Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 4
4 16. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR Ranglega var sagt í frétt í blaðinu í gær að Lilja Mósesdóttir alþingismað- ur væri í Hreyfingunni. Hún er í Vinstri hreyfingunni – grænu framboði. Beð- ist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTTING VITINN Nágranni næst vitanum er ósáttur við umferð óviðkomandi um garð sinn. SKIPULAGSMÁL Ekki er rétt sem sagt var í Fréttablaðinu í gær að útbúa eigi nýja leið að vinsælum en umdeildum vita ofan við Hverfisgötu í Hafnarfirði. Þvert á móti var fallið frá þeirri lausn við gerð nýs deili- skipulags fyrir reitinn sem ligg- ur að vitanum, að sögn Sigríðar Bjarkar Jónsdóttur, formanns skipulagsráðs Hafnar fjarðar. Sigríður segir bæinn hafa rétt til að fara um lóðina á Hverfisgötu 41 til að komast að vitanum vegna viðhalds og slíks. Hins vegar sé of dýrt miðað við núverandi aðstæð- ur að útbúa gönguleið þar um fyrir almenning. Flestir íbúar í nágrenni vitans telji að auki að ekki eigi að gera aðgang að honum greiðari en hann sé í dag. - gar Misskilningur um Hafnarfjörð: Ekki á að gera nýja leið að vita Skal flutt af flugvellinum 53 fermetra farþegaskýli og flugaf- greiðsla við Breiðdalsflugvöll á Breið- dalsvík er til sölu. Óska Ríkiskaup tilboða í það. Skýlið er úr áli og tré og var reist 1982. Hægt er að setja það saman og koma fyrir á vörubílspalli. FLUGSTÖÐ TIL SÖLU ÍTALÍA, AP Réttarhöld yfir Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefjast 6. apríl. Þau gætu orðið honum að falli, þótt honum hafi til þessa tekist að snúa sér út úr öllum vand- ræðum vegna hneykslismála og spillingar- ásakana. Hann var ákærður í gær fyrir að hafa borgað fyrir kynlíf með sautján ára stúlku frá Marokkó. Einnig var hann ákærður fyrir að hafa misnotað stöðu sína til þess að koma í veg fyrir að þetta spyrðist út. Berlusconi hefur sagt þessar ásakanir tilhæfulausar og kallað réttarhöldin skrípaleik. - gb Réttað yfir forsætisráðherra: Berlusconi þarf að svara til saka SILVIO BERLUSCONI ALÞINGI Vigdís Hauksdóttir, Fram- sóknarflokki, ætlar að fallast á opinbera afsökunarbeiðni Marðar Árnasonar, formanns umhverfis- nefndar Alþingis, og sitja áfram í nefndinni. Hún gekk af nefndarfundi í gær- morgun og sagði sig síðan úr nefnd- inni með opinberri yfirlýsingu: „Augljóst er að formaður nefnd- arinnar beitir mjög mismunandi vinnubrögðum eftir því hvort stjórn- arþingmenn eða stjórnarandstöðu- þingmenn eiga í hlut,“ segir þar. Að sögn viðstaddra gekk það fram af fleiri nefndarmönnum að Mörður greip hvað eftir annað frammí fyrir henni með alls kyns athugasemdum þegar hún hafði orðið á fundi nefndarinnar. Við upphaf þingfundar í gær kvaddi Mörður sér síðan hljóðs og sagðist hafa sent Vigdísi tölvupóst þar sem hann bæði hana afsök- unar á „harðneskjulegri fundar- stjórn“. Mörður bað Vigdísi að end- urskoða þá ákvörðun að segja sig úr nefndinni. Vigdís sagði Fréttablaðinu að eftir að hafa rætt málið í þing- flokki framsóknarmanna hefði hún komist að þeirri niðurstöðu að sitja áfram í nefndinni undir for- mennsku Marðar; sú þjónaði hags- munum Framsóknarflokksins. - pg Nefndarformaður umhverfisnefndar biðst opinberlega afsökunar á fundarstjórn: Vigdís féllst á afsökunarbeiðni Marðar VIGDÍS HAUKSDÓTTIR MÖRÐUR ÁRNASON HAGSTOFAN Aðeins tvisvar sinnum hafa fleiri Íslendingar fæðst en í fyrra. Árið 2010 fæddust 4.907 börn á Íslandi, 2.523 drengir og 2.384 stúlkur, eða 1.058 drengir á móti hverjum 1.000 stúlkum. Einungis tvisvar áður hafa fleiri lifandi fædd börn komið í heiminn á einu ári. Árið 2009 fæddust 5.026 börn og 4.916 árið 1960. Meðalaldur mæðra hefur hækk- að. Frá byrjun sjöunda áratugarins og fram yfir 1980 var meðalaldur frumbyrja undir 22 árum en er nú 26,6 ár að meðaltali. - sh 4.907 börn fæddust í fyrra: Aðeins tvisvar hafa fleiri fæðst GENGIÐ 15.02.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 215,1426 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 117,23 117,79 188,09 189,01 158,6 159,48 21,267 21,391 20,16 20,278 18,105 18,211 1,403 1,4112 182,24 183,32 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is ® SKÓLAMÁL Borgaryfirvöld hafa ákveðið að auka fjárheimildir til grunnskólastarfs í borginni um 200 milljónir króna frá því sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætl- un borgarinnar fyrir yfirstand- andi ár. Til greina kemur að full- nýta útsvarsheimildir til að mæta auknum kostnaði. Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs, segir að með þessu sé tryggt að ekki þurfi að skerða kennslu eða innra starf grunn- skóla. „Við skoðuðum stöðuna og sáum að uppsafnaður vandi síðustu tveggja ára á menntasviði var að birtast,“ segir Oddný. „Skólarnir eiga erfitt með að hag- ræða í innra starfinu, þriðja árið í röð. Því ákváðum við að bregðast nú við og draga til baka að nær öllu leyti fyrirhugaða skerðingu kennslumagns, og bæta í varðandi gæslu og forföll. Í raun erum við því að bæta í, miðað við fjárhagsáætlun fyrir síðasta ár.“ Oddný segir þetta þó ekki hafa áhrif á vinnu starfshóps um sam- einingar innan skólakerfis borgar- innar, því að ástandið undirstriki enn frekar nauðsyn breytinga. „Nú er lag að þora að fara út í þær kjarkmiklu breytingar sem rætt hefur verið um, til að hægt verði að standa vörð um skólastarfið sjálft.“ Aðspurð segir Oddný að til greina komi að hækka útsvarið upp í leyfi- legt hámark til að standa straum af kostnaðinum. „Að mínu mati er það réttlátasta leiðin til að verja skólastarfið að dreifa byrðum á sem sanngjarn- astan hátt.“ Guðrún Valdimarsdóttir, formað- ur SAMFOKS, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, segir í samtali við Fréttablaðið að þessi viðbót dugi ekki til. „Þó að við fögnum þeim litlu skrefum sem tekin eru í að leiðrétta þessa ákvörðun, að ráðast á réttindi barna, þá er það svo að ef borgin hefði ekki varið kennsluna væri um gróft lögbrot að ræða.“ Guðrún segist ekki sjá hvernig 200 milljónir komi til með að vinna upp þá 250 milljóna kennsluskerð- ingu sem fyrirhuguð hafi verið. „Þau eru enn 50 milljónir í mínus fyrir utan það sem þarf til að verja gæsluna. Svo er enn, þrátt fyrir allt, verið að tala um 800 milljóna heildarniðurskurð til menntasviðs, sem er of mikið.“ Guðrún bætir því við að skólamál skuli ekki notuð sem afsökun fyrir hækkun útsvars, enda eigi borgin fé í sjóðum. Borgin verði að forgangs- raða í þágu barna og unglinga. thorgils@frettabladid.is Aukin framlög til að verja kennslustundir Borgaryfirvöld íhuga að hækka útsvar til að fjármagna 200 milljóna hækkun framlags til grunnskóla. Segjast verja kennslumagn. Foreldrar enn ósáttir við nið- urskurð. Borgin eigi fé í sjóðum sínum og þurfi að forgangsraða fyrir skólabörn. Samtök foreldra hafa boðað til samstöðugöngu frá Skólavörðu- holti niður að Ráðhúsinu fyrir opinn fund sem menntaráð hefur boðað til á morgun. Gangan fer af stað klukkan 16.30. Skólagangan: STJÓRNSÝSLA Ríkisendurskoðun leggur til að fagráð Rannsókna- sjóðs verði að hluta skipað erlend- um sérfræðingum. Í nýju áliti Ríkisendurskoðunar er sagt að með því megi tryggja betur óhlut- drægni við úthlutun styrkja. Ríkisendurskoðun bendir á að vegna smæðar íslensks vísinda- samfélags og tengsla milli vís- indamanna sé erfitt að tryggja óhlutdrægni við úthlutun. Rannsóknasjóður starfar á vegum Rannsóknamiðstöðvar Íslands (RANNÍS) og veitir styrki til vísindarannsókna. Í fyrra námu opinber framlög til sjóðsins 815 milljónum króna. - óká Tryggja á óhlutdrægni betur: Skipa á fagráð útlendingum VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 15° 9° 3° 0° 9° 10° -1° -1° 19° 9° 15° 9° 23° -6° 10° 12° -4° Á MORGUN 3-8 m/s. FÖSTUDAGUR 10-18 m/s syðst annars 5-10. 2 2 2 2 2 1 1 0 5 4 5 4 7 13 6 6 3 7 3 10 9 4 2 -1 2 -1 01 -2 3 2 ÚRKOMA EYSTRA Í vikunni verður úrkoma eystra en nokkuð bjart í öðrum landshlut- um. Vindur verður áfram yfi rleitt frem- ur hægur, sérstak- lega á morgun, en á föstudag verður allhvasst úti fyrir suðurströndinni. Hiti verður áfram nokkuð svipað- ur eða í kringum frostmark. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður MÓTMÆLI Leikskólakennarar mótmæltu fyrirhuguðum sameiningaráformum í Ráð- húsi Reykjavíkur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.