Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 26
 16. FEBRÚAR 2011 MIÐVIKUDAGUR4 ● apótek Garðs apótek er eitt af fáum einka- reknum apótekum höfuðborgar- svæðisins og tengist hvorki lyfja- keðjum né eignarhaldsfélögum. Apótekið dregur nafn sitt af Hólm- garði 34, þar sem það var fyrst opnað í október fyrir 55 árum, en síðan flutti það að Sogavegi 108 þar sem það er nú til húsa. Stofnandi og fyrsti lyfsali Garðs Apóteks var Mogens A. Mogensen. Hann rak apótekið til ársins 1984 en þá tók Örn Ævarr Markússon við apótekinu og var lyfsali þess til loka ársins 1997. Jón R. Sveinsson tók næstur við lyfsöluleyfinu og rak apótekið til 1. ágúst 2006 að núver- andi apótekari, Haukur Ingason, keypti Garðs Apótek og tók við lyf- söluleyfi þess. Haukur er því fjórði apótekarinn í meira en hálfrar aldr- ar sögu Garðs Apóteks. Haukur er Kópavogsbúi, ætt- aður úr austri og vestri, frá Reyðarfirði og Ísafirði, stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi og lyfjafræðingur frá Lyfjafræði- háskólanum í Kaupmannahöfn. Eiginkona Hauks er Katrín Þór- arinsdóttir úr Reykjavík, ættuð undan Eyjafjöllunum og frá Snæ- fellsnesi. Saman eiga þau fjögur börn. Einkarekið apótek í 55 ár Garðs Apótek er á horni Sogavegar og Réttarholtsvegar, en dregur nafn sitt af fyrstu heimkynnum sínum sem voru við Hólmgarð 34. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Garðs Apótek er afbragðs- dæmi um að með nýjum mönnum koma nýir siðir og ný tækifæri sem eru einkar hagstæð almenningi. „Mig langaði að breyta til eftir mörg ár í starfi hjá lyfjafram- leiðendum og keypti Garðs Apó- tek þegar það bauðst fyrir fimm árum. Ég er bjartsýnn að eðlisfari og þótti það spennandi áskorun, enda hefur gengið afar vel allar götur síðan,“ segir Haukur Inga- son apótekari í Garðs Apóteki þar sem verslun og viðskipti hafa margfaldast síðan Haukur tók við lyfsöluleyfinu. „Ég byrjaði á að lækka lyfja- verð allverulega og viðskiptavin- ir streymdu að. Síðan höfum við ávallt komið vel út úr verðkönn- unum á lausasölulyfjum og lyf- seðilsskyldum lyfjum og ótal sinn- um verið með lægsta verð á land- inu. Fljótlega tók ég svo húsnæði apóteksins í gegn, bæði að utan og innan, skipti um þak, glugga og setti upp ný skilti, ásamt því að stækka innra rýmið til mik- illa muna með því að opna ónot- uð herbergi. Garðs Apótek hefur því tekið miklum stakkaskiptum síðustu fimm ár og er nú orðið miklum mun opnara, rúmbetra og bjartara en áður,“ segir Hauk- ur um apótekið sitt sem er sann- kallað fjölskyldufyrirtæki. „Frúin, sum barnanna okkar og fleiri í stórfjölskyldunni vinna hér með mér og í apótekinu ríkir heimilislegt andrúmsloft. Fólki líkar vel að koma því starfsfólk- ið tekur vel á móti því, og marg- ir njóta þess að tylla sér niður á notalegum „kaffibarnum“ okkar með tímarit eða bara í slökun á meðan þeir bíða eftir lyfjunum sínum. Þá er viðtalsherbergi okkar fyrir viðkvæm mál við- skiptavinanna vel nýtt, og einnig til blóðþrýstingsmælinga,“ segir Haukur sem fundið hefur mikla velvild nágranna sinna í Bústaða- hverfinu, en viðskiptavinir koma víða að. „Hverfisbúar hafa tekið okkur opnum örmum og líkar vel við breytingarnar á þessu rótgróna apóteki, sem og hagstætt vöru- verðið. Við erum líka alltaf að taka inn nýjar vörur og erum með sérsamninga í sölu næring- ardrykkja, þvagleggja og fleira sem fólk getur sótt beint til okkar. Þá erum við með úrval snyrti- vara, ekki síst íslenskra húð- og heilsuvara og erum alltaf að bæta inn spennandi heilsuvöru,“ segir Haukur sem í Garðs Apóteki býður upp á lyfjaskömmtun fyrir þá sem óska og heimsendingar á öllu höfuðborgarsvæðinu ásamt póstsendingum um land allt. „Eftir að lyfseðlar fengust sendir rafrænt í apótek hefur fólk á landsbyggðinni orðið með- vitaðra um tækifæri sín til að fá ódýrari lyf heimsend í póstkröfu, án þess að þurfa nokkurn tímann að fara sjálft í apótek um langan veg og á dýru bensínverði. Það er auðvitað miklu hagstæðari kost- ur, og æ fleiri sem nýta sér það,“ segir Haukur sem kann ákaflega vel við sig í apótekinu. „Starfið er afskaplega ánægju- legt og gefandi samskiptin við almenning, þótt konan segi skemmtilegast fyrir mig að vinna með fríðum flokki starfskvenna apóteksins,“ segir Haukur hlæj- andi. „Við erum akkúrat í nýút- reiknaðri miðju höfuðborgar- svæðisins og því í alfaraleið úr öllum áttum, en margir koma úr nágrannabæjunum og austan að, því aðgengi er gott og verðið ein- stakt, en margir láta uppi að þeir vilji síður versla við stóru lyfja- keðjurnar eftir hrunið og aðild kaupahéðnanna frægu að þeim.“ Garðs Apótek er opið alla virka daga frá klukkan 9 til 18, en lokað um helgar. Sími 568 0990. Sjá www.gardsapotek.is. Konan segir skemmtilegast fyrir mig að vinna með fríðum flokki kvenna Haukur Ingason apótekari í Garðs Apóteki þar sem sífellt fleiri koma til að kaupa lyf á lægra verði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Einkarekið apótek Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 • Sími 5680990 • www.gardsapotek
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.