Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2011 Fámennt en góðmennt starfs- lið vinnur í Skipholtsapóteki og veitir persónulega þjónustu en þannig má halda vöruverði niðri. Auk þess er þar mikið úrval vítamína og fæðubótar- efna. „Okkar sérstaða er afar gott úrval af vítamínum og fæðubótarefnum en þar erum við með mörg góð vörumerki,“ segir Eyja Líf Sæv- arsdóttir, lyfjafræðingur hjá Skip- holtsapóteki. Hún segir helsta markmið Skip- holtsapóteks vera að veita per- sónulega þjónustu auk þess að halda lyfjaverði niðri. Það sé gert með fámennum en góðmennum hópi starfsfólks. „Við bjóðum upp á persónulega þjónustu og þótt við höfum ekki úr stórum flota starfsfólks að spila líður okkur eins og viðskiptavinir okkar séu mjög ánægðir. Fólk leit- ar mikið til okkar, bæði út af lágu lyfjaverði og svo vegna kvilla sem hrjá það, en það fær upplýsingar hjá okkur og virkilega persónulega þjónustu. Starfsfólkið býr yfir mik- illi þekkingu og ef þekking okkar þrýtur höfum við aðgang að alls kyns uppflettiritum sem hjálpa okkur að aðstoða fólk.“ Eyja Líf segir viðskiptavini mikið spá í vöruverð þessi miss- erin og hún bendir fólki á að láta starfsfólk Skipholtsapóteks vita ef það finnur sams konar lyf á ódýrara verði annars staðar. „Við keppumst við að vera með þeim lægstu og þar sem við stöndum ekki sjálf í verðkönnunum höfum við beðið fólk að hjálpa okkur og benda okkur á ef verðið er lægra annars staðar.“ Hún segir fólk einnig með- vitaðra um bætiefni og vítamín og heilsufar sitt almennt. „Fólk áttar sig á því að hægt er að bæta heilsufarið með vítamínum í stað lyfjagjafar. Sem lítið dæmi má nefna sinadrátt, sem kemur oft fram vegna skorts á magnesíum í líkamanum. Fólk er líka orðið vakandi fyrir d-vítamínþörf sinni en Ís- lendinga skortir gjarnan d-vít- amín. Bæði byggir vítamínið upp bein og getur haft fyrirbyggjandi áhrif gagnvart sjúkdómum, til að mynda krabbameini.“ Af þeim vörumerkjum sem fást í vítamínum hjá Skipholtsapót- eki má nefna Now, Nature´s own, Windmill og Heilsu-vítamínin. „Við bjóðum upp á lítið af snyrtivörum, en erum þess í stað með góð græðandi krem fyrir hendur, fætur og húð, andlits- krem og gott vöruúrval fyrir eldra fólk sem er til dæmis að kljást við þvagleka. Og auðvit- að allar þessar hefðbundnu apó- teksvörur, sápur, krem og annað slíkt.“ Markmiðið persónuleg þjónusta og lágt lyfjaverð Starfsmenn Skipholtsapóteks: Sigríður Björnsdóttir í afgreiðslu, Eyja Líf Sævarsdóttir lyfjafræðingur og Margrét Friðgeirsdóttir lyfjatæknir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 15% AFSLÁTTUR AF NICOTINELL Taktu skrefið og hættu að reykja með hjálp Nicotinell. Skipholts- apótek býður upp á gott úrval af Nicotinell-vörum og starfsfólk apóteksins aðstoðar þig við valið. Í febrúarmánuði er 15% afsláttur af öllum Nicotinell-vörum í Skipholtsapóteki. Afsláttur í febrúar 20% AFSLÁTTUR AF VÍTAMÍNUM Hvort sem það er A, B, C, D eða E þá býður Skipholtsapótek upp á fjölbreytt úrval af vítamínum sem styrkja líkama og sál. Starfsfólkið aðstoðar þig við valið á vítamín- inu sem hentar þér og þú færð 20% afslátt af öllum vítamínum út febrúarmánuð. 20% AFSLÁTTUR AF JOHN FRIEDA HÁRVÖRUM Hár er höfuðprýði segir á góðum stað og John Frieda býður upp á hárvörur sem henta öllum. Nú í febrúar bjóðum við 20% afslátt af þessum frábæru hárvörum. Gríptu tækifærið! 15% afsláttur af Nicotinell í Skipholtsapóteki út febrúar Skipholt 50b • 105 Reykjavík • 551 7234 PI PA R \ TB W A • SÍ A • 11 0 31 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.