Fréttablaðið - 16.02.2011, Síða 33
apótek ●MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2011 11
Bílaapótek Lyfjavals býður upp
á ýmsa möguleika sem henta í
nútímaþjóðfélagi.
„Alveg óhætt er að segja að viðtök-
urnar hafi verið og séu enn glimrandi
góðar, enda erum við enn að þessu sex
árum eftir að farið var af stað,“ segir
Þorvaldur Árnason, framkvæmda-
stjóri Lyfjavals, sem opnaði bílaapótek
á Íslandi árið 2005.
Bílaapótekið sinnir almennri lyfja-
sölu, sem má bæði nálgast í hefð-
bundnu apóteki í rúmgóðu húsnæði að
Hæðarsmára 4 eða í bílalúgu hinum
megin á húsnæðinu. Fyrirtækið er hið
eina sinnar tegundar hérlendis og á
sér fáa líka á Norðurlöndunum að sögn
Þorvaldar. „Þetta var algjör nýlunda
hér á sínum tíma og er enn einstakt,
en við fórum út í þennan rekstur til
að svara brýnni þörf á meiri sveigj-
anleika í þjónustu við viðskiptavini og
sáum brátt að ekki var vanþörf á.“
Kostina segir hann enda marga.
„Lúgan gefur ýmsa möguleika sem
henta vel í nútímaþjóðfélagi. Þetta
fyrirkomulag hentar til dæmis vel
hreyfihömluðum, öldruðum eða fötluð-
um og öðrum sem eiga af einhverjum
ástæðum erfitt um vik með að nálgast
sín lyf með hefðbundnum hætti. Þeir
þurfa ekki að leita að bílastæði og jafn-
vel ganga langt heldur geta fengið sín
lyf afgreitt beint í bílinn,“ tekur hann
sem dæmi og segir þjónustuna einn-
ig hafa nýst vel fjölskyldufólki sem
kemur með börn sín af læknavaktinni
eða þeim sem eru í tímaþröng.
„Hafi viðkomandi verið svo for-
sjáll að láta senda rafrænan lyfseðil
á okkur er heldur engin bið þegar á
staðinn er kominn þar sem búið er að
taka allt saman, hvort sem fólk fer inn
í apótek eða beint í bílalúguna. Þannig
að þetta ætti að spara fólki heilm-
ikla fyrirhöfn og óþarfa tímasóun,“
bendir Þorvaldur á og bættir við á
báðum stöðum gefist viðskiptavin-
unum síðan sá kostur að fá ráðgjöf
lyfjafræðings.
En hvenær er Bílaapótekið opið?
„Apótekið, það er verslunin sjálf, er
opið frá klukkan 10 til 18 alla virka
daga,“ segir Þorvaldur en opnunartími
bílalúgunnar er mun rýmri. „Já, hún
er höfð opin alla daga vikunnar frá
klukkan 10 til 23, sem ætti að nýtast
vel þeim sem komast til dæmis ekki
á hefðbundnum vinnutíma á virkum
dögum.“
Hann getur þess að Lyfjaval reki
að auki tvær verslanir í eigin nafni,
eina í Álftamýri og aðra í Mjóddinni.
„Þar er allt til alls, lyf, snyrtivörur
og annað sem prýða má hefðbund-
in apótek,“ lýsir hann, en Lyfjaval í
Álftamýri er haft opið frá 9 til 18.30
virka daga og Lyfjaval í Mjóddinni frá
9 til 18.30 virka daga og frá 12 til 16 á
laugardögum.
Hröð og góð afgreiðsla
án mikillar fyrirhafnar
Hjá Bílaapóteki Lyfjavals fá viðskiptavinir skjóta og góða þjónustu að sögn
Þorvaldar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
■ GEYMSLA LYFSEÐLA
Oft finnst fólki þægilegt að hafa
lyfseðlana sína á öruggum stað.
Lyfjaval býður fólki að geyma
fyrir það lyfseðlana og finnst
mörgum þægilegt að hringja í ap-
ótekið og biðja um að tiltekin lyf
séu tilbúin þegar þeim hentar.
■ HEIMSENDING
Lyfjaval býður viðskiptavinum
sínum heimsendingarþjónustu
á höfuðborgarsvæðinu. Fastar
heimsendingar eru kl. 17-18 virka
daga en í neyðartilfellum er
möguleiki að fá heimsendingu á
öðrum tímum.
Öryggi og lip-
urð í fyrirrúmi
Lyfjaval býður fólki að geyma fyrir það
lyfseðlana og er hægt að sækja lyfin
þegar því hentar best.
Lyfjaval er
einkarekið fyrir-
tæki sem rekur þrjú
apótek, Lyfjaval
Mjódd, Lyfjaval
Álftamýri og Lyfjaval
Hæðarsmára.