Barnablaðið - 01.02.1974, Síða 17

Barnablaðið - 01.02.1974, Síða 17
— David, sagði afi eitt sinn og leit snöggt á mig með leiftrandi augum, — daginn sem þú lærir að biðja um sér- staka hjálp, i fullri einlægni, þá hefir þú eignast kraftinn. Ég skyldi ekki fullkomlega, bæði vegna þess, að ég var aðeins tólf ára og svo hins, að ég var hálf smeykur við hugmyndina. — Opinberlega og einlæglega, sagði hann. Það þýddi, að gera það svo aðrir heyrðu. — ég bið um þetta og hitt, — það þýddi að taka áhættuna á að bænin yrði ekki heyrð. Það var af hendingu að ég var upplýstur um, hvað afi átti við, það skeði einn eftirminnilegan dag, meðan ég var enn á æskuskeiði. Faðir minn hafði verið mjög veikur, af illkynjaðri meinsemd i þörmum, sem hann hafði þjáðst af i meira en tiu ár. Dag einn þegar ég var á leið heim úr skólanum, sá ég sjúkrabil þjóta hjá og þegar ég átti tvær húslengdir ófarnar heim sá ég að billinn var heima. Og á- lengdar heyrði ég pabba hljóða. Hópur af fólki úr söfnuðinum, sat sorgbitinn inn i stofu. Læknirinn vildi ekki leyfa mér að koma að rúmi pabba og mamma kom til min og reyndi að hyghreysta mig. — Deyr hann? spurði ég. Móðir min leit i augu min og reyndi að segja mér sannleikann: Læknirinn seg- ir að hann lifi ekki meira en tvo klukku- tima. Um leið og hún hafði sagt þetta, kall- aði pabbi á hana, grátandi röddu og hún hljóp til hans. — Hér er ég Kenneth, sagði hún, um leið og hún lokaði hurð- inni á eftir sér, en samt sá ég, hvers vegna læknirinn hafði ekki viljað leyfa mér að koma að rúminu, — gólfið og rúmið voru alblóðug. Ég minntist þess hvað afi hafði sagt mér: — að daginn sem ég lærði að biðja opinberlega og einlægt, af öllu hjarta, þá mundi ég öðlast kraftinn. Sem snöggvast datt mér i hug að ganga inn i stofuna til fólksins og segja þvi, að ég ætlaði að biðja fyrir pabba, að honum batnaði og hann gæti aftur komist á fæt- ur. En ég gat það ekki. Ekki einu sinni i þessum vandræðum gat ég látið trú mina uppi, þar sem hún gæti verið brot- in niður. Og vantreystandi orðum afa mins, flýtti ég mér eitthvað i felur, þangað sem enginn gat séð mig. Ég fór niður i kjallara og upp á kolabyng og þar bað ég og reyndi að bæta það upp með rödd- inni sem mig vantaði á trúna. Það sem ég vissi, var, að ég bað upp- hátt i fyrsta sinn. Húsið okkar var hitað með lofthitun og sverar leiðslur komu niður i kjall- arann við hliðina á kolabyngnum, að blásara og lágu inn i hvert herbergi i húsinu, þar sem þær enduðu eins og lúð- ur. Rödd min heyrðist eftir leiðslunum svo að sóknarnefndin heyrði ákafa rödd mina, læknirinn heyrði hana og faðir minn á banasænginni heyrði hana lika. — Komið með Davið, hvislaði hann. Ég var sóttur og það var farið með mig inn i herbergi til pabba. Hann bað lækninn að biða fyrir utan, eitt augna- blik og svo bað hann mömmu að lesa hátt úr Bibliunni, tuttugusta og annað vers tuttugasta og fyrsta kafla Matt- eusarguðspjalls. Hún opnaði Bibliuna og fletti blöðun- um þangað til hún kom að orðinu: — Og sérhvað það, er þér beiðist i bæninni trúaðir, munuð þér öðlast. — Ég fann geysilega geðshræringu 17

x

Barnablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.