19. júní


19. júní - 19.06.1972, Blaðsíða 18

19. júní - 19.06.1972, Blaðsíða 18
Þegar komið er á framhalds- skólastig, er áberandi hversu drengirnir eru þegar orðnir út- haldsbetri og þrekmeiri í öilum leikjum. Leikfimin er frábnjgðin stúlkurnar tipla á tánum og gera mýktaræfingar meðan drengirnir gera þolæfingar. Lík- amsbygging kynjanna er að vísu ekki sú sama, en of mikið er þó gert úr þeim mismun. Hvers vegna er t.d. stúlkum gert að synda skemra í prófi en piltum? Á þennan hátt er alin upp í stúlkum linkan. Þeim er hlíft við iíkamlegum átökum, stuðlað að þvi að þær haidi að sér höndum. Kominn er tími til að hætta þessari sundurgrein ingu og gera sömu kröfur til beggja kynjanna. öll börn eiga að hafa sama námsefni þannig, að þau fái vissa undirstöðu- menntun, bæði í svokallaðri handavinnu stúlkna, drengja og í heimilisstörfum. Seinna á námsbrautinni gætu hinar ýmsu handmenntir verið valgreinar, opnar báðum kynjum jafnt. Síðan getur hver stundað það sem hugur stendur til. Takmarkið er að hver þjóð- félagsþegn verði fær um að sjá fyrir sér sjálfur. Stúlkum er ekki áskapað að verða þjónustur þó þær verði mæður. Til þessa virð- ist allt uppeldi hafa miðað að því að gera þær að slíkum. Hugarfarsbreyting í uppeldis- málum verður að eiga sér stað með þjóðinni. Veita verður stúlk- um sömu tækifæri til að stunda nám og ljúka því, en á því hefur verið mikill misbrestur. Þær verða að öðlast rétt til lífsstarfs að eigin vali. Edda Óskarsdóttir. Heimilisstörf vinna sig ekki sjálf Um aldaraðir hefur ríkt á- kveðin verkaskipting milli kynj- anna og því má telja mjög eðli- legt að reynt væri með uppeld- inu að búa börnin undir væntan- leg framtíðarstörf. Með breyttum samfélagshátt- um síðari áratuga — þörf þjóð- félagsins á starfskröftum kvenna víðar en innan veggja heimilisins — meiri vélvæðingu og minni umsvifum á heimilum og minni félagslegum samskiptum innan veggja heimilisins, vegna smæð- ar fjölskyldunnar, þá hafa kon- ur í siauknum mæli leitað út fyrir heimilin, bæði til að fá útrás fyr- starfsorku sína og félagslega þörf og oft af brýnni fjárhags- legri nauðsyn. Sjálfsagt munu samt verða margar konur, sem fá fulla útrás fyrir starfsorku og félagslega þörf innan veggja heimilisins a.m.k. um visst ára- bil og vinna þær þar vissulega dýrmæt störf. Þrátt fyrir þær breytingar sem orðnar eru í þjóðfélaginu er samt enn töluvert ráðandi í uppeldinu það viðhorf, að hver kona muni giftast og eignast fyrirvinnu. Þetta viðhorf veldur því að yfir- leitt er starfsmenntun hennar vanrækt hrapallega, því hvorki giftast allar konur eða fá full- nægjandi starfsvettvang á heim- ilinu, og ekki er hjónabandið heldur nein liftrygging. Þá rikir hið almenna viðhorf, að það sé konunnar að sjá um heimilisstörfin, þótt hún stundi störf utan heimilis og slíkt verð- ur, þegar til lengdar lætur, allt- of mikið álag. Nýlega las ég um könnun, sem gerð var í Dan- mörku „vegna lélegs heilsufars útivinnandi húsmæðra“. Spurt var um hjálp heimilisfólksins — jú, allir voru reiðubúnir að hjálpa til, en það reyndist þegar til kastanna kom stopul hjálp. Húsmóðirin varð í fiestum tilfell- um að hafa umsjón með öllum verkum, hugsa fyrir öllu og á- stæðan fyrir heilsutapinu reynd- ist þreyta. Þetta með að heim- ilisstörfin lendi á konunni er svo venjulega ekki aðeins vegna sið- venjunnar, heldur einnig vegna þess, að svo mjög sem við van- rækjum kennslu beggja kynj- anna í heimilisstörfum, þá er þó stúlkunum yfirleitt aðeins betur sinnt i því efni, og störfin lenda því frekar á þeim, sem eitthvað kunna til þeirra. Ef við eigum að komast hjá, að heimilið, börnin og annað heimilisfólk líði við, að konur taki sífellt meiri þátt í almenn- 16 19. JÚNÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.