfur að lokum áður en
hann dreif sig á annan fund með
Höness.
ooj@frettabladid.is
Dieter bað mig um að hjálpa sér
Árangur Eyjólfs Sverrissonar með íslenska 21 árs landsliðið hefur vakið mikla athygli, sérstaklega í Þýska-
landi. Eyjólfur er nú í viðræðum við Wolfsburg um að gerast aðstoðarþjálfari Pierre Littbarski.
VERÐANDI YFIRMENN Dieter Höness og
Pierre Littbarski. MYND/GETTY IMAGES/BONGARTS
FRÁBÆR ÁRANGUR MEÐ 21 ÁRS LIÐIÐ Eyjólfur Sverrisson er eftirsóttur í Þýskalandi
eftir að 21 árs landsliðið hans fór illa með þýska jafnaldra sína. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON