Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 6
6 16. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
LÖGGÆSLA „Lögregla hér þarf að
hafa sömu fyrirbyggjandi rannsókn-
arheimildir og starfsbræður hennar
í nágrannalöndunum.“
Þetta segir Siv Friðleifsdóttir,
fyrsti flutningsmaður þings-
ályktunar tillögu um fyrirbyggj-
andi rannsóknarheimildir lögreglu.
Auk Sivjar standa átta þingmenn úr
þremur flokkum að tillögunni.
„Á síðustu árum hef ég fylgst
með málefnum lögreglu, bæði fyrir
hönd framsóknarmanna og í þinginu
almennt,“ útskýrir Siv. „Jafnframt
hef ég fylgst með því sem verið
er að gera í stjórnkerfinu varð-
andi skipulagða
glæpastarfsemi.
Það er alveg ljóst
að lengi hefur
verið rætt um að
það skorti aukn-
ar heimildir til
handa lögreglu
til að fara í þess-
ar fyrirbyggj-
andi rannsóknir.
Þessar heimild-
ir hafa lögreglulið hinna Norður-
landaríkjanna og víðast hvar í Evr-
ópu. Við Íslendingar höfum alltaf
viljað trúa því að svona skipulagða
glæpastarfsemi reki ekki á okkar
fjörur því við séum vernduð hér úti
í norðurhafi.“
Siv segir, að þrátt fyrir þetta
hafi sést hér á landi dæmi, sem
hafi farið fjölgandi, um skipulagða
glæpastarfsemi. Hún kveðst eink-
um leggja þar áherslu á mansal,
sem menn hefðu ekki átt von á að
kæmi upp hér þótt reyndin hefði
orðið önnur, svo og skipulagðan inn-
flutning á fíkniefnum.
„Almenn skipulögð glæpastarf-
semi virðir engin landamæri,“ segir
Siv enn fremur. „Við erum í miklu
samstarfi við nágrannalöndin og
þurfum að geta tekið vel á málum
þegar brotamenn fara á milli landa.“
Siv undirstrikar að lokum að skýrt
eftirlit þurfi að fylgja beitingu rann-
sóknarheimildanna. - jss
Níu þingmenn standa að þingsályktunartillögu um fyrirbyggjandi rannsóknarheimildir lögreglu:
Telja lögreglu þurfa auknar rannsóknarheimildir
LÖGREGLAN Þarf auknar rannsóknar-
heimildir, segja níu þingmenn.
SIV
FRIÐLEIFSDÓTTIR
SAMFÉLAGSMÁL Helga Guðrún Guð-
jónsdóttir, formaður Ungmenna-
félags Íslands (UMFÍ), segir að
Stefán Thordersen, formaður Ung-
mennafélags Njarðvíkur (UMFN),
eigi að segja af sér formennsku.
Héraðsdómur Reykjaness komst
að þeirri niðurstöðu í síðustu viku
að Stefán hefði áreitt samstarfs-
konu sína kynferðislega í vinnu-
tengdri sumarbústaðarferð með
því að bera sig fyrir framan hana
í heitum potti og reyna að ryðjast
nakinn inn í svefnherbergi henn-
ar. Stefán gegnir formennsku í
stjórn UMFN.
Helga Guðrún segir að ef sam-
bærilegt mál kæmi upp innan
UMFÍ væri það litið afar alvarleg-
um augum og viðkomandi yrði að
öllum líkindum látinn segja upp
störfum sínum fyrir félagið.
„Það eru allir saklausir uns
sekt er sönnuð, en í þessu tilviki
er búið að
dæma manninn
sekan,“ segir
Helga Guðrún.
Blátt áfram,
samtök sem
efla forvarnir
gegn kynferð-
islegu ofbeldi
á börnum á
Íslandi, voru
fyrst sett á fót
fyrir alvöru innan UMFÍ. Félag-
ið hélt þá utan um framkvæmd
stofnunar Blátt áfram, réð starfs-
mann og hafði einnig umsjón með
fjárframlögum.
Helga Guðrún telur að í ljósi
þess að Stefán hafi verið dæmd-
ur sekur í kynferðisbrotamáli sé
óviðeigandi að hann gegni starfi
sínu áfram innan UMFN. Helga
Guðrún hefur sjálf reynt að ná
sambandi við Stefán eftir að
dómurinn féll, en hann hefur ekki
látið ná í sig.
Stefán starfar sem yfirmaður
öryggissviðs á Keflavíkurflug-
velli. Þar er hann í leyfi frá störf-
um þar til stjórn Isavia hefur
komist að niðurstöðu um fram-
haldið. Hjördís Guðmundsdóttir,
upplýsingafulltrúi Isavia, segir að
enn sé verið að skoða málið. Spurð
hvort hún viti hvenær niðurstaða
fáist svarar hún: „Finnst þér
líklegt að ég fari að tjá mig um
það?“
Þegar konan sem Stefán áreitti
lét fyrst vita af því innan fyrir-
tækisins var málið ekki skilgreint
sem kynferðisleg áreitni. Stefán
var þó áminntur af yfirmönnum.
