Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 46
22 16. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðs-
sonar
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. loga, 6. eftir hádegi, 8. meðal, 9.
skammstöfun, 11. tveir eins, 12. kost-
ur, 14. ríki í Vestur-Afríku, 16. drykkur,
17. örn, 18. tunnu, 20. klaki, 21. þraut.
LÓÐRÉTT
1. land í S-ameríku, 3. á fæti, 4.
sumbl, 5. kraftur, 7. hertaka, 10.
hnappur, 13. siða, 15. tröll, 16. lögg,
19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lifa, 6. eh, 8. lyf, 9. rek, 11.
ll, 12. úrval, 14. níger, 16. te, 17. ari,
18. ámu, 20. ís, 21. raun.
LÓÐRÉTT: 1. perú, 3. il, 4. fyllerí, 5.
afl, 7. hernema, 10. kví, 13. aga, 15.
risi, 16. tár, 19. uu.
Fugla - Fórnir
Mamma er að vinna lengi
fram eftir og pabbi eldar því.
Einhverjar séróskir?
PITSA! FISKI-BOLLUR!
Döhhh, sorry,
litla gerpi,
það verður
pitsa.
FISKI-
BOLLUR! PITSA! FISKI-
BOLLUR!
Allir sáttir?
Svona.
Segðu mér hvað
gerðist, Palli!
Ég fór yfir til að gefa tíkinni
hans Atla að borða. Hún
hætti ekki að gelta á mig,
urraði á mig á meðan hún
borðaði.
Síðan var bara eins og
hún væri að kafna og ég
varð að gera eitthvað.
Og þú beittir
fyrstu hjálp á
smáhund?
Þegar þú segir
þetta svona,
þá hljómar
þetta eitthvað
skrýtið.
Ætlarðu með hálsmenið í
skólann?
Jáps.
Það er frábært,
sonur sæll.
Mér finnst það
stórkostlegt.
Af hverju
tókstu af þér
glingrið?
Það var eina
ráðið til að
ná skrýtna
brosinu af
pabba.
Til greina koma allir sem hafa lagt umtalsvert af mörkum til að
bæta íslenskt samfélag. Skorað er á lesendur Fréttablaðsins að
senda inn tilnefningar um fólk og félagasamtök sem eiga skilið
virðingarvott fyrir verk sín. Allir koma til greina, jafnt óþekktir
einstaklingar sem vinna störf sín í hljóði, félagasamtök og
þjóðþekktir karlar og konur sem hafa með gjörðum sínum og
framgöngu verið öðrum fyrirmynd.
Hvunndagshetjan
Einstaklingur sem sýnt hefur sérstaka óeigingirni eða hugrekki,
hvort sem er í tengslum við einn atburð eða með vinnu að
ákveðnum málaflokki í lengri tíma.
Frá kynslóð til kynslóðar
Hér koma til greina kennarar, leiðbeinendur, þjálfarar eða aðrir
uppfræðarar sem skarað hafa fram úr á einhvern hátt. Einnig
koma til greina félagasamtök sem sinna börnum af sérstökum
metnaði og alúð.
Til atlögu gegn fordómum
Einstaklingur eða félagasamtök sem hafa unnið ötullega að því
að eyða fordómum í samfélaginu.
Heiðursverðlaun
Einstaklingur sem með ævistarfi sínu hefur stuðlað að betra
samfélagi.
Samfélagsverðlaunin
Félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða
náttúruverndarstarf og lagt sitt af mörkum til að gera íslenskt
samfélag betra fyrir okkur öll.
HEFUR ÞÚ ORÐIÐ VITNI AÐ
ÓSKAÐ ER EFTIR TILNEFNINGUM TIL SAMFÉLAGS-
VERÐLAUNA FRÉTTABLAÐSINS 2011
GÓÐVERKI?
SAMFÉLAGSVERÐLAUN FRÉTTABLAÐSINS
ERU VEITT Í FIMM FLOKKUM.
1
2
3
4
5
SAMFÉLAGSVERÐLAUN
Sendið tilnefningar á hlekknum Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins
á visir.is/samfelagsverdlaun, með tölvupósti á netfangið samfelags-
verdlaun@frettabladid.is, eða bréfleiðis merkt: Samfélagsverðlaun
Fréttablaðsins, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík. Dómnefnd tekur allar
innsendar tillögur til skoðunar. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða
veitt í apríl.
að senda t
ilnefninga
r
er til miðn
ættis þann
Frestur til
21. febrúa
r
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráð-herra hefur legið undir ámæli eftir að
Hæstiréttur ógilti ákvörðun hennar um að
neita að staðfesta aðalskipulag Flóahrepps.
Viðbrögð Svandísar og samherja hennar
hafa verið á þá leið að úrskurður Hæsta-
réttar sé engin frágangssök fyrir hana
þar sem dómurinn lúti að „ágreiningi um
túlkun laga“. Þarafleiðandi hafi hún ekki
beint brotið lög, auk þess sem hún hafi látið
„náttúruna njóta vafans“.
HOFMÓÐURINN í þingmönnum stjórnar-
andstöðunnar sem hæst létu í ræðustól
á Alþingi í gær var vissulega brjóstum-
kennanlegur. Við vitum, vegna þess að við
munum hvernig þetta fólk lét þegar það
var stjórnarmegin í lífinu, að krafa þeirra
um afsögn Svandísar er trauðla sprottin
af lýðræðisást eða virðingu fyrir góðum
stjórnsýsluháttum. Hann var liður í
þeim pólitíska hráskinnaleik sem Hanna
Birna Kristjánsdóttir lýsti svo vel í Viku-
lokunum á laugardaginn var: Íslensk
stjórnmálamenning er átakamiðaður
karlakúltúr sem gengur út á að ann-
aðhvort ráðir þú öllu eða engu.
Íslensk stjórnmálamenning er
uppákomuleikur um að búa
stöðugt til ágreining þótt
hann sé ekki til staðar, því
þannig komast stjórn-
málamenn í fréttir.
ÞESSI HUGSUN, að gera andstæðingnum
skráveifu, gegnsýrir ekki aðeins mál-
flutning stjórnarandstöðunnar í þessu
máli heldur líka viðbrögð ríkisstjórnar-
innar, sem eru billeg. Ekki ætla ég að
dæma um hvort Svandís eigi að segja af
sér en það hlýtur að vera eðlileg krafa að
hún játi á sig mistök og gangi jafnvel svo
langt að biðjast afsökunar á þeim.
ÞAÐ ERU EKKI RÖK í málinu að
umhverfis ráðherra hafi góðan málstað
að verja. Því þótt maður sé sammála
Svandísi kemur nefnilega að því fyrr eða
síðar að mennirnir með „vonda“ málstað-
inn komast til valda. Hvernig ætlum við
að fá þá til að axla ábyrgð ef þeir verða
staðnir að því að fara sínu fram í trássi
við lög? Verður viðkvæðið þá líka: Við
erum bara í pólitík.
LÖGLEGT en siðlaust er eitt þekktasta
hugtak íslenskrar stjórnmálasögu og
lýsir ágætlega ástandinu á Íslandi árin
fram að hruni, þegar lagaklækjum var
beitt til gjörninga sem gengu jafnvel í
berhögg við markmið laganna. Siðlegt en
löglaust er hins vegar engu skárra leiðar-
ljós. Sé þessari ríkisstjórn umhugað um
að bæta hér pólitíska menningu, hlýtur
hún að reyna að búa þannig um hnútana
að lög og siðsemi fari saman í gjörðum
hennar.
Siðlegt en löglaust