19. júní - 19.06.1972, Qupperneq 12
Höf. Guðm. L. Friðfinnsson. Útg. Iðunn
Brúðarmeyjamar XX
Höf. Pamela Brown
Þýð. Guðrún Svava Svavarsd. Útg. Iðunn
Dagfinnur dýralæknir og dýragarðurinn XXXX
Höf. Hugh Lofting
Þýð. Andrés Kristjánsson. Útg. Æskan
Dóra í hópi umsjónarmanna XXX
Höf. Dorita Farlie Bruce
Þýð. ekki getið. Útg. Leiftur
Drengur á flótta XXX
Höf. Petra Flagestad Larsson
Þýð. Benedikt Arnkelsson. Útg. Leiftur
Margir kunna eflaust að spyrja: Hversvegna
Úa? Þvi ekki Rauðsokka? Auðvitað hafa Úur
líka velt þessu fyrir sér og rætt þetta atriði.
Þegar Úur tóku tii starfa hafði Rauðsokkahreyf-
ingin sem slík ekki vei'ið stofnuð hérlendis, en
þegar það varð buðu Úur Vilborgu Dagbjarts-
dóttur á fund með sér, þar sem þetta atriði var
tekið til umræðu. Kom þá í ljós á fundi þessum
að Úur og Rauðsokkur vinna að mörgum hlið-
stæðum málum, en eigi að síður var það skoðun
okkar að við ættum ekki að fullu samleið með
Rauðsokkum og kusum við að starfa áfram eins
og við höfum gert. Töldum við m.a. að okkur
yrði meira ágengt á þann hátt. Eigi að síður eiga
Úur og Rauðsokkur með sér gott samstarf og
samband.
Eins og hér hefur verið rakið hafa Úur komið
viða við og haft afskipti af mörgum og misjöfn-
um málum og málaflokkum. En þetta sem hér
hefur verið nefnt er ekki nema lítið brot af þeim
málum sem Úur hafa rætt og hafa áhuga á. Úur
starfa heldur ekki ailtaf í sérstökum starfshópum,
heldur meira og frekar hver fyrir sig sem Úa. Þær
eru margar svo störfum hlaðnar að þær hafa ekki
getað sótt neina fundi eða starfað í starfshópum,
en hafa samt gjarnan viljað starfa með hópnum og
hafa lika gert það, hver á sínum vettvangi. Þær eru
úr mörgum stéttum og hitta þarafleiðandi margt
ólíkt fólk, sem þær ræða við og koma m.a. þannig
á framfæri. Úur eru alltaf sí vakandi og sístarf-
andi þó ekki komi alltaf fram opinberlega nið-
urstöður um störf þeirra.
Gullveig Sæmundsdóttir
NÝR
FORMAÐUR
MENNTAMÁLA-
RÁÐS
Inga Birna Jónsdóttir núverandi formaður
menntamálaráðs er fyrsta konan, sem gegnir þvi
embætti. „19. júní“ hafði í því tilefni stutt viðtal
við hana, sem fer hér á eftir.
Inga Birna Jónsdóttir er fædd í Reykjavík 17.
9. 1934. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavik árið 1955. Starfaði sem flug-
freyja í nokkur ár hjá Loftleiðum h.f. en hóf síðar
nám við Háskóla Islands og lauk þaðan B.A.
prófi árið 1969. Er nú kennari við Kennaraskóla
Islands.
Hvernig fellur þér þetta nýja embætti sem
formaður Menntamálaráðs?
Að sjáifsögðu var þetta dálitið erfitt í byrjun.
Þetta var mér framandi og ókunnugt. Satt að
segja óraði mig aldrei fyrir því að ég yrði for-
maður í þessu ráði. Ég hélt mig komast upp með
að vera hefðbundin hógvær kona, en þá tóku karl-
mennirnir af skarið og skírskotuðu til kvenréttind-
anna í þessu landi og þar með var teningnum
kastað.
Þetta starf felur í sér mikla möguleika til að
vinna að ýmsum menningarmálum og viðfangs-
efnin eru mörg og margvísleg. I nútímaþjóðfélagi
með allri þessari köldu sálarlausu vélmenningu
er ákaflega nauðsynlegt að hlúa að humanistisk-
um fræðum eða eins og Voltaire lætur Birting
segja: „Maður verður að rækta garðinn sinn“.
Hvert er lilutverk Menntamálaráðs?
Menntamálaráð á að ráðstafa vissri upphæð til
10
19. JÚNÍ