Fréttablaðið - 10.02.2011, Qupperneq 54
42 10. febrúar 2011 FIMMTUDAGURLÖGIN VIÐ VINNUNA
„Íslendingum er að fjölga og nafn-
giftum fjölgar líka,“ segir Ólafur
Daði Helgason, faðir Theodórs
Elvisar sem fæddist í desember
á síðasta ári. Mannanafnanefnd
samþykkti nýlega seinna nafn
Theodórs eftir talsvert mas og
þras að sögn föðurins.
Theodór Elvis var skírður 29.
janúar og Ólafur Daði segir við-
brögð fjölskyldunnar við nafn-
inu hafa verið góð. „Við héldum
þessu leyndu. Viðbrögðin í kirkj-
unni voru ekki einu sinni blendin.
Það fannst þetta öllum flott,“ segir
hann. „Það var reyndar einn í fjöl-
skyldunni sem var ekki alveg að
skilja þetta. Það var afi minn, dr.
Ólafur Halldórsson íslenskufræð-
ingur. Hann er 93 ára og finnst að
fólk eigi að heita einu nafni.“
Viðbrögðin í netheimum hafa
verið blendin, en fréttir af nafn-
inu bárust á mánudag. Ólaf-
ur segir notendur hins alræmda
Barnalands hafa farið yfir strikið
þegar þeir töldu drenginn gjalda
fyrir aðdáun foreldranna á Elvis
Presley. „Það er auðvitað sniðugt
fólk á Barnalandi sem finnst þetta
alveg út í hött,“ segir hann. „Hver
einasta heilbrigða manneskja sér
að þetta er ekki út í hött. Þetta
er fallegt nafn. Við erum engin
Elvis-frík. Það er ekki Elvis-altari
hérna fyrir aftan. Ég er með mynd
af Mick Jagger uppi á vegg, ekki
Elvis. Þetta snýst ekki um það.“
Ólafur segist eiga plötur kóngs-
ins og kannski einn eða tvo boli en
ítrekar að nafnið sjálft sé málið.
„Þetta er töff nafn og kannski
aðeins til að heiðra rokkið og rólið
í leiðinni,“ segir hann.
Þrátt fyrir að Ólafur og Olga
Möller, unnusta hans, hafi unnið
brautryðjendastarf með nafngift-
inni vonar hann að verðandi for-
eldrar ofnoti nafnið ekki. „Það
finnst engum klisjur fyndnar eða
skemmtilegar,“ segir hann. „Von-
andi verður það í hófi til að virða
vinnu okkar til að fá nafnið í gegn.“
- afb
Langafi Elvisar skilur ekkert í nafngiftinni
ELVIS MÆTTUR Á SVÆÐIÐ Theodór Elvis
kampakátur ásamt foreldrum sínum,
Ólafi og Olgu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þetta er sjúklega flott. Alveg
geðveikt. Erpur verður hérna að
eilífu,“ segir Þorgeir Gunnarsson,
eldheitur aðdáandi Erps Eyvindar-
sonar og hljómsveitar hans, XXX
Rottweiler.
Þorgeir lét húðflúra andlit rapp-
arans Erps Eyvindarsonar, Blaz
Roca, á innanverðan framhandlegg
sinn í gær. Þetta er þriðja húðflúr
Þorgeirs, en hann hefur komið fram
ásamt Erpi undanfarnar vikur og
steig fyrst á svið með honum í Sjall-
anum á Akureyri í desember á síð-
asta ári. En hvað rekur menn í að
fá sér húðflúr með mynd af uppá-
haldsrapparanum sínum?
„Ég er bara aðdáandi. Erpur er
góður vinur minn.“
Myndirðu segja að þú værir
aðdáandi númer eitt?
„Ég veit það ekki. Ég er ekki
týpan sem fer að grenja þegar ég
sé hann. Ég er búinn að hlusta á
hann síðan ég fékk fyrstu plötuna
með honum og er að fara á svið með
honum á föstudaginn. Við tökum
nokkur lög saman.“
Heldurðu að þú eigir einhvern
tíma eftir að sjá eftir að hafa fengið
þér húðflúrið?
„Nei.“
Alveg harður á því?