Hvorki náðist í Stefán, Þór-
unni Friðriksdóttur varaformann
UMFN, né Brynju Vigdísi Þor-
steinsdóttur framkvæmdastjóra
í gær. sunna@frettabladid.is
Formaður UMFN
ætti að segja af sér
Formaður UMFÍ segir formann Ungmennafélags Njarðvíkur skyldugan til að
segja af sér eftir að dómur taldi sannað að hann hefði áreitt konu kynferðis-
lega. Maðurinn er í leyfi frá starfi sínu hjá Isavia þar til annað verður ákveðið.
KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR Stefán Thordersen gegndi stöðu öryggisfulltrúa á Keflavíkurflugvelli þegar hann áreitti samstarfskonu
kynferðislega. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HELGA GUÐRÚN
GUÐJÓNSDÓTTIR
MINNI HRUKKUR
Í KRINGUM AUGUN?
Frískar og endurnærir á áhrifa -
ríkan hátt, dregur úr þreytu-
merkjum og hrukkum í kringum
augun. Inniheldur Q10 leyndar-
málið sem finnst náttúru lega í
húðinni og vinnur gegn hrukkum.
NIVEA Q10 ANTI-WRINKLE
AUGNROLLER
NÝTT!
HEILBRIGÐISMÁL Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna (SKB)
hefur ákveðið að styrkja faglegt
starf innan Barnaspítala Hrings-
ins. SKB á 20 ára afmæli á þessu
ári.
Farið verður í gæðaþróun á
þjónustu við krabbameinssjúk
börn innan spítalans með það
að markmiði að bæta þverfag-
lega verkferla, allt frá greiningu
krabbameins til eftirmeðferðar.
- sv
SKB styrkir Barnaspítalann:
Þjónustan við
börnin bætt
HEILBRIGÐISMÁL Fjórum iðnaðar-
mönnum hefur verið sagt upp
störfum hjá Heilsustofnun Nátt-
úrulækningafélags Íslands í
Hveragerði.
Hafa þeir sinnt viðhaldi á fast-
eignum félagsins en því verður
gefið frí í eitt ár, eins og Ólafur
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
HNLFÍ, kemst að orði í samtali
við Sunnlenska.
Telur hann að með uppsögn-
unum og frestun viðhalds spari
félagið á milli 20 og 25 milljónir
króna.
Uppsagnarfrestur mannanna;
tveggja smiða, rafvirkja og mál-
ara, er þrír til fimm mánuðir, að
sögn Sunnlenska. - bþs
NLFÍ frestar viðhaldi í eitt ár:
Iðnaðarmönn-
um sagt upp
UMHVERFISMÁL Búsvæði tjarna-
klukku á Hálsum við Djúpavog
hefur verið friðlýst. Tjarna-
klukka er ein fárra tegunda
vatnabjallna sem finnast á
Íslandi og hefur hvergi orðið vart
á landinu nema á Hálsum ofan
við Djúpavog.
Svandís Svavarsdóttir
umhverfisráðherra undirritaði
friðlýsinguna nýverið með sam-
þykki sveitarstjórnar Djúpavogs-
hrepps og eigenda jarðarinnar
Strýtu við Berufjörð. Með friðlýs-
ingunni varð Djúpavogshreppur
fyrstur íslenskra sveitarfélaga til
að samþykkja friðlýsingu svæðis
til verndar smádýralífi. - th
Smádýralíf verndað:
Búsvæði tjarna-
klukku friðlýst
BRETLAND Vilhjálmur Bretaprins
hefur beðið litla bróður sinn
Harry um að verða svaramað-
ur í hinu konunglega brúðkaupi
sem stendur
fyrir dyrum
þegar hann
kvænist Kate
Middleton.
Hin verð-
andi drottning
hefur leikið
sama leikinn
og bað hún
systur sína
Pippu um að
verða brúðarmær. Þetta var
tilkynnt í fyrradag, á Valentín-
usardaginn, en brúðkaupið fer
fram 29. apríl næstkomandi.
Vilhjálmur fetar þar með í
fótspor föður síns sem fékk litla
bróður sinn, Andrés, til þess að
vera svaramaður þegar Karl
giftist Díönu prinsessu árið
1981. - mmg
Styttist í brúðkaup Vilhjálms:
Harry verður
svaramaðurinn
VILHJÁLMUR PRINS
Hefur þú, eða einhver sem þú
þekkir, farið í fegrunaraðgerð?
Já 48,6%
Nei 51,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ert þú mótfallin(n) frekari
virkjunum í Þjórsá?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN
TJARNAKLUKKA Svandís Svavarsdóttir
hefur friðlýst búsvæði tjarnaklukku á
Hálsum við Djúpavog. MYND/ERLING ÓLAFSSON