19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1972, Qupperneq 17

19. júní - 19.06.1972, Qupperneq 17
lega heilbrigðum kynstofni og búa við vaxandi menningu, er nauðsynlegt, að búa stúlkur vel undir móðurhlutverkið og pilta undir föðurhlutverkið. Uppeldið verður að miða að því, að börnin geti, þegar þar að kemur, gegnt þessum hlutverkum á ábyrgan hátt. Þó að hér hafi verið lögð áherzla á nauðsyn þess, að haga uppeldi telpna og drengja nokk- uð sitt með hvoru móti, er ekki þar með sagt, að ekki þurfi ýmsu að breyta í kennslu og uppeldi. Þessar breytingar þurfa fyrst og fremst að miða að því, að gera foreldrunum Ijósa ábyrgð sína og mikilvægi föðurhlutverksins, ef uppeldi á að takast vel. Fólki verður að skiljast, að ekki er hægt að setja jafnaðarmerki á milli föður og fyrirvinnu. Hlut- verk föðurins á að vera meira. Hann á að vera beinn þátttak- andi í uppeldinu. Rannsóknir Sigurjóns Björnssonar á reyk- vískum börnum hafa sýnt greini- lega þýðingu vinnutíma föður og reglusemi hans fyrir geðheilsu barnanna, auk þýðingu sambúð- ar foreldranna og ýmissa þátta hjá móðurinni. Þó að faðir geti ekki komið í stað móður í uppeld- inu, getur hann tvímælalaust létt undir með henni, ef hún vill frek- ar, eða þarf að sinna störfum ut- an heimilis. Nútímauppeldi þarf að stuðla að betra heilbrigði komandi kyn- slóða. Því ber að undirbúa börn- in svo, að þau geti frjálst valið sér framtiðarhlutverk við sitt hæfi. Þau þurfa að geta tekið til- lit til nauðsynlegrar hlutverka- skiptingar karla og kvenna, sem getur verið mismunandi eftir óskum og þörfum hvors aðila um sig, eða eftir þörfum samfélags- ins sem heildar. Samkvæmt þessu þarf að leggja áherzlu á hin sameiginlegu verkefni kynj- anna og undirbúa pilta og stúlk- ur til þess, að geta komið hvort í annars stað og unnið saman, ut- an veggja heimilisins og innan, þrátt fyrir mismunandi líffræði- legt hlutverk, sem ekki verður breytt með uppeldi. Tómas Helgason: Sömu kröfur til beggja kynja öll fæðumst við jöfn. Efna- hagur og afstaða foreldra til upp- eldis ráða mestu, hvernig úr ræt- ist fyrir hverju okkar. Uppeldi miðar að þvi að gera hvern einstakling sem bezt fær- an að takast á við hin ýmsu vandamál mannlífsins. Því meiri menntun, víðsýni og umburðar- iyndi gagnvart öðrum, þeim mun auðveldari reynist róðurinn, á- nægjuríkara líf. Allt til þessa hefur drengjum frekar verið haldið til mennta, þeir verða fyrirvinnur, þeim er opin leið til valda í þjóðfélaginu. Þar sem efnahagur er af skorn- um skammti er sonurinn heldur kostaður til náms, þótt gáfur og námshæfileikar systur hans séu meiri. Strax á fyrsta mánuði er byrjað að greina kynin í sund- ur. Þau eru klædd í mismunandi liti, jafnvel þykir svolitið merki- legra að eignast son en dóttur. Þegar að vali leikfanga kemur fá telpurnar brúður að gæla við. Gæti nú ekki verið, að drengirnir hefðu jafnríka þörf fyrir að sýna ástúð og læra að klæða í og úr. Það auðveldar þeim að takast á við fjölskyldu og föðurhlutverk- ið seinna. Drengir fá vélar og leikföng, sem taka má í sundur og setja saman, reynir þá þegar á hugvit og útsjónarsemi. Systur þeirra fá boliastell, svo þær geti æft sig að malla og þvo upp, með því er huga þeirra þegar beint á vissa braut. I handavinnunámi í skóla held- ur mismununin áfram. Drengir fá fjölbreyttari verkefni svo sem smíðar, leðurvinnu, málmsmíði, smelti, leii’vinnu, bókband, og og ljúka öllu sínu verki í skól- anum. Telpurnar hinsvegar læra alls- konar útsaum, prjón og hekl, þær mega sitja heima yfir saum- um meðan bræður þeirra leika sér úti. Drengina skal stæla, gera sterka og stóra, ekki mega þeir gráta né sýna tilfinningasemi. Það gera bara stelpur. 19. JÚNÍ 15 L
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.