19. júní - 19.06.1972, Page 31
Hvernig kanntu við þig í Kópavogi?
Vel. Annars er ég svo ánægð með mitt hlutskipti í lífinu, að ég er viss um að ég
kynni alls staðar vel við mig nálægt mínum nánustu.
Hvar hefur þú nú helzt dvalið ?
Ég er ættuð úr Reykjavík og hef alizt þar upp og gengið í skóla, þó að ekkert hafi
orðið af langskólagöngu, þar sem ég giftist mjög ung.
Hefurðu skrifað lengi?
Nei. Ég gerði eins og margir unglingar, dundaði við að skrifa ljóð og hætti því svo.
Söguformið heillaði mig ekki og svo datt mér í hug að spreyta mig á leikritagerð.
Er „Svartur sólargeisli" fyrsta verk þitt?
Ég hef gert eina ófullkomna tilraun áður að skrifa leikrit. Það var veturinn 68—69
og fjallaði það um systkini, sem bjuggu saman og vandamál þeirra. Sumarið ’69
skrifaði ég svo fyrstu gerðina af sjónvarpsleikritinu, en það er mjög breytt.
Hvernig fékkstu hugdettuna?
Mér detta oft í hug skrítnar spurningar og ég fæ oft hugdettur í spurningarformi.
Sólvei
Ása Sólveig, hver er hún? Samdi hún ekki „Svartur sólar-
geisli”, sem flutt var í sjónvarpinu í vetur? Jú. það er rétt.
En auk þess er hún ung og myndarleg húsmóðir og þriggja
barna móðir í Kópavogi. Við ákváðum að leita hana uppi til
að kynnast henni svolítið nánar.
Var einhver sérstök ástæða fyrir því, að þú valdir kynþáttavandamálið til að
skrifa um?
Nei, það var bara hugdetta. Ég hef oft velt fyrir mér, hvað myndi gerast, ef
stúlka kæmi heim til íslands með lítið barn. Ég held, að fólk myndi kingja því,
þar sem f jölskylduböndin eru mjög sterk.
Styðst persónusköpun þín nokkuð við veruleikann?
Ég passa mig á því, að skrifa ekki um það, sem ég þekki mjög náið og eru per-
sónurnar því algjör skáldskapur.
Hefur þú komizt í snertingu við kynþáttavandamálið?
Ekki er hægt að segja það, en ég hef rætt við konur, sem hafa komið heim frá
Bandaríkjunum og þær sögðu, að fólk ræði þetta bara alls ekki. Þetta er og við-
horf móðurinnar í leikritinu og hún er raunverulega veikasta persónan í leikritinu
að gerð.
Hvernig heldurðu að Islendingar tækju því að fá svolítinn slatta af hörundsdökk-
um inn í landið?
Okkur er mjög hælt fyrir þjóðernistilfinningu, en ég tel hana frekar löst, og tel
ég því, að íslendingar myndu bregðast verr við en ýmsir aðrir.
19. JÚNÍ
29