Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 16.02.2011, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2011 Reykjavíkur Apótek er sjálf- stætt apótek við Seljaveg í Reykjavík. Þar leggur starfsfólk áherslu á persónulega þjón- ustu og gott vöruúrval. „Viðtökurnar hafa verið gríðarlega góðar en við opnuðum Reykjavík- ur Apótek hinn 21. mars árið 2009. Þessi tvö ár hafa verið viðburðarík og sannarlega hafa Vesturbæing- ar, Seltirningar og aðrir borgar- búar tekið okkur opnum örmum,“ segir Margrét Birgisdóttir, lyfsali og eigandi Reykjavíkur Apóteks á Seljavegi. Hún segir að apótekið sé nú komið með stóran hóp fastra við- skiptavina sem stækki óðum. „Við erum sjálfstætt apótek og það er ákveðinn meðbyr með sjálfstæð- um apótekum í þessu árferði og við finnum fyrir því. Bæði má segja að þjónustan sé persónu- legri og fólki finnst þetta skipta verulegu máli.“ Margrét segir að samkeppni í smásölu lyfja hafi vantað í þennan bæjarhluta. Því hafi hún ásamt fé- lögum sínum ákveðið að opna ap- ótek í Vesturbænum. „Við erum vel staðsett. Reykjavíkur Apótek liggur vel við umferð viðskipta- vina á leið til og frá vinnu. Einnig sækja margir þjónustu í verslanir á Grandanum og koma þá við hjá okkur í leiðinni. Aðkoma að apó- tekinu er góð og hér eru næg bíla- stæði. Við bjóðum upp á alla al- menna apóteksþjónustu og reynum að uppfylla væntingar viðskipta- vina varðandi vöruúrval. Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu og hagstætt verð.“ Reykjavíkur Apótek býður einnig upp á heimsendingu á lyfj- um fyrir eldri borgara og öryrkja, þjónustu sem Margrét segir fólk í hverfinu nýta sér töluvert. „Þetta er mikilvæg þjónusta fyrir þá við- skiptavini sem ekki eiga heiman- gengt. Fólk nýtir sér þetta mest hér í hverfinu en við sendum um allan bæ. Í Reykjavíkur Apóteki starfa alls sjö manns, tveir lyfja- fræðingar og starfsstúlkur sem búa yfir áratuga starfsreynslu úr apóteki. Við viljum leggja okkur fram um að veita framúrskarandi þjónustu.“ Föstum viðskiptavinum fer stöðugt fjölgandi „Starfsfólk okkar býr yfir áratuga reynslu,“ segir Margrét Vigfúsdóttir í miðið ásamt starfsfólki Reykjavíkur Apóteks við Seljaveg. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Reykjavíkur Apótek býður heimsendingarþjónustu á lyfjum fyrir eldri borgara og öryrkja um allan bæ. „Hér í Reykjavíkur Apóteki bjóð- um við upp á mikið úrval af ís- lenskum vörum, meðal annars frá Purity Herbs, Villimey og einnig vörur frá Önnu Rósu grasalækni sem hún kallar tinktúrur. Vörur frá SagaMedica eru einnig gríðar- lega vinsælar, sem og húðdrop- arnir frá Sif Cosmetics,“ segir Margrét Birgisdóttir, en íslensk- ar vörur hafa verið stór hluti af vöruúrvali Reykjavíkur Apóteks frá opnun. „Þetta eru mikið til húðvörur, krem og olíur en einnig sólhatt- ur og hvönn til inntöku. Einn- ig erum við með hefðbundnar apóteksvörur frá Pharmarctica, íslensku framleiðslufyrirtæki á Grenivík. Við höfum smám saman aukið úrvalið af því að það er almennur áhugi fyrir því að kaupa íslenskar gæðavörur og eru þessar vörur því mjög vinsælar. Margar af erlendu snyrtivörunum hafa hækkað töluvert í verði, sem gerir íslensku vörurnar mjög vel sam- keppnishæfar.“ Íslenskar vörur vinsælar 101 Apótek hefur aukið jafnt og þétt við úrval sitt af íslenskum vörum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. Apótekið er í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2. Við þökkum góðar viðtökur á þeim tæplega 2 árum sem apótekið hefur starfað. Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur. Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2. Í hjarta Reykjavíkur!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.