19. júní - 01.10.1995, Page 38
fjöldi feðra sem taka fæðingarorlof vex
jafnt og þétt. Áður en skipuleg feðra-
fræðsla hófst í Upplands Vasby tóku 25
% feðranna orlof í 32 daga að jafnaði.
Núna er talan komin upp í 63% feðra sem
taka 54 daga.
Góöir feöur - hæfarí starfsmenn
Göran var spurður að því hverjir það
væru sem sæktu feðrafræðslu til hans,
hvort það væru bara innfæddir Svíar eða
hvort innflytjendur væru þar á meðal.
Hann svaraði því að í fyrstu hefðu það
verið Svíar, en síðan hefði hóparnir
blandast meir og meir. Það eru karlmenn
með ólíkan bakgrunn, stéttarlegan, menn-
ingarlegan og trúarlegan sem vilja undir-
búa sig og fræðast um föðurhlutverkið.
Karlmenn sem langar til þess að verða
góðir feður. Og þeir eru býsna margir
þegar að er gáð.
Gott samband við barn sitt byggir mað-
ur aðeins upp á löngum tíma. Með því að
vera samvistum við barnið frá unga aldri
og undir alls kyns kringumstæðum. Það
er ekki nóg að skemmta sér saman urn
helgar, heldur þarf einnig að láta sér leið-
ast saman. Deila hversdeginum. Það er
bara vitleysa að tala um að „gæði sam-
vistanna“ skipti mestu máli. Það er
magnið sem máli skiptir.
Aðeins með samvistum við karlmenn
fá börn heillega mynd af því hvernig karl-
maður er og hvað karlmennska er.
Og nú líta stjórnendur stórfyrirtækja á
borð við Volvo svo á að karlmenn sem
hafa tekið fæðingarorlof séu betri yfir-
rnenn en aðrir. Þeir eiga auðveldara með
að umgangast fólk, þeir eru hæfari starfs-
menn.
100 feörafræöarar
Göran Wimmerström sagði að lokum
að á þeim fjórum árum sem feðrafræðsla
hefði verið veitt í Upplands Vásby hefði
ýmsum vandamálum fækkað í bænum.
Skilnuðum hefði fækkað og minna væri
um ofbeldisverk. Tilraunin hefði verið
talin gefa svo góða raun að nú hefði hann
fengið það hlutverk að mennta eitt hund-
rað pabbafræðara sem ættu að mynda
feðrafræðslustöðvar í öllum héruðum Sví-
þjóðar.
Þá daga sem Göran Wimmerström
dvaldi á íslandi hélt hann fjölda fyrirlestra
í líkingu við þann sem hér er sagt frá með
all kyns hópum fagfólks sem fæst við af-
leiðingar ofbeldis: hjúkrunarfólki, lækn-
um, félagsfræðingum, tryggingarfræðing-
um og jafnréttisfræðingum. Það er því
ekki ólíklegt að hugmynda hans eigi eftir
að gæta eitthvað í meðferð ofbeldisvanda-
málsins hér á landi og satt að segja lítur sú
sem þetta skrifar bjartari augum til fram-
tíðarinnar eftir en áður. Ofbeldi er vanda-
mál sem hægt er að fást við með fyrir-
byggjandi aðgerðum. Ofbeldismenn eru
ekki upp til hópa óforbetranlegir og
ólæknandi. Þeir eru flestir efni í betri
menn.
Jólagjöfin
✓ /
i ar
Viðhorfsbreytingabolir (M,L, XL),
innkaupapokar og
svuntur
með áletrunum
Arib 1915
fengu íslenskar konur kosningarétt...
/ 1 dag eru konur á íslandi:
50% 50% 50% ÞJQÐARINNAR KJOSENQA FRAMBJOÐENDA
25% ÞINGMANNA
10% RAÐHERRA
Vilt þ bíöa í önnur 80 ár? ... ekki ég!
Ég vil vibhorfsbreytingu nuna!
Pantib í síma:
5516156 eöa 5622555
38