Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 18
MARKAÐURINN 16. FEBRÚAR 2011 MIÐVIKUDAGUR2 F R É T T I R Fjármálaeftirlit Danmerkur krafðist þess sjö sinnum á síð- asta ári að yfirmanni í fjármála- geiranum yrði vikið úr starfi, að því er fram kemur í frétt Berl- ingske Tidende. Þrír í þessum hópi voru bankastjórar og hafa nú allir horfið til annarra starfa, eftir því sem Berlingske hefur eftir Fjármálaeftirlitinu ytra. Eftirlitið fékk í júlíbyrjun í fyrra auknar heimildir til að knýja á um breytingar hjá fjár- málafyrirtækjum í tilvikum þar sem vafi lék á hæfi stjórnenda. Fram kemur í Berlingske að fyrir utan bankastjórana þrjá hafi verið fjallað um mál for- stjóra tryggingafélags, stjórn- arformanns í tryggingafélagi og tvo starfsmenn greiðslumiðlun- arfyrirtækja. Berlingske greinir frá því að áður hafi komið fram í fréttum að brottvikni forstjóri tryggingafélagsins hafi farið fyrir félaginu Brandkassen. - óká Sjö látnir víkja í fyrra Fjármálaeftirlit Dana fékk auknar valdheimildir. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Áhugi þeirra sem vildu reisa hér gagnaver hefur lifnað við á ný eftir doða í kreppunni. Undan- þágur frá virðisaukaskatti og samræming skattareglna um starfsemi gagnavera innan að- ildarríkja Evrópusambands- ins hafa orðið til að glæða lífi í hann. „Þetta frumvarp um breyt- ingu á virðisaukaskattslögum sem samþykkt var fyrir jól réði úrslitum um það hvort þessi iðn- aður fer af stað hér eða ekki,“ segir Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Farice, sem rekur sæstrenginga tvo, Farice og Danice. „Ef það hefði ekki gerst hefðu þeir aðilar bara pakkað saman sem eitthvað voru að skoða hér.“ Guðmundur segir að allir þeir sem viðrað hafi áhuga á því að reisa hér gagnaver hafi beðið svo mánuðum skipti eftir niðurstöðum frumvarps um starfsumhverfi þeirra hér í fyrra. Þegar það náði í gegn hafi komið kippur í málið. Töluverður áhugi var hér fyrir um þremur til fjórum árum á byggingu gagnavera og talið að það myndi valda spreng- ingu í eftirspurn eftir fólki með hátæknimenntun. Fyrstu niður- stöður athugunar á samkeppnis- hæfni Íslands fyrir netþjónaúbú voru kynntar um mitt ár 2007 og voru þær einkar jákvæðar. Í kjölfarið lýstu erlendir hátæknir- isar á borð við Yahoo, Microsoft og Google yfir áhuga á að reisa hér gagnaver og var stefnt á að þau myndu rísa á næstu tveimur til þremur árum. Síðan þetta var hefur lítið þokast. Eina gagna- verið sem risið hefur til þessa er á vegum Thor Data Center í Hafnarfirði auk þess sem vinna stendur yfir við byggingu vers Verne Holding á gamla varnar- liðssvæðinu á Reykjanesi. Jón Viggó Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Thor Data Cent- er, tók í samtali við Fréttablað- ið á dögunum í svipaðan streng og framkvæmdastjóri Farice; áhugi á vistun gagna hér hafi aukist mikið eftir að frumvarp- ið hafi komist í gegn. Tækifæri séu fyrir hendi fyrir gagnaver hér enda farið að þrengja um þau í öðrum löndum. Helsti þröskuldurinn á sínum tíma sem talinn var geta staðið í vegi fyrir uppbyggingu gagna- vera var ótryggt netsamband Íslands við umheiminn. Guð- mundur hjá Farice segir örygg- ið hafa batnað stórum frá því þetta var. Sæstrengirnir eru nú orðnir tveir auk þess sem fyr- irtækið hafi síðastliðin tvö ár einnig haft aðgang að Green- land Connect, sæstreng Tele Greenland sem liggur á milli Íslands, Grænlands og Kan- ada og kemur á land í Landeyj- um eins og Danice-strengur- inn. Detti niður tenging á einum streng taki annar við. „Ísland er nú mjög vel tengt við umheim- inn og getur þjónað ýmiss konar starfsemi,“ segir hann. ERUM VEL TENGD Ísland er tengt við umheiminn um þrjá sæstrengi. Tveir liggja héðan til meginlands Evrópu en einn til Grænlands og þaðan til Kanada. Þegar einn strengur bilar tekur annar sjálfkrafa við. BIÐIN Á ENDA Kippur komst í viðræður við þá sem vilja reisa hér gagnaver eftir að Alþingi samþykkti frumvarp um breyt- ingar á skattareglum fyrir jól, að sögn Guðmundar Gunnarssonar, framkvæmda- stjóra Farice. Gagnaverin farin að láta vita af sér á ný Breytingar á skattareglum hafa ýtt við þeim sem vilja reisa gagnaver hér. Allt er tilbúið, segir framkvæmdastjóri Farice. Eignarhaldsfélag Farice var með níu milljarða króna skuld- ir í vanskilum í árslok 2009. Það jafngilti rétt tæpum helm- ingi allra skulda fyrirtækisins. Eignarhaldsfélagið átti í viðræð- um við kröfuhafa um fjárhags- lega endurskipulagningu nær allt síðasta ár og var fyrirtækið með kyrrstöðusamning nánast allan tímann. Uppstokkun lauk rétt fyrir lok síðasta árs þegar ríkið og Landsvirkjun lögðu Far- ice til ellefu milljónir evra, jafn- virði 1,7 milljarða króna. Á sama tíma samþykktu lánardrottnar að breyta kröfum sínum á hend- ur félaginu í hlutafé. Við það hurfu Skipti og Vodafone ásamt Orkuveitu Reykjavíkur og HS Orku út af hluthafalista Farice. Í þeirra stað komu kröfuhafarn- ir, Arion banki, Landsbankinn og skilanefnd Glitnis. Farice var á barmi gjaldþrots „Ef það kemur upp vafamál þessu líku þá er það hlutverk okkar að komast til botns í því eða eyða vafanum,“ segir Gunnar Ander- sen, forstjóri Fjármálaeftirlits- ins, FME. Danski fjárfestingarsjóðurinn William Demant Holding keypti í síðustu viku 2,4 prósenta hlut í stoðtækjafyrirtækinu Össuri á hlutabréfamarkaði í Danmörku. Sjóðurinn er helsti hluthafi Öss- urar og á eftir viðskiptin 39,6 prósenta hlut. Yfirtökuskylda miðast við 30 prósenta hlut í skráðu félagi. Al- þingi breytti reglunum fyrir jól í fyrra á þann veg að þeir sem áttu yfir 30 prósent atkvæðisréttar í skráðum félögum fyrir 1. apríl í fyrra mega ekki auka við hlut. Greiningarfyrirtækið IFS bend- ir á að kaupin veki upp spurning- ar um það hvort yfirtökuskylda hafi hugsanlega myndast af hálfu William Demant. Eftirlit með yfirtökureglum er í höndum FME og hefur það túlkunar- og úrskurðarvald í málinu. Gunnar vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. Stoðtækjafyrirtækið er skráð á markað hér og á hlutabréfa- markað í Kaupmannahöfn og eru dönsku yfirtökureglurnar rýmri en þær íslensku. Stefnt er að afskráningu félagsins og verður fjallað um hana á hlut- hafafundi Össurar í næsta mánuði. - jab Vafamál um kaup á hlutabréfum í Össuri FME skoðar mögulega yfirtökuskyldu. Fyrir endurskipulagningu (2009): Landsvirkjun 30% Fjármálaráðuneytið 25% Orkuveita Reykjavíkur 17% Skipti 13% Og fjarskipti (Vodafone) 11% HS orka 4% Eftir endurskipulagningu (lok árs 2010): Arion banki 43,47% Fjármálaráðuneytið 28,07% Landsvirkjun 26,69% Landsbankinn (NBI) 1,05% Skilanefnd Glitnis 0,71% H L U T H A F A R „Ég fer innan tíu daga,,“ segir Jón Ólafsson, stjórnarformaður átöppunarfyrirtækisins Icelandic Water Holdings, um fyrirhugaða ferð sína til Haítí. Fyrirtæki hans hefur sent 160 tonn af flöskuvatni undir merkjum Icelandic Glacial þar sem það er gefið nauð- stöddum á Haítí. Þar hefur mikil neyð ríkt síðan jarðskjálfti upp á 7,0 á Richter-skalanum reið þar yfir og lagði höfuðborgina Port- au-Prince í rúst. Vatnið kom þangað um síðustu helgi. Tala látinna er á reiki og hleyp- ur hún á hundrað til þrjú hundruð þúsund manns. Allt að tvær millj- ónir eru taldar hafa misst heimili sín og millj- ón til viðbótar orðið fyrir áhrifum af völdum hamfaranna. Þá skemmdust grunnstoðir sam- félagsins, hreint drykkjarvatn er af skorn- um skammti og sjúkdómar tíðir af þeim völdum. Fyrirtæki Jóns, sem bandaríski drykkjavörurisinn Anheuser-Busch á fimmtungshlut í, hefur frá því fljótlega eftir að skjálftinn reið yfir sent nú fjórum sinn- um á bilinu 400-500 tonn af drykkjarvatni til hamfarasvæðanna. Áætlað verðmæti gjaf- arinnar, vatnsins, sem tappað er á flöskur í landi Hlíðarenda í Ölfusi, nemur um einni milljón Bandaríkjadala, um 120 milljónum íslenskra króna. - jab Gefur vatn til Haítí fyrir milljónir JÓN ÓLAFSSON B A N K A B Ó K I N Samanburður á vaxtatöflum bankanna *Miðað er við 250.000 króna innlegg og sem skemmsta bindingu. A Bundinn í tíu daga. B Bundinn í sjö daga. C Úttektargjald hjá gjaldkera 0,25% Athugið að ekki er tekið tillit til árgjalds, sem getur fylgt yfirdráttarreikningum. Hæstu Yfirdráttarvextir Yfirdráttarlán innlánsvextir eru hæstir fyrirtækja Markaðsreikningur 0,90%A 11,45% 11,40% Vaxtaþrep 1,90% 11,50% 11,50% Vaxtareikningur 1,40%B 11,45% 11,45% MP Sparnaður 9,50 til 2,30% 11,40% 11,40% PM-reikningur 11,25 til 2,35% 11,40% 11,45% Netreikningur 2,45% C 11,45% 11,45% Sparnaðarreikningur 2,45% 10,20% Ekki í boði. Tæp fjörutíu prósent forsvars- manna í íslensku atvinnulífi telja mestu verðmætasköpun hér næsta áratuginn liggja í nýtingu orku- auðlinda og hækkun raforkuverðs, samkvæmt niðurstöðum könnunar Viðskiptaráðs. Á eftir fylgir ferðamennska og ferðaþjónusta en þrjátíu prósent þeirra sem þátt tóku í könnuninni telja mestu tækifærin þar. Helm- ingi færri sjá mestu tækifærin í nýsköpun, fiskveiðum og iðnaði. „Þótt svörin endurspegli að hluta hefðbundnar áherslur í auð- lindanýtingu, þá er greinilegt að tækifæri til verðmætasköpunar á grunni þekkingar eru forsvars- mönnum atvinnulífs hugleikin. Þetta er jákvæð þróun,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmda- stjóri Viðskiptaráðs. - jab Telja tækifærin í orku og ferðaþjónustu Geiri Hlutfall svarenda (í %) Nýting orkuauðlinda 37,9 Ferðamennska/ferðaþjónusta 30,3 Nýsköpun/hugvit 16,9 Fiskveiðar/fiskvinnsla/fiskeldi 16,2 Iðnaður 12,8 Gagnaver/hátækni/hugbúnaður 10,0 Menntun/þekking 6,6 Útflutningur 4,8 Skattar/skattalækkanir 4,1 Áliðnaður/stóriðja 4,1 Virkjanir 2,1 Evra/nýr gjaldmiðill 1,7 Annað 34,5 * Heimild: Viðskiptaráð M E S T U T Æ K I F Æ R I N *
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.