„Já.“
Erpur Eyvindarson, fyrirmynd
húðflúrsins, er ánægður með fram-
tak Þorgeirs. „Þetta er ljónhart
– þvílíkur fagmaður,“ segir hann.
„Það verður þvílíkt gott þegar hann
er að taka lagið með mér og rífur
sig úr að ofan; massaður og flúrað-
ur með tattúið. Ég er líka alveg
ljónharður á þessari mynd.“
Þetta er í fyrsta skipti sem aðdá-
andi Erps lætur húðflúra andlit
hans á sig, en alþekkt er að erlend-
ar stórstjörnur endi sem varanlegar
skreytingar á líkömum fólks. „Það
verða fleiri. Þetta er bara byrjun-
in. Þú verður kominn með svona á
rassinn fljótlega.“
Þorgeir kemur fram ásamt XXX
Rottweiler á Sódómu á föstudaginn
og mun húðflúrið eflaust fá að njóta
sín. atlifannið@frettabladid.is
ÞORGEIR GUNNARSSON: ERPUR VERÐUR HÉRNA AÐ EILÍFU
Aðdáandi Erps lætur flúra
andlit hans á handlegginn
ERPUR AÐ EILÍFU Þorgeir er handviss um að hann eigi aldrei eftir að sjá eftir því
að fá sér mynd af Erpi á framhandlegginn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Össur Hafþórsson, annar eigenda húðflúrstofunnar Reykja-
vík Ink, segir að húðflúr Þorgeirs sé langt því frá að vera
það furðulegasta sem hefur verið teiknað á stofunni hans.
„Furðulegasta tattúið var mynd af leiðbeiningunum um
hvar maður á að þvo sér þegar maður fer í sund,“ segir
hann. „Hann fékk útlínurnar af kallinum og
rauðu blettina sem sýna hvar maður á að
þvo sér. Hann lenti í útistöðum við íslenskan
baðvörð og honum fannst þetta svo eftir-
minnilegt. Og þetta var ekki lítið tattú!“
LANGT ÞVÍ FRÁ AÐ VERA FURÐULEGASTA FLÚRIÐ
„Mér finnst rosa gott að hlusta
á Emilíönu Torrini, Queen og
Elton John. Það eru líka alltaf
góð lög frá Madonnu og að
sjálfsögðu hlusta ég líka á Pál
Óskar.“
Unnur Pálmarsdóttir, framkvæmdastjóri
Fusion.
„Þetta er í rauninni stærra en að
spila á Wembley, þannig séð,“ segir
tónlistarmaðurinn Birgir Hilm-
arsson. Lag hans hljómaði í nýrri
auglýsingu farsíma fyrirtækisins
Motorola sem var sýnd í hálf-
leik Super Bowl fótboltaleiksins í
Bandaríkjunum um síðustu helgi.
Talið er að um 105 milljónir áhorf-
enda hafi séð auglýsinguna.
Birgir, sem er einnig liðsmaður
hljómsveitarinnar Ampop, fékk
verkefnið í gegnum umboðsmann
sinn sem starfar hjá tónlistar-
fyrirtæki í New York. „Ég held
að fjöldinn allur af tónskáldum
hafi verið að keppast um þetta. Ég
datt í lukkupottinn í þetta skiptið,“
segir Birgir, sem hefur verið
búsettur í London undanfarin ár.
„Þetta var rosa rússíbanareið. Ég
gerði upphaf lega tvö verk fyrir
þessa auglýsingu en ákvað þá að
velja aðra pælingu sem er mínimal-
ískt píanóverk. Ég lagði rosapúður
í það en þá fékk ég allt í einu sím-
tal um að Motorola vildi það ekki,“
segir Birgir. Þá ákvað hann að nota
útgáfu sem hann átti af lagi sem
kom út á plötunni Cinematic Songs
sem kom út á netinu í fyrra og það
hitti í mark hjá Motorola.
Birgir hefur fengið mikla athygli
á Youtube fyrir lagið sitt og komst
það í 10. sæti í Bretlandi yfir þau
vinsælustu á síðunni í gær. Hann
á þó enn eftir að fá borgað frá
Motorola. „Það eru enn samninga-
viðræður í gangi. Ég er með mína
umboðsmenn í því.“
Hægt er að horfa á auglýsinguna
á síðunni Biggihilmars.com. - fb
Samdi lag fyrir 100 milljónir
BIRGIR HILMARSSON Tónlistarmaðurinn
á lag í nýrri auglýsingu Motorola sem
var birt í hálfleik Super Bowl.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Siginn
fi skur
Súr
Hvalur2000Kr./kg.Kr./kg.
Humar Skötuselur 1990 kr.kg roðlaus/beinlaus
Fös 18.2. Kl. 19:00 U
Lau 19.2. Kl. 19:00 Ö
Mið 2.3. Kl. 19:00 Ö
Mið 9.3. Kl. 19:00 Ö
Lau 12.3. Kl. 19:00
Fim 17.3. Kl. 19:00 Ö
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
Ö
Sun 6.3. Kl. 13:30
Sun 6.3. Kl. 15:00
Sun 13.3. Kl. 13:30
Sun 13.3. Kl. 15:00
Sun 20.3. Kl. 13:30
Sun 20.3. Kl. 15:00
Sun 27.3. Kl. 13:30
Sun 27.3. Kl. 15:00
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Lér konungur (Stóra sviðið)
Sun 13.2. Kl. 14:00
Sun 13.2. Kl. 17:00
Sun 20.2. Kl. 14:00
Sun 20.2. Kl. 17:00
Sun 27.2. Kl. 14:00
Sun 27.2. Kl. 17:00
Sun 6.3. Kl. 14:00
Sun 6.3. Kl. 17:00
Sun 13.3. Kl. 14:00
Sun 13.3. Kl. 17:00
Sun 20.3. Kl. 14:00
Sun 20.3. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Ö
Ö
Ö
Ö
Fim 10.2. Kl. 20:00 Aukasýning
Fös 11.2. Kl. 20:00
Lau 12.2. Kl. 20:00
Fim 17.2. Kl. 20:00
Fös 25.2. Kl. 20:00 Ö
Brák (Kúlan)
Fös 11.2. Kl. 20:00
Lau 12.2. Kl. 20:00
Sun 13.2. Kl. 20:00
Fim 17.2. Kl. 20:00
Sun 20.2. Kl. 20:00
Sun 27.2. Kl. 20:00
Ö
Ö
Ö
Ö U
U
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö Ö
Ö Ö
U
Rakarastofan
Klapparstíg
S: 551 3010
Kvikmyndaverðlaun tímaritsins
Myndir mánaðarins og síðunnar
Kvikmyndir.is verða haldin í
Sambíóunum Egilshöll í fyrsta
sinn á morgun. „Það þarf að hafa
einhver verðlaun þar sem fólk
fær að segja sína skoðun. Eddu-
verðlaunin eru frábær en það eru
fagverðlaun. Það er allt öðruvísi
sýn sem kemur þar fram,“ segir
Erlingur Grétar Einarsson, sem
verður kynnir kvöldsins ásamt
Tómasi Valgeirssyni. „Stefnan
er að halda þetta árlega. Allir
sem koma nálægt þessu eru rosa
hrifnir af þessu konsepti.“
Fjölbreyttur hópur tók þátt í
forvali verðlaunanna, bæði kvik-
myndaáhugamenn og fólk úr
bransanum. Eftir það völdu les-
endur Kvikmynda.is sigurvegara
úr fimm tilnefningum í hverjum
flokki og eru flokkarnir sextán
talsins, þar af fjórir íslenskir.
Erlingur Grétar hefur lengi
fylgst með erlendum kvikmynda-
hátíðum og hlakkar til að feta í
fótspor kynna á borð við Ricky
Gervais og Billy Crystal. „Það
er aðalmálið að þetta verði ekki
þurrt. Það er dagskipunin að hafa
þetta ferskt og skemmtilegt.“
Hönnuðir verðlaunagripsins,
sem hefur verið kallaður K-ið, eru
þeir Þóroddur Bjarnason og Stefán
Einarsson. - fb
Ný kvikmyndaverðlaun
MEÐ VERÐLAUNAGRIPINN Erlingur
Grétar með verðlaunagripinn sem verður
afhentur á föstudagskvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR