19. júní


19. júní - 19.06.1974, Side 17

19. júní - 19.06.1974, Side 17
magafrádráttar. Allar eignir bús- ins koma á framtal mannsins og jafnframt allur annar frádráttur, en persónuleg gjöld konunnar og svo hálfur ómagafrádráttur. Þann- ig, að ekki er heimildin til sér- sköttunar frekar iafnréttisviður- kenning en heimildin til 50% frá- dráttar. Um útsvör gilda lög nr. 8 frá 1972. Samkvæmt þeim lögum, er ekki lengur heimild til þess að draga frá 50% af tekjum giftra kvenna, áður en tekjurnar eru skattlagðar með tekjum mannsins, heldur skal hver útsvarsgreiðandi greiða 10% af brúttótekjum sín- um, að frádregnum vissum fjár- hæðum, en það er kr. 7.000 fyrir hjón og einstæða foreldra, sem hafa fyrir heimili að sjá og kr. 5.000 fyrir einstaklinga. Fyrir hvert barn innan 16 ára, sem gjaldandi hefur á framfæri sínu skal lækka útsvar hans um kr. 1.000. Hafi gjaldandi fleiri en 3 börn innan 16 ára á framfæri sínu, skal ennfremur lækka útsvar hans um kr. 2.000 fyrir hvert barn umfram þrjú. Skattalögin gera meiri greina- mun á hlutverki karla og kvenna en þau lög önnur, sem hér hafa verið rakin. í skattalögunum er t. d. ekki sagt, ef bæði hjónin vinna fyrir skattskyldum tekjum, þá eigi þau rétt á þvi, að dregin séu svo og svo mörg prósent frá skattskyldum tekjum þeirra áður en þær eru skattlagðar. Ekki held- ur, að telji hjón sér hagfeldara, „að tekjur þeirra séu sérstaklega skattlagðar“, heldur, „að tekjur kcnunnar séu sérstaklega skatt- lagðar“. Þannig að tekjur konu eru eitthvað sérstakt, þegar skatta- lög eru athuguð. Hér að framan hafa þau laga- ákvæði verið rakin, sem mér sýn- ast helst snerta fyrirvinnuhug- takið. Að frátöldum skattalögun- um, ákvæðinu i lögunum um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkis- is um heimild fyrir gifta konu, sem veitir heimili forstöðu, að vinna % hluta úr fullri vinnu gegn samsvarandi frádrætti i launum, svo og ákvæðinu i 12. gr. laganna um réttindi og skyldur hjóna, sem heimila konu að gera samninga, sem skuldbinda mann- inn vegna sérþarfa konunnar, þá virðist löggjöf okkar miða við jöfn réttindi og jafnar skyldur karla og kvenna almennt og þá ekki síður í fyrirvinnuhlutverkum þeirra. Lögin virðast ganga miklu lengra í jafnréttisátt en lifnaðar- hættir okkar og réttarvitund ber vott um. Enda er það svo að mögu- leikar þeir, sem lögin veita, eru ekki nena að litlu leyti notaðir og sum fyrirmæli laganna beinlínis sniðgengin. Sem dæmi má taka, að með lögum um mannanöfn, en þau eru frá 1925, er kveðið á um það, að hver maður skuli heita einu islensku nafni eða tveim og kenna sig til föður, móður eða kjörföður og jafnan rita nafn og kenningarnafn með sama hætti alla ævi Mér er ekki kunnugt um nokkurn mann á Islandi, sem kennir sig eingöngu til móður sinnar, en um einn mann veit ég, sem notar fyrsta staf i nafni móður sinnar sem hluta af nafn- ritun sinni. Skyldu nú ekki mörg okkar teljast fullsæmd af þvi að kenna okkur til mæðra okkar? Þegar haft er i huga, að íslensk- ar konur fengu flestum konum fyrr pólilísk réttindi (þær fengu kosningarétt með vissum takmörk- unum til sveitastjóma á árinu 1882, á árinu 1902 kjörgengi til sveitastjórna og sóknanefnda, á árinu 1915 kosningarétt við kosn- ingar til alþingis með takmörkum og full pólitísk réttindi á árinu 1920), þá er þátttaka þeirra í stjórnmálum allt fram á þennan dag furðu lítil. Á árinu 1911 var konum veitt- ur réttur til náms og embætta til jafns við karlmenn. Fyrsta konan, sem skipuð var í embætti hér á landi, var Katrín Thoroddsen, en hún var skipuð héraðslæknir á árinu 1923. Á árinu 1933 var Ásta Magnúsdóttir skipuð rikisféhirðir. Teresía Guðmundsson var skipuð veðurstofustjóri á árinu 1946. En þegar á árinu 1921 var kveðið á um rétt ekkils konu, sem gengt hafði embætti til eftirlauna eftir konuna. Og enn þann dag í dag er verið að gera veður út af því í fjölmiðlum, fái konur embætti eða starfsréttindi, sem hinir venjuleg- ustu karlmenn hafa haft á hendi í áratugi, t. d. ráðherrar, prófessor- ar, dómarar, hæstaréttarlögmenn og fleira og fleira. Þrátt fyrir jafnréttislega lög- gjöf, þá hefur hið islenzka þjóð- félag verið ósvikið karlmannaþjóð- félag hingað til og af þjóðfélagsins hálfu hefur litið verið gert til þess að örva konur til að nota þau rétt- indi, sem lögin veita þeim. Það hefur þótt sjálfsagt og eðlilegt, að konur ynnu utan heimilis, svo framarlega sem hagsmunir karla eða þjóðfélagsins krefðust þess, en ekki annars. Það er tómt mál að tala um sömu réttindi til náms og starfs fyrir karla og konur svo lengi, sem ekki er hægt að sjá fyrir gæzlu barna. Það er athyglisvert, að fvrii allar sveitastjórnakosn- ingar eru festir stjórnmálamenn uppfullir af áhuga á dagheimilum og bamaheimilum, en að afstöðn- um kosningum er það móðurum- hyggjan ein sem dugir. Og er þá ekkert annað boðlegt börnum en að njóta móðurlegrar umhyggju 19. JÚNÍ 15

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.