Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 16
16 16. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR Fram undan eru tímamóta-ákvarðanir um orkustefnu, um eign og nýtingu orkuauðlind- anna og eignarhald á orkufyrir- tækjum landsins. En hver á að taka þessar ákvarðanir? Stóra spurningin er um eign á orkufyrirtækjum; um einka- rétt einkafyrirtækja eða opin- berra á nýtingu og dreifingu orkuauðlinda. En þá spurningu þarf að mínu mati að setja fram á nýjan leik til að umræðan hafi einhverja merkingu á okkar tímum. Við þurfum í sameiningu að skilgreina hvað er þjóðar- eða almannaeign og leita leiða til að þróa nýtt form eignarhalds með tilliti til nýrrar tækni, nýrrar orkustefnu og öflugra lýðræðis. Mér hefur fundist sem deil- an um eignarhald á orkufyrir- tækjunum staðnæmist gjarnan við tvo gamla kaldastríðs-valkosti sem í dag eru aðeins sýndarkostir. Einka- væðing í orkugeira er til dæmis rökstudd þannig að hún sé þó altént skárri en hinn kosturinn. En sem betur fer eru okkur að opnast nýjar leiðir. Raun ber vitni Krafa samtímans er um vaxandi siðferð- is- og samfélagslega ábyrgð einkarekinna fyrirtækja. En hversu ábyrgir sem rekstrar- aðilarnir vilja vera, virðist einkahlutafé- lagið því miður ekki vera vett- vangur ábyrgðar. Í öllu falli hefur einstaklingum, ríkjum og ríkjasamböndum reynst erfitt að sækja hlutafélög til ábyrgð- ar og skaðabótaskyldu eða hafa áhrif á stefnu þeirra. Þótt virtir jarðfræðingar segi að orkuauð- lindina verði að nýta mjög skyn- samlega svo hún haldi áfram að endurnýja sig, þá getum við því miður ekki treyst því að nýting- arstefna einkahlutafélagsins muni lúta rökum. Í skýrslunni Global experi- ence with electricity liberalis- ation er skýrt frá afleiðingum einkavæðingar í raforkuiðnaði um allan heim: Einkavæðingin hefur hvergi leitt til raunveru- legrar samkeppni á raforku- markaði; rafmagnsverð til neyt- enda hefur alls staðar hækkað og þjónusta versnað; nýsköpun og tækniþróun hefur ekki skilað sér inn í orkugeirann; fjármagn hefur færst úr geiranum; ógagn- sæi í viðskiptaumhverfi hefur aukist og lagarammar og eftir- litsstofnanir ekki náð að vernda neytendur. Niðurstaða skýrslunnar er að þróun og uppbygging orkufyrir- tækja, sérstaklega á sviði endur- nýjanlegrar orku, sé langtíma- verkefni sem krefjist annars vegar framsýni og nýsköpunar, hins vegar stöðugleika. Reynsla síðustu tíu til tuttugu ára hafi sýnt að einkavæðing meginorku- fyrirtækja sé ekki áreiðanlegur kostur vilji almenningur njóta góðs af nýtingunni (sjá orku- audlindir.is). Reynsla okkar af opinberu eignarhaldi á orkufyrirtækjum er ekki mikið betri en af einka- rekstri. Á sínum tíma var þó uppbygging orkufyrirtækj- anna samfélagslegt langtíma- verkefni sem gaf stöðugleika og góðan árangur. Hvers vegna var ákveðið að byrja að selja þegar menn vissu að uppbyggingin lofaði góðu? Í orkuiðnaði tekur þróunar- starf langan tíma og er kostn- aðarsamt en gróðinn getur líka orðið mjög mikill. Þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins, HS Orka, sem var lengst af byggt upp af hugsjón og heiðarleika hefur alla burði til að skila mikl- um arði til frambúðar ef farið er fram af skynsemi. Það er því óskiljanlegt að selja fyrirtækið á svo glæpsamlega góðu verði fyrir kaupandann, því salan skilar okkur sama og engu inn í hringrás hagkerfisins. Eva Joly benti á að nauðsynlega þyrfti að rannsaka söluferlið sem bæri merki spillingar og lögbrots. Eins þarf að bæta lögin og skrá orkuauðlindir í stjórnarskrá. Orkustefna hér á landi hefur hingað til ekki verið mótuð fyrir opnum tjöldum né almenni- lega til umræðu, m.a. vegna leyndar- og forræðishyggju til hægri og vinstri. Hér á landi hefur ríkt svo- kölluð stóriðjustefna, en réttmæti hennar hefur ekki verið hægt að ræða ofan í kjöl- inn vegna vöntunar á upplýsingum. En raun ber vitni, skýrslan um Kárahnjúka er til dæmis um óafturkræf og neikvæð hagræn, umhverfis- og samfé- lagsleg ruðningsáhrif stóriðjustefnunnar. Rödd þjóðar og réttlæti Það liggja fyrir drög að fyrstu opinberu orkustefnu Íslands. Þau marka tímamót og lofa góðu en eru líka gagnrýniverð. Nú þurfum við að opna umræð- una í fyrsta sinn alveg upp á gátt og ræða um stefnuna frá öllum sjónarhornum; skapa vettvang þar sem rödd þjóðarinnar heyr- ist. Því það er þörf á rödd og sýn allra í viðleitni til að skapa nýja framtíðarsýn. Við þurfum að leggja mismunandi reynslu okkar, ímyndunarafl og visku í púkk og skapa okkur splunku- nýja valkosti. Um allan heim er leitað logandi ljósi að nýju formi almenningsrekstrar. Gætum við kannski orðið leiðandi í þeirri leit? Endurnýjuð hugsun í orkunýt- ingu jarðarinnar helst í hendur við nýja lýðræðissýn. Og við ættum að fá að kjósa á þess- um örlagaríku tímamótum. Við getum til dæmis kosið að end- urheimta orkufyrirtækin frá sveitarstjórnum, ríki, einka- fyrirtækjum og hluthöfum, frá spillingu, forræðis- og leyndar- hyggju. Ég hef þá trú að orku- nýting geti vel verið á ábyrgð og í þágu almennings í framtíðinni. Við getum valið að byggja upp framsækinn og ábyrgan orku- iðnað þar sem nýstárlegur opin- ber rekstur í samvinnu við fjöl- breyttan erlendan og innlendan einkarekstur, sprotafyrirtæki og þekkingarstofnanir, stuðlar að nýsköpun og framsækinni atvinnuþróun í sjálfbæru, arð- bæru, vistvænu og lýðræðislegu ferli sem endurnýjar orku okkar og réttlæti. AF NETINU Auðræði og hnignun lýðræðis Um daginn skrifaði ég pistil um efnahagslífið í heiminum eins og það hefur verið síðustu áratugina. Ég sagði að menn væru farnir að komast að því að þetta hefði ekki verið jafnmikið framfaraskeið og var haldið fram, þvert á móti – þetta hafi hugsanlega verið tími stöðnunar og hnignunar. Staðreyndin er sú að velmeg- unin var byggð á lántökum og skuldsetningu. Annar þáttur í henni var að flutt inn var mikið af vinnuafli og þannig jukust umsvifin í hagkerfinu. Í þriðja lagi fór svo að streyma ódýr varningur frá Kína og öðrum Asíulöndum og þannig var eins og kaupmátturinn hækkaði. Í fjórða lagi var þetta tími mikilla umsvifa í fjármálalífinu – eins og til dæmis á Íslandi þar sem dautt fjármagn var tekið og virkjað (les: fiskurinn í sjónum varð veðhæfur). Eftir stendur að fámenn auðstétt hefur allt sitt á þurru og gefur ekki eftir forréttindi sín. Við höfum lifað tíma auðræðis, þegar peningavald- ið fer sínu fram – og fátt bendir til annars en að svo verði áfram, að kjörum almennings og innviðum samfélagsins hraki. Nú þegar ríkir kreppa og stöðnun á Vesturlönd- um virðast fáir hafa hugmyndir um hvernig sé hægt að bjótast út úr þessu ástandi – þor eða getu til þess. Stjórnmálamennirnir, nánast sama í hvaða flokki þeir eru, kunna ekki annað en að spila innan þessa kerfis. [...] Fjármagns- öflin fengu að taka völdin hér eins og víðar, það var látið eins og ríkið gæti bara verið til óþurftar og þvælst fyrir – afleiðingin er hnignun lýðræðisins. Silfuregils.eyjan.is Egill Helgason SEND IÐ OKK UR LÍNU Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Um allan heim er leitað logandi ljósi að nýju formi almennings- rekstrar. Gætum við kannski orðið leiðandi í þeirri leit? Orkan okkar - Nýjar leiðir opnast! Orkumál Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur Aðalfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi og málþing um þjóðareign á auðlindum Landssamtök landeigenda á Íslandi (LLÍ) efna til málþings um þjóðareign á auðlindum að loknum aðalfundi samtakanna þann 17. febrúar næstkomandi. Aðalfundurinn verður haldinn í Harvardsal 2, Hótel Sögu, og hefst kl. 14:00. Dagskrá aðalfundar: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 2. Önnur mál. Eftir aðalfundinn, kl. 15:30, fer fram málþing á sama stað um þjóðareign á auðlindum. Dagskrá: 1. Hvað merkir hugtakið þjóðareign? Sigurður Líndal prófessor. 2. Þjóðareign og hvað svo? Sigurður Tómas Magnússon prófessor. 3. Meðferð á þjóðareign. Sigurður Jónsson, hrl. og stjórnarmaður í LLÍ. 4. Pallborðsumræður með framsögumönnum. Bæði aðalfundurinn og málþingið eru opin öllum áhuga- mönnum um málefnið. F.h. stjórnar LLÍ, Örn Bergsson GoRed fyrir konur býður þér á konukvöld í Smáralind þann 17. febrúar frá 19:00-21:00. Tískusýning frá Debenhams, lifandi tónlist, tilboð, fræðsla, kynningar, blóðþrýstingsmælingar, sérfræðingar verða á staðnum - læknar og hjúkrunarfræðingar. GoRed fyrir átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga má úr líkum á þessum sjúkdómum. Mikilvægt er að upplýsa konur um fyrstu einkenni hjarta- og heilaæðasjúkdóma til að geta brugðist skjótt við. Víðtæk kynning, skemmtun og fræðsla verður í Smára- lind í Kópavogi frá og með 12. febrúar næstkomandi og nær átakið hámarki þann 17. febrúar en þá verður haldið konukvöld í Smáralind með ýmsum skemmti- legum uppákomum. Á Hótel KEA Akureyri verður einnig vegleg dagskrá á konudaginn þann 20. febrúar frá klukkan 13:30-16:00 GoRed fyrir konur á Íslandi Smáralind 17. febrúar Hótel KEA 20. febrúar Fræðumst um áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma. „Opnaðu hjarta þitt“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